Mynd: Bára Huld Beck

Ríkustu tíu prósent landsmanna tóku til sín 81 prósent fjármagnstekna

Fjár­magnstekjur ein­stak­linga juk­ust gríð­ar­lega milli áranna 2020 og 2021, eða um 65 millj­arða króna. Ríkustu tíu pró­sent lands­manna taka meg­in­þorra fjár­magnstekna til sín, eða 81 pró­sent þeirra. Alls er um að ræða tekjur upp á tæp­lega 147 millj­arða króna.

Þau tíu pró­sent lands­manna sem höfðu mestar fjár­magnstekjur á síð­asta ári tóku til sín 81 pró­sent allra fjár­magnstekna ein­stak­linga á árinu 2021. Alls höfðu ein­stak­lingar 181 millj­arð króna í fjár­magnstekjur í fyrra og því liggur fyrir að efsta tíundin, sem telur nokkur þús­und fjöl­skyldur, var með tæp­lega 147 millj­arða króna í fjár­magnstekjur á síð­asta ári.

Þetta kemur fram í grein­ing á álagn­ingu opin­berra gjalda ein­stak­linga eftir tekju­tí­undum sem Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, kynnti á rík­is­stjórn­ar­fundi 22. júní síð­ast­lið­inn.

Heild­ar­fjár­magnstekjur ein­stak­linga hækk­uðu um 57 pró­sent milli ára, eða alls um 65 millj­arða króna. Mest hækk­aði sölu­hagn­aður hluta­bréfa sem var 69,5 millj­arðar króna á árinu 2021. Ljóst má vera að þorri þeirrar aukn­ingar lenti hjá efstu tekju­tí­und­inni, sem er sá hópur sem á meg­in­þorra hluta­bréfa í eigu ein­stak­linga á Íslandi.

Sam­tals fengu 28.673 fjöl­skyldur álagðan fjár­magnstekju­skatt og fjölg­aði þeim um 3.278 frá fyrra ári.

Heild­ar­fjöldi fram­telj­enda var 317.567 í fyrra og því greiddu um níu pró­sent fram­telj­enda fjár­magnstekju­skatt.

Morgunblaðið fékk minnisblaðið fyrst

Þegar umfjöllun um grein­ingu fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins á álagn­ingu opin­berra gjalda eftir tekju­tí­undum út frá skatt­fram­tölum var birt á vef stjórn­ar­ráðs­ins 23. júní síð­ast­lið­inn var lögð áhersla á að heild­ar­tekjur allra tekju­hópa hefðu hækkað og kaup­máttur auk­ist. Þar sagði enn fremur að skattar hefðu lækkað á alla tekju­hópa nema þá sem höfðu hæstu tekj­urnar.

Þar var þó ekki að finna upp­lýs­ingar um hversu stórt hlut­verk stór­auknar fjár­magnstekjur leika í þess­ari nið­ur­stöðu, en þær hafa auk­ist gríð­ar­lega á tímum kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins, meðal ann­ars vegna ýmissa aðgerða sem stjórn­völd og Seðla­banki Íslands gripu til.

Kjarninn óskaði eftir að fá minn­is­blað um grein­ing­una sem lagt var fyrir rík­is­stjórn afhent skömmu eftir að rík­is­stjórn­ar­fund­inum lauk 22. júní. Það barst ekki fyrr en eftir ítrekun dag­inn eftir, þann 23. júní, skömmu áður en ráðu­neytið birti sína túlkun á töl­unum á vef stjórn­ar­ráðs­ins.

Í milli­tíð­inni hafði Morg­un­blað­inu hins vegar verið afhent minn­is­blaðið og það birti frétt upp úr því í prentút­gáfu sinni og á vef með fyr­ir­sögn­inni „Tekju­hæstu greiða um helm­ing skatta“. Sá fjöl­mið­ill, sem end­ur­spegl­aði að öllu leyti túlkun ráðu­neyt­is­ins á nið­ur­stöðum grein­ing­ar­innar í frétt sinni, fékk því for­skot á aðra miðla þegar kom að birt­ingu á efn­inu. Þegar leitað var skýr­inga á þessu hjá fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu feng­ust þau svör að sam­skipta­leysi hefði verið um að kenna.

Stutt er síðan að Banka­sýsla rík­is­ins, stofnun sem heyrir undir fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytið, ákvað að afhenda Morg­un­blað­inu einum fjöl­miðla fyr­ir­fram til­kynn­ingu um að lög­fræði­legur ráð­gjafi hennar hefði kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að jafn­ræðis hafi verið gætt við sölu á hlut rík­is­ins í Íslands­banka.

Ráðstöfunartekjur efstu tekjutíundar hækkuðu mest

Fjár­magnstekjur dreifast mun ójafnar en launa­tekjur. Þær lendi mun frekar hjá tekju­hæstu hópum lands­ins, sem eiga mestar eignir.

Í minn­is­blaði um grein­ing­una sem lagt var fyrir rík­is­stjórn er þetta stað­fest. Þar kemur fram að hækk­andi skatt­greiðslur efstu tekju­tí­und­ar­innar séu fyrst og síð­ast til­komnar vegna þess að fjár­magnstekjur þeirra hafa stór­auk­ist, enda greiðir þessi hópur 87 pró­sent af öllum fjár­magnstekju­skatti. Þessar auknu tekjur gerðu það að verkum að inn­heimtur fjár­magnstekju­skattur jókst um 73 pró­sent, eða 16,3 millj­arða króna, milli áranna 2020 og 2021.

Heild­ar­tekjur, hvort sem þær eru laun vegna vinna eða fjár­magnstekjur mynda, auk bóta, ráð­stöf­un­ar­tekjur ein­stak­linga. Kaup­máttur ráð­stöf­un­ar­tekna hækk­aði að með­al­tali um 5,1 pró­sent á árinu 2021 og náði sú aukn­ing yfir allar tekju­tí­undir. Í minn­is­blaði ráðu­neyt­is­ins segir hins vegar: „Mikil aukn­ing fjár­magnstekna gerir það að verkum að með­al­tal efstu tíund­ar­innar hækkar mest.“

Þessar upp­lýs­ingar, að með­al­tal ráð­stöf­un­ar­tekna hafi hækkað mest hjá tekju­hæstu tíu pró­sent þjóð­ar­innar, er ekki að finna í umfjöllun um grein­ing­una á vef stjórn­ar­ráðs­ins. Þess í stað eru birtar upp­lýs­ingar um mið­gildi kaup­máttar ráð­stöf­un­ar­tekna, sem sýna allt aðra mynd en með­al­tal myndi sýna. Í umfjöll­un­inni er heldur ekki minnst á að 81 pró­sent allra fjár­magnstekna hafi ratað til efstu tekju­tí­und­ar­innar á árinu 2021.

Skattafsláttur sem lendir að mesta hjá ríkasta hópnum

Skipta má fjár­magnstekjum í arð, vexti, leigu og sölu­hagn­að. Þeir sem græða á því að nota pen­ing­anna sína í fjár­­­fest­ingar borga fjár­­­magnstekju­skatt. Sá skattur er 22 pró­­sent, sem er mun lægra hlut­­fall en greitt er af t.d. launa­­tekj­um, þar sem skatt­hlut­­fallið er frá 31,45 til 46,25 pró­­sent eftir því hversu háar tekj­­urnar eru.

Nokkrar breyt­ingar voru gerðar í álagn­ingu fjár­­­magnstekju­skatts í upp­hafi árs 2021. Eftir þær þarf til að mynda ekki að greiða skatt af vöxt­um, arði og sölu­hagn­aði hluta­bréfa á skipu­­legum verð­bréfa­­mark­aði sem var undir 300 þús­und krónum og frí­­tekju­­mark hjóna var hækkað upp í 600 þús­und krón­­ur. Í ljósi þess að tekju­hæstu tíu pró­sent lands­manna eiga þorra þeirra hluta­bréfa sem ein­stak­lingar eiga hér­lendis liggur fyrir að þessi skatt­afsláttur lendir að uppi­stöðu hjá þeim hópi.

Auk þess er ein­ungis helm­ingur af útleigu íbúð­­ar­hús­næðis til búsetu leigj­anda og sem fellur undir húsa­­leig­u­lög skatt­­skyldur ef ein íbúð er leigð út. Sá hópur sem er lík­leg­astur til að eiga fleiri en eina íbúð, og því stunda útleigu íbúð­ar­hús­næðis, er efsta tekju­tí­undin.

Arð­greiðslur til ein­stak­linga 63,7 millj­arðar

Það voru fleiri teg­undir af fjár­magnstekjum en sala hluta­bréfa sem juk­ust á árinu 2021.

Tekjur ein­stak­linga af arð­greiðslum voru til að mynda 63,7 millj­arðar króna í fyrra og juk­ust um 23,8 pró­sent. Aukn­ingin staf­aði aðal­lega af arði inn­lendra hluta­bréfa sem jókst um 19,8 millj­arða króna á meðan arður af erlendum hluta­bréfum minnk­aði um 7,5 millj­arða króna.

Arð­greiðslur síð­asta árs voru greiddar út vegna frammi­stöðu fyr­ir­tækja á árinu 2020, þegar kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn herj­aði af fullum krafti á heim­inn og rík­is­sjóður var rek­inn með 144 millj­arða króna halla, aðal­lega vegna umfangs­mik­illa efna­hags­að­gerða sem gripið var til vegna far­ald­urs­ins og tekju­taps sem rekja mátti til hans. Í fyrra nam halla­rekstur rík­is­sjóðs 130 millj­örðum króna og því er sam­an­lagt tap hans á þeim tveimur árum sem kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn stóð yfir 274 millj­arðar króna.

Auk þeirra efna­hags­að­gerða sem stjórn­völd gripu til, sem fólu meðal ann­ars í sér marg­hátt­aðar styrkt­ar­greiðslur til fyr­ir­tækja og veit­ingu á vaxta­lausum lánum í formi frestaðra skatt­greiðslna, þá afnam Seðla­banki Íslands hinn svo­kall­aða sveiflu­jöfn­un­ar­auka sem jók útlána­getu banka lands­ins um mörg hund­ruð millj­arða króna og stýri­vextir voru lækk­aðir niður í 0,75 pró­sent. Þeir höfðu aldrei verið lægri. Þessar örv­un­arað­gerðir gerðu það að verkum að til­færsla varð á fjár­munum til fjár­magns­eig­enda.

Til við­bótar við ofan­greindar fjár­magnstekjur höfðu ein­stak­lingar alls 26,5 millj­arða króna tekjur af vöxtum milli ára, sem er hækkun upp á 2,6 millj­arða króna frá árinu 2020. Sú hækkun stafar aðal­lega af því að vextir á verð­bréfum hækk­uðu um fimm millj­arða króna en vextir af inn­stæðum í bönkum dróg­ust saman um 2,4 millj­arða króna milli ára vegna lægri stýri­vaxta.

Þá námu leigu­tekjur alls 16,4 millj­örðum króna og hækk­uðu um 8,6 millj­arða króna milli ára, en tæp­lega átta þús­und fjöl­skyldur gáfu upp leigu­tekj­ur. Það eru 5,2 pró­sent fleiri en það gerðu árið 2020.

Aðgerðir gegn skattsvikum fjár­magns­eig­enda boð­aðar

Í stjórn­­­­­ar­sátt­­­mála rík­­­is­­­stjórn­­­­­ar­innar frá 30. nóv­­­em­ber 2021 sagði að skatt­­­mats­­­reglur verði end­­­ur­­­skoð­aðar og að komið verði í veg fyrir „óeðli­­­lega og óheil­brigða hvata til stofn­unar einka­hluta­­­fé­laga“. Þar sagði að enn fremur verði reglu­verk í kringum tekju­til­­­flutn­ing „tekið til end­­­ur­­­skoð­unar til að tryggja að þau sem hafa ein­­­göngu fjár­­­­­magnstekjur reikni sér end­­­ur­­­gjald og greiði þannig útsvar.“

Engar frek­­­ari skýr­ingar voru gefnar í sátt­­­mál­­­anum á því hvernig end­­­ur­­­mat á skatt­­­mats­­­reglum eigi að fara fram, hvaða óeðli­­­legu og óheil­brigðu hvata eigi að koma í veg fyrir né hvernig tryggja eigi að þeir sem hafi ein­­­göngu fjár­­­­­magnstekjur verði látnir greiða útsvar og þeirra mála sem er að finna á þing­­­mála­­­skrá rík­­­is­­­stjórn­­­­­ar­innar bera það með sér að fjalla um ofan­­­greind atriði.

Kjarn­inn spurð­ist fyrir um hvað fælist í þessu stefn­u­­máli rík­­is­­stjórn­­­ar­innar fyrr á þessu ári, en hvorki for­­sæt­is- né fjár­­­mála- og efna­hags­ráðu­­neytið gat svarað því.

Jóhann Páll Jóhanns­­son, þing­­maður Sam­­fylk­ing­­ar­inn­­ar, lagði í kjöl­farið fram fyr­ir­­spurn á Alþingi um sama mál, og fékk efn­is­­legt svar við henni frá Bjarna Bene­dikts­­syni, fjár­­­mála- og efna­hags­ráð­herra.

Í því svari sagði að end­­ur­­skoðun skatt­­mats­regln­anna, til að koma í veg fyrir óeðli­­lega og óheil­brigða hvata til stofn­unar einka­hluta­­fé­laga, feli í sér að skatt­­mat á hlunn­indum og reglur um reiknað end­­ur­­gjald verði teknar til ein­hvers­­konar end­­ur­­skoð­un­­ar.

Jóhann Páll Jóhannsson, þingmaður Samfylkingarinnar.
Jóhann Páll Jóhanns­son, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar.

Þeir sem eiga einka­hluta­­fé­lag utan um ein­hvers­­konar rekstur eiga að reikna sér laun fyrir þá vinnu sem felst í rekstr­in­um, sem getur eðli máls­ins sam­­kvæmt verið alls­­kon­­ar. Rík­­is­skatt­­stjóri setur árlega reglur um hver lág­­marks­­laun fyrir störf eigi að vera.

Munur á skatt­pró­sentu getur falið í sér hvata

Í svari Bjarna sagði að gætt hafi „til­hneig­ingar til þess að þeir sem telja fram launa­­tekjur á grund­velli reikn­aðs end­­ur­gjalds gangi út frá lægstu við­mið­unum sem regl­­urnar heim­ila og greiði sér í rík­­­ari mæli út hagnað eða arð af rekstri. Af því leiðir að þeir sem telja fram lægra reiknað end­­ur­­gjald en rétt mætti telja að séu tekjur þeirra í reynd greiða lægri tekju­skatt til rík­­is­­sjóðs en þeir sem starfa hjá ótengdum vinn­u­veit­end­­um. Lægri reiknuð laun þýða enn fremur að greitt er lægra trygg­inga­gjald og iðgjald til líf­eyr­is­­sjóðs en ella væri.“

Bjarni sagði að munur á tekju­skatti ann­ars vegar og sam­an­lögðum skatt­greiðslum vegna arðs og hagn­aðar hins vegar geta falið í sér hvata til að stofna félag utan um atvinn­u­­rekstur svo hagn­aður skatt­­legg­ist í lægra hlut­­falli en efsta þrep­inu. „Þessu til við­­bótar er hætta á að því að lög­­að­ilar og þeir sem stunda sjálf­­stæðan atvinn­u­­rekstur gjald­­færi útgjöld á rekstur sem rétt væri að þeir beri per­­són­u­­lega af launa­­tekjum sín­­um. Í því felst ígildi hlunn­inda eða tekna sem hvorki er greiddur tekju­skattur af í rík­­is­­sjóð né launa­tengd gjöld. Einnig að virð­is­auka­skattur af einka­­kostn­aði sé tal­inn fram sem inn­­skattur þannig að skil á virð­is­auka­skatti í rík­­is­­sjóð verði lægri sem því nem­­ur.“

Ætla að skipa starfs­hóp

Jóhann Páll spurði einnig af hverju það hafi ekki verið gripið fyrr til aðgerða til að sporna við þessum hvötum sem eru inn­­­byggðir inn í skatt­­mats­­kerfi Íslands. Í svari ráð­herra var því ekki svarað beint heldur þar þar meðal ann­­ars að í öðrum löndum hafi verið farnar „ýmsar aðrar leiðir en hér á landi til að reyna að sam­ræma skatt­lagn­ingu á tekjur af mis­­mun­andi upp­­runa en ljóst er að það getur verið vanda­­samt í fram­­kvæmd.“

Fjár­­­mála- og efna­hags­ráð­herra sagði að rík­­is­­stjórnin ætli sér að koma í veg fyrir þessa hvata, í sam­ræmi við fyr­ir­heit í stjórn­­­ar­sátt­­mála, með því að stofna sér­­stakan starfs­hóp um verk­efn­ið. Erindi þess hóps verður skil­­greint í skip­un­­ar­bréfi. „Þar verður m.a. kveðið á um end­­ur­­skoðun og ein­­földun reglna um reiknað end­­ur­­gjald í eigin atvinn­u­­rekstri og sam­­spil við skatt­lagn­ingu á hagnað og arð sem og skatt­­mat vegna hlunn­inda og úttekta eig­enda úr félög­­um.“

Sá starfs­hópur hefur enn ekki verið skip­að­ur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár