Forsvarsmenn ríkisstjórnar Íslands.
For­svars­menn rík­is­stjórnar Íslands. Mynd: Eyþór Árnason

Ríkissjóður getur sótt næstum 15 milljarða með því að hækka fjármagnstekju- og bankaskatt

Með því að hækka fjár­magnstekju­skatt um þrjú pró­sentu­stig væri hægt að auka tekjur vegna hans um rúma fimm millj­arða króna. Ríkustu tíu pró­sent lands­manna myndu greiða 87 pró­sent þeirrar hækk­unar.

Ef fjár­magnstekju­skattur yrði hækk­aður úr 22 í 25 pró­sent myndi það skila tæp­lega 5,3 millj­örðum króna í tekju­aukn­ingu fyrir rík­is­sjóð á ári. Af þeirri upp­hæð myndu þau tíu pró­sent lands­manna sem eru með hæstu tekj­urnar greiða 4,6 millj­arða króna, eða tæp 87 pró­sent. Þetta kemur fram í minn­is­blaði sem skrif­stofa skatta­mála fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins vann að beiðni efna­hags- og við­skipta­nefndar og var skilað til hennar 17. októ­ber síð­ast­lið­inn.

Þar kemur einnig fram að ef banka­skatt­ur­inn svo­kall­aði yrði hækk­aður aftur úr 0,145 í 0,376 pró­sent af heild­ar­skuldum þeirra banka sem skulda yfir 50 millj­arða króna myndi það auka tekjur rík­is­sjóðs af inn­heimtu skatts­ins úr 5,9 í 15,3 millj­arða króna á næsta ári. Þar munar 9,4 millj­örðum króna.

Rík­is­stjórnin ákvað að lækka banka­skatt­inn árið 2020 og kynnti þá lækkun sem við­bragð við efna­hags­legum áhrifum kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins. Í svari ráðu­neyt­is­ins segir að skatt­byrði vegna banka­skatts­ins legg­ist ekki að öllu leyti á banka, heldur líka á við­skipta­vini þeirra. Þannig leiði auknar álögur á banka til þess að vaxta­munur auk­ist. Þróun vaxta­munar – mis­mun­ar­ins á því sem bankar borga fyrir að fá fjár­magn að lán og því sem þeir rukka heim­ili og fyr­ir­tæki fyrir að lána þeim fjár­magn – hefur ekki verið þannig síðan að banka­skatt­ur­inn var lækk­aður. Þvert á móti lækk­aði vaxta­munur frá 2016 og fram yfir þann tíma. Í fyrra var hann 2,3 til 2,8 pró­sent. Á fyrstu níu mán­uðum yfir­stand­andi árs var hann 2,8 til 3,2 pró­sent.

Þá var óskað eftir því að reiknað yrði út hvaða áhrif það myndi hafa á tekjur rík­is­sjóðs að leggja 50 pró­senta stærð­ar­á­lag á veiði­gjöld frá og men fjögur þús­und þorskígildistonnum, en álagið myndi þá ein­ungis leggj­ast á stærstu útgerðir lands­ins. Fjármála- og efna­hags­ráðu­neytið taldi sig ekki geta svarað þeirri spurn­ingu þar sem mál­efna­sviðs heyri undir mat­væla­ráðu­neytið.

Hærri vaxtabætur lenda hjá millitekjuhópum

Nefnd­ar­menn í efna­hags- og við­skipta­nefnd ósk­uðu líka eftir því að kostn­aður við að hækka öll eigna­skerð­ing­ar­mörk vaxta­bóta­kerf­is­ins ym 50 pró­sent og skipt­ingu á því hvernig ábat­inn af því myndi dreifast eftir tekju­tí­und­unum.

Í svari ráðu­neyt­is­ins segir að tekjur heim­ila vegna vaxta­bóta, sem hafa farið hratt lækk­andi á und­an­förnum árum, hafi verið tveir millj­arðar króna í fyrra. Miðað við þá tölu myndu tekjur heim­ila aukast um 700 til 800 millj­ónir króna ef eigna­skerð­ing­ar­mörkin yrðu hækkuð um 50 pró­sent. Sú upp­hæð myndi að stærstum hluta lenda hjá milli­tekju­hópum, tekju­tí­undum fjögur til sex, en efstu tekju­tí­und­irnar tvær myndi ekki fá neitt í sinn hlut.

Skrif­stofa skatta­mála taldi nauð­syn­legt að til­taka í minn­is­blað­inu að hækkun á grunn­fjár­hæð hús­næð­is­bóta um tíu pró­sent og hækun frí­tekju­mark sömu bóta um þrjú pró­sent, sem ráð­ist var í fyrr á þessu ári, hafi aukið tekjur heim­ila um einn millj­arð króna á árs­grund­velli.

Gátu ekki reiknað út áhrif bandormsins á „meðalfjölskyldu“

Að lokum bað nefndin um að reiknað yrði út hversu mik­ill kostn­að­ar­auki með­al­fjöl­skyldu yrði vegna band­orms­ins svo­kall­aða, sem fylgir með fjár­laga­frum­varpi hvers árs og hækkar allskyns gjöld.

Í svari skatta­skrif­stof­unnar segir að það sé erfitt að áætla þann kostn­að­ar­auka án þess að gefa sér of margar for­sendur. „Engin leið er til þess að vita hver kostn­aður „með­al­fjöl­skyldu“ gæti verið með til­liti til t.d. neyslu á áfengi og tóbaki og hvort og hvernig bif­reið/-ir hún gæti átt svo dæmi séu tekin. Þá má nefna að bif­reiðir í eigu þeirra sem fá greiddan örorku­styrk, örorku­líf­eyri, bens­ín­styrk eða umönn­un­ar­greiðslur vegna örorku barna frá Trygg­inga­stofnun rík­is­ins eru und­an­þegnar bif­reiða­gjaldi og þá greiða aðeins þeir sem eru á aldr­inum 16-70 ára gjald í Fram­kvæmda­sjóð aldr­aðra og sér­stakt gjald vegna Rík­is­út­varps­ins.“

Breyt­urnar séu ein­fald­lega of margar og því engin auð­veld leið til að reikna út slíkan kostn­að­ar­auka. „Þess má geta að 7,7 pró­sent upp­færsla krónu­tölu­gjalda til sam­ræmis við verð­lags­spá hefur áhrif til hækk­unar á vísi­tölu neyslu­verðs og eru þau áhrif áætluð 0,2 pró­sent í frum­varp­inu. Þá munu fyr­ir­hug­aðar breyt­ingar á vöru­gjaldi á öku­tæki jafn­framt leiða til 0,2 pró­sent hækk­unar á vísi­tölu neyslu­verðs. Í því sam­hengi ber að líta til þess að ráð­staf­anir sem auka tekjur rík­is­sjóðs draga úr þenslu í hag­kerf­inu og þar með úr almennum verð­bólgu­þrýst­ingi. Þannig styður rík­is­fjár­mála­stefnan við verð­stöð­ug­leika og dregur úr þörf fyrir hækkun stýri­vaxta. Auk þess draga þessar ráð­staf­anir úr halla rík­is­sjóðs og gera hann þannig betur í stakk búinn að draga úr nið­ur­sveiflum fram­tíðar. Þessi almennu áhrif vega þyngra gagn­vart efna­hags­legum stöð­ug­leika en bein áhrif verð­lags­upp­færslu krónu­tölu­gjalda á vísi­tölu neyslu­verðs.“

Efsta lagið tekur til sín nánast allar fjármagnstekjur

Fjár­magnstekjur hafa verið umtals­vert í umræð­unni und­an­farna mán­uði. Kjarn­inn greindi frá því í júlí að í grein­ingu á álagn­ingu opin­berra gjalda ein­stak­l­inga eftir tekju­­­­­­tí­und­um, sem Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, kynnti á rík­­­­­­is­­­­­­stjórn­­­­­­­­­­­ar­fundi 22. júní síð­­­­­­ast­lið­inn, hafi komið fram að þau tíu pró­­­­­­sent lands­­­­­­manna sem höfðu mestar fjár­­­­­­­­­­­magnstekjur á síð­­­­­­asta ári hafi tekið til sín 81 pró­­­­­­sent allra fjár­­­­­­­­­­­magnstekna ein­stak­l­inga á árinu 2021.

Alls höfðu ein­stak­l­ingar 181 millj­­­­­­arð króna í fjár­­­­­­­­­­­magnstekjur í fyrra og því liggur fyrir að efsta tíund­in, sem telur nokkur þús­und fjöl­­­­­­skyld­­­­­­ur, var með tæp­­­­­­lega 147 millj­­­­­­arða króna í fjár­­­­­­­­­­­magnstekjur á síð­­­­­­asta ári. Heild­­­­­­ar­fjár­­­­­­­­­­­magnstekjur ein­stak­l­inga hækk­­­­­­uðu um 57 pró­­­­­­sent milli ára, eða alls um 65 millj­­­­­­arða króna. Mest hækk­­­­­­­aði sölu­hagn­aður hluta­bréfa sem var 69,5 millj­­­­­­­arðar króna á árinu 2021.

Hjá þeim heim­ilum í land­inu sem höfðu hæstar tekjur hækk­­­­uðu ráð­­­­stöf­un­­­­ar­­­­tekjur að með­­­­al­tali um ríf­­­­lega tíu pró­­­­sent, að lang­­­­mestu leyti vegna auk­inna fjár­­­­­­­magnstekja.

Tekju­hækkun hjá öðrum hópum sam­­­­fé­lags­ins var mun minni, en kaup­máttur ráð­­­­stöf­un­­­­ar­­­­tekna ein­stak­l­inga hækk­­­­aði að með­­­­al­tali um 5,1 pró­­­­sent í fyrra.

Þetta þýðir að ráð­­­stöf­un­­­ar­­­tekjur efsta tekju­hóps­ins hækk­­­uðu mun meira hlut­­­falls­­­lega en ann­­­arra tekju­hópa ofan á það að tekjur þess hóps voru meiri fyr­­­ir. Krón­unum í vasa þeirra sem höfðu miklar fjár­­­­­magnstekjur fjölg­aði því umtals­vert meira en í vasa þeirra sem þáðu fyrst og síð­­­­­ast launa­­­tekjur á síð­­­asta ári.

Raðstöfunartekjur efsta tekjuhópsins hækkuðu langmest

Fjár­­­­­magnstekjur dreifast mun ójafnar en launa­­­tekj­­­ur. Þær lendi mun frekar hjá tekju­hæstu hópum lands­ins, sem eiga mestar eign­­­ir.Alls um níu pró­­sent þeirra sem telja fram skatt­greiðslur á Íslandi fá yfir höfuð fjár­­­magnstekj­­ur. Fjár­­­magnstekju­skattur er líka 22 pró­­­­sent, sem er mun lægra hlut­­­­fall en greitt er af t.d. launa­­­­tekj­um, þar sem skatt­hlut­­­­fallið er frá 31,45 til 46,25 pró­­­­sent eftir því hversu háar tekj­­­­urnar eru.

Þetta þýðir að ráð­­­stöf­un­­­ar­­­tekjur efsta tekju­hóps­ins hækk­­­uðu mun meira hlut­­­falls­­­lega en ann­­­arra tekju­hópa ofan á það að tekjur þess hóps voru meiri fyr­­­ir. Krón­unum í vasa þeirra sem höfðu miklar fjár­­­­­magnstekjur fjölg­aði því umtals­vert meira en í vasa þeirra sem þáðu fyrst og síð­­­­­ast launa­­­tekjur á síð­­­asta ári.

Í nýlegu Mán­að­­­­ar­yf­­­­ir­liti ASÍ kom fram að skatt­­­­byrði hafi heilt yfir auk­ist í fyrra þegar hún er reiknuð sem hlut­­­­fall tekju- og fjár­­­­­­­magnstekju­skatts af heild­­­­ar­­­­tekj­­­­um. Hún fór úr 22,4 pró­­­­sent af heild­­­­ar­­­­tekjum í 23,4 pró­­­­sent.

Skatt­­­byrði efstu tíund­­­­ar­innar dróst hins vegar sam­­­­an. Árið 2020 borg­aði þessi hópur 28,9 pró­­­­sent af tekjum sínum í skatta en 27,3 pró­­­­sent í fyrra. Skatt­­­­byrði allra ann­­­­arra hópa, hinna 90 pró­­­­sent heim­ila í land­inu, jókst á sama tíma.

Í minn­is­­­­­­blaði um áður­­­­­­­­­nefnda grein­ing­u sem lagt var fyrir rík­­­­­­is­­­­­­stjórn í sumar. Þar kom fram að hækk­­­­­­andi skatt­greiðslur efstu tekju­­­­­­tí­und­­­­­­ar­innar séu fyrst og síð­­­­­­­­­­­ast til­­­­­­komnar vegna þess að fjár­­­­­­­­­­­magnstekjur þeirra hafa stór­­­­­­auk­ist, enda greiðir þessi hópur 87 pró­­­­­­sent af öllum fjár­­­­­­­­­­­magnstekju­skatti.

Tugir milljarða greiddir út úr bönkunum á ári hverju

Allir stóru bank­­­arnir þrír; Lands­­bank­inn, Arion banki og Íslands­­­banki, birtu upp­gjör sitt vegna fyrstu níu mán­aða árs­ins í lið­inni viku. Þar kemur fram að sam­an­lagður hagn­aður þeirra á tíma­bil­inu var 50,2 millj­arðar króna. Arion banki hagn­að­ist um 20,4 millj­arða króna, Íslands­banki um 18,5 millj­arða króna og Lands­bank­inn um 11,3 millj­arða króna.

Gangi bönk­unum jafn­vel á síð­asta árs­fjórð­ungi og þeim hefur gengið hingað til á árinu mun sam­eig­in­legur hagn­aður þeirra vera um 67 millj­arðar króna á yfir­stand­andi ári.

Það er minna en þeir högn­uð­ust um í fyrra, þegar þeir höl­uðu inn 81,2 millj­örðum króna. Þann fyr­ir­vara verður þó að hafa á þeim hagn­aði að hann var gríð­ar­leg­ur, eða 170 pró­sent meira en bank­arnir þrír högn­uð­ust um árið 2020.

Auk þess hafa bank­arnir greitt háar fjár­hæðir út til hlut­hafa sinna. Alls greiddi Arion bank­i út arð eða keypti eigin bréf af hlut­höfum fyrir 31,5 millj­­­arða króna ​á síð­­­asta ári. Á fyrstu níu mán­uðum árs­ins 2022 hefur Arion banki skilað 28,9 millj­­örðum króna til hlut­hafa sinna í gegnum arð­greiðslur og end­­ur­­kaup á bréf­­um. Því hefur Arion banki greitt yfir 60 millj­­arða króna út til hlut­hafa sinna á tveimur árum. Bank­inn hefur þegar boðað áform um að greiða enn meira út til þeirra í fyr­ir­­sjá­an­­legri fram­­tíð þannig að útgreiðsl­­urnar nálgist 90 millj­­arða króna.

slands­­­banki greiddi hlut­höfum sínum 11,9 millj­­­arða króna í arð vegna síð­asta árs. Auk þess kom fram fyrr á þessu ári að stjórn bank­ans stefni að því að greiða út 40 millj­­­arða króna í umfram eigið fé fyrir lok næsta árs. Þegar hefur verið sam­þykkt end­ur­kaupa áætlun fyrir 15 millj­arða króna í ár.

Banka­ráð Lands­­­bank­ans sam­þykkti á aðal­fundi í mars að greiða 14,4 millj­­­arðar króna í arð vegna árs­ins 2021. Banka­ráð sam­þykkti auk þess fyrr í ár að greiða út sér­staka arð­greiðslu upp á 6,1 millj­arð króna. Arð­greiðslur Lands­bank­ans fara nær allar í rík­is­sjóð.

Svigrúm þeirra til að greiða hærri banka­skatt er því umtals­vert.

Alls 71 prósent af kökunni verður eftir hjá útgerðunum

Frá árinu 2009 hefur sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki lands­ins hagn­ast um 533 millj­arða króna. Mestur var hagn­að­ur­inn í krónum talið á tíma­bil­inu í fyrra, árið 2021, þegar geir­inn hagn­að­ist um 65 millj­arða króna. Hann jókst um 124 pró­sent á milli ára og var 36 millj­örðum krónum meiri í fyrra en árið 2022.

Á sama tíma­bili, frá 2009 og út síð­asta ár, hefur sjáv­ar­út­veg­ur­inn greitt 219,3 millj­arða króna í opin­ber gjöld, þar af 85,9 millj­arða króna í veiði­gjöld. Auk þess er um að ræða tekju­skatt og trygg­inga­gjald. Sú tala dregst frá áður en hagn­aður sjá­v­­­ar­út­­­vegs­­fyr­ir­tækja er reikn­að­ur auk þess sem búið er að taka til­lit til fjár­fest­ingar í geir­an­um, sem býr til eign.

Opin­beru gjöldin voru 22,3 millj­arðar króna í fyrra, sem var 28 pró­sent meira en árið 2020. Á sama tíma og hagn­að­ur­inn sem sat eftir hjá sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækj­unum jókst um 36 millj­arða króna milli ára juk­ust opin­beru gjöldin um 4,9 millj­arða króna.

Hagn­aður geirans áður en hann greiddi veiði­gjöld, tekju­skatt og trygg­inga­gjald í rík­is­sjóð var sam­tals 752,3 millj­arðar króna frá 2009 og út síð­asta ár. Af þessum hagn­aði sat tæp­lega 71 pró­sent eftir hjá útgerðum lands­ins en rétt um 29 pró­sent fór í opin­ber gjöld.

Þegar tekið er til­liti til 143 millj­arða króna arð­greiðslna út úr sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækjum frá 2010, og vexti á eigin fé þeirra frá 2008, liggur fyrir að hagur sjá­v­­­­ar­út­­­­­vegs­­­fyr­ir­tækj­a hefur vænkast um 575,2 millj­­­arða króna frá hruni.

Þar er því svig­rúm til að greiða hærri greiðslur í opin­bera sjóði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

fjárlög2023

Mest lesið undanfarið ár