Ríkisstjórn Íslands kynnti nokkra efnahagspakka til að örva efnahagslífið á meðan að á kórónuveirufaraldrinum stóð.
Rík­is­stjórn Íslands kynnti nokkra efna­hag­s­pakka til að örva efna­hags­lífið á meðan að á kór­ónu­veiru­far­aldr­inum stóð. Mynd: Bára Huld Beck

Rúmlega helmingur alls nýs auðs sem varð til í fyrra fór til ríkustu Íslendinganna

Þau tíu pró­sent lands­manna sem höfðu mestar tekjur í fyrra tóku til sín 54,4 pró­sent allrar aukn­ingar sem varð á eigin fé lands­manna á árinu 2021, eða 331 millj­arð króna. Efsti fimmt­ung­ur­inn tók til sín þrjár af hverjum fjórum nýjum krónum.

Á árinu 2021 urðu til 608 nýir millj­arðar króna í eigið fé hjá íslenskum heim­ilum. Sá hópur lands­manna sem til­heyrir þeim tíu pró­sentum sem höfðu hæstu tekj­urnar jók eign sína á árinu um 331 millj­arð króna. Það þýðir að 54,4 pró­sent af nýjum auð sem varð til í fyrra lenti hjá þessum hópi, sem telur 23.040 fjöl­skyldur.

Þegar þróun á eignum og skuldum þjóð­ar­innar er skoðað aftur í tím­ann kemur í ljós að á árunum 2010 til 2020, á einum ára­tug, tók þessi efsta tíund að með­al­tali til sín 43,5 pró­sent af öllum nýjum auð sem varð til á ári. Því átti sú þróun sér stað á síð­asta ári að rík­ustu tíu pró­sent lands­manna tóku til sín mun hærra hlut­fall af nýjum auð en hóp­ur­inn hefur að jafn­aði gert ára­tug­inn á undan.

Þetta má lesa úr nýjum tölum sem Hagstofa Íslands birti í morgun um eignir og skuldir lands­manna.

Þessi þróun á sér stað vegna þess að fjár­magnstekjur ruku upp á síð­asta ári. Þær hækk­uðu um 65 millj­arða króna. Alls fóru 81 pró­sent allra fjár­magnstekna til efstu tekju­tí­und­ar­innar. Aðgerðir sem stjórn­völd og Seðla­banki Íslands gripu til vegna efna­hags­legra afleið­inga kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins spila stærsta rullu í þró­un­inni. Peningar voru gerðir ódýr­ari og tæki­færi þeirra sem áttu fjár­magn til að ávaxta, til dæmis í hluta­bréfum og fast­eignum, til að hagn­ast gríð­ar­lega urðu fjöl­mörg.

Hægt að græða mikið á fasteignabraski

Alls áttu íslensk heim­ili tæp­lega 6.125 millj­arða króna í eigið fé um síð­ustu ára­mót, sam­kvæmt skatt­fram­tölum þeirra. Hrein eign þeirra hefur auk­ist gríð­ar­lega frá árinu 2010, eða um 4.560 millj­arða króna. Fyrir vikið líta allar hag­tölur mun betur út. Skulda­staða íslenskra heim­ila hefur í heild batnað gríð­ar­lega. Ráðandi stjórn­mála­menn stæra sig af þeirri þróun og segja hana til merkis um mikið heil­brigði í efna­hags­málum.

Flestir lands­menn eiga eina teg­und eigna sem hefur vaxið mikið í virði, fast­eign­ina sem þeir búa í. Það er enda þannig að tæp­lega 76 pró­sent af þeirri aukn­ingu sem orðið hefur á aukn­ingu á tíma­bil­inu er vegna hækk­andi fast­eigna­verðs. Slík hækkun eru ekki pen­ingar í hendi hjá þeim sem eiga eina eign, og þurfa að búa í henni, þótt auður verði til á blaði sam­hliða miklum hækk­unum. Flestir þurfa að kaupa sér nýja eign ef þeir selja gömlu, og nýju eign­irnar hafa líka hækkað að jafn­aði jafn mikið í virði.

Þeir sem eiga hins vegar fleiri en eina fast­eign, og stunda áhættu­fjár­fest­ingar með slíkar, geta hagn­ast vel á svona ástandi. Samkvæmt tölum frá Þjóðskrá Íslands eru það á fimmta þús­und ein­stak­lingar og lög­að­ilar, sem eiga á milli sín um 53 þús­und íbúðir. Í lok síð­asta árs áttu alls 71 ein­stak­lingar og 382 lög­að­ilar fleiri en sex íbúð­ir, 155 ein­stak­lingar og 101 lög­að­ilar eiga fimm íbúðir og 579 ein­stak­lingar og 165 lög­að­ilar eiga fjórar íbúð­ir. Fjöldi þeirra ein­stak­linga sem eiga þrjár íbúðir er 2.974 og fjöldi lög­að­ila sem eiga sama magn íbúða er 285. Þá eiga 16.501 ein­stak­lingur og 688 lög­að­ilar tvær íbúð­ir.

Afar senni­legt er að þorri þessa hóps til­heyri þeim tíu pró­sent lands­manna sem eru með hæstu tekj­urnar. Sá hópur hefur aukið eigið fé sitt í fast­eignum um 1.551 millj­arð króna frá árinu 2010. Það þýðir að 45 pró­sent af allri aukn­ingu á eigin fé heim­ila vegna hækk­unar á fast­eigna­verði fór til þessa hóps.

Tæplega 90 prósent til tæplega þriðjungs

Af þeim 608 nýju millj­örðum króna sem urðu til í fyrra fóru, líkt og áður sagði, 331 millj­arður króna til efstu tíund­ar­innar. Það er hlut­falls­lega mun meira en rík­asta lagið hefur tekið til sín áður. Hag­stofan birtir ekki frekara nið­ur­brot á því hvernig þessi nýi auður skipt­ist innan efstu tekju­tí­und­ar­innar frekar en fyrri ár. Þess í stað hefur tíðkast að stjórn­ar­and­stöðu­þing­menn hafa þurft að kalla eftir því nið­ur­broti og eftir nokkra mán­uði svarar svo fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra fyr­ir­spurn um hvernig eignir og skuldir efstu 0,1 pró­sent, 1 pró­sent og 5 pró­sent þjóð­ar­innar þró­uð­ust á síð­asta ári.

Ef horft er á hversu stór hluti af þessum 608 millj­örðum króna lenti hjá rík­ustu 20 pró­sent lands­manna kemur í ljóst að þrjár af hverjum fjórum nýjum krónum sem urðu til fóru í vasa þess hóps. Alls 88 pró­sent fór til efstu þriggja tekju­tí­und­anna.

Fátækari helm­ingur lands­manna var sam­tals með nei­kvæða eig­in­fjár­stöðu upp á 66,8 millj­arða króna í árs­lok 2020. Hún batn­aði um fjóra millj­arða króna í fyrra en var samt enn nei­kvæð um 62,8 millj­arða króna um síð­ustu ára­mót, að uppi­stöðu vegna þess að eig­in­fjár­staða neðstu tekju­tí­und­ar­innar versn­aði umtals­vert.

Alls hafa 4.560 millj­arðar króna orðið hefur til í sam­fé­lag­inu síðan 2010. Af þeim fóru 2.051 millj­arðar króna til þeirra tíu pró­senta þjóð­ar­innar voru með hæstar tekjur á hverjum tíma, eða 45 pró­sent. Ef horft er á hversu stór hluti end­aði hjá rík­asta fimmt­ungnum kemur í ljós að þangað röt­uðu 2.975 millj­arðar króna, eða 65 pró­sent af öllum nýjum auð.

Verðbréfaeign vanmetin

Síð­ustu tvö ár, 2020 og 2021, voru afar sér­stök vegna kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins. Stjórn­völd og Seðla­banki Íslands gripu til marg­hátt­aðra aðgerða sem hleyptu súr­efni inn í hag­kerf­ið. Afleið­ing­arnar hafa verið meðal ann­ars verið þær að fast­eigna­verð og virði verð­bréfa hefur hækkað mik­ið, og eig­endur slíkra eigna á sama tíma ávaxtað fé sitt vel.

Í tölum Hag­stofu Íslands um eigið fé lands­manna er ekki tekið til­lit til eigna þeirra í líf­eyr­is­sjóðum lands­ins, sem sam­eig­in­lega halda á 6.422 millj­örðum króna af eignum lands­manna, og eiga stóran hluta af öllum verð­bréfum sem gefin eru út hér­lend­is.

Þá er virði hluta­bréfa í inn­lendum og erlendum hluta­fé­lögum líka reiknað á nafn­virði, ekki mark­aðsvirði. Það þýðir t.d. að ef ein­stak­lingur keypti hlut í skráðu félagi sem hefur tíf­ald­ast í verði fyrir ein­hverjum árum á 100 milljón króna þá er það virðið sem reiknað er inn í tölur Hag­stof­unn­ar, ekki einn millj­arður króna, sem er verðið sem við­kom­andi myndi fá ef hann seldi hluta­bréf­in. Þetta skekkir eðli­lega mjög allar upp­gefnar tölur um eigið fé, enda verð­bréf að meg­in­uppi­stöðu í eigu þess hluta þjóð­ar­innar sem á mestar eign­ir.

Það sást skýst í grein­ingu á álagn­ingu opin­berra gjalda ein­stak­linga eftir tekju­tí­undum sem Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, kynnti á rík­is­stjórn­ar­fundi 22. júní síð­ast­lið­inn.

Þar kom fram að þau tíu pró­sent lands­manna sem höfðu mestar fjár­magnstekjur á síð­asta ári tóku til sín 81 pró­sent allra fjár­magnstekna ein­stak­linga á árinu 2021. Alls höfðu ein­stak­lingar 181 millj­arð króna í fjár­magnstekjur í fyrra og því liggur fyrir að efsta tíund­in, sem telur nokkur þús­und fjöl­skyld­ur, var með tæp­lega 147 millj­arða króna í fjár­magnstekjur á síð­asta ári.

Heild­ar­fjár­magnstekjur ein­stak­linga hækk­uðu um 57 pró­sent milli ára, eða alls um 65 millj­arða króna. Mest hækk­­aði sölu­hagn­aður hluta­bréfa sem var 69,5 millj­­arðar króna á árinu 2021. Ljóst má vera að þorri þeirrar aukn­ingar lenti hjá efstu tekju­tí­und­inni, sem er sá hópur sem á meg­in­þorra hluta­bréfa í eigu ein­stak­linga á Íslandi.

Ráð­stöf­un­ar­tekjur efstu tekju­tí­undar hækk­uðu mest

Fjár­magnstekjur dreifast mun ójafnar en launa­tekj­ur. Þær lendi mun frekar hjá tekju­hæstu hópum lands­ins, sem eiga mestar eign­ir.

Í minn­is­blaði um áður­nefnda grein­ing­u sem lagt var fyrir rík­is­stjórn er þetta stað­fest. Þar kemur fram að hækk­andi skatt­greiðslur efstu tekju­tí­und­ar­innar séu fyrst og síð­ast til­komnar vegna þess að fjár­magnstekjur þeirra hafa stór­auk­ist, enda greiðir þessi hópur 87 pró­sent af öllum fjár­magnstekju­skatti. Þessar auknu tekjur gerðu það að verkum að inn­heimtur fjár­magnstekju­skattur jókst um 73 pró­sent, eða 16,3 millj­arða króna, milli áranna 2020 og 2021.

Heild­ar­tekj­ur, hvort sem þær eru laun vegna vinna eða fjár­magnstekjur mynda, auk bóta, ráð­stöf­un­ar­tekjur ein­stak­linga. Kaup­máttur ráð­stöf­un­ar­tekna hækk­aði að með­al­tali um 5,1 pró­sent á árinu 2021 og náði sú aukn­ing yfir allar tekju­tí­und­ir. Í minn­is­blaði ráðu­neyt­is­ins segir hins veg­ar: „Mikil aukn­ing fjár­magnstekna gerir það að verkum að með­al­tal efstu tíund­ar­innar hækkar mest.“

Þessar upp­lýs­ing­ar, að með­al­tal ráð­stöf­un­ar­tekna hafi hækkað mest hjá tekju­hæstu tíu pró­sent þjóð­ar­inn­ar, var ekki að finna í umfjöllun um grein­ing­una á vef stjórn­ar­ráðs­ins. Þess í stað voru birtar upp­lýs­ingar um mið­gildi kaup­máttar ráð­stöf­un­ar­tekna, sem sýndu allt aðra mynd en með­al­tal myndi sýna.

Í umfjöll­un­inni var heldur ekki minnst á að 81 pró­sent allra fjár­magnstekna hafi ratað til efstu tekju­tí­und­ar­innar á árinu 2021.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár