Mynd: Pexels

Fjármagnstekjur einstaklinga á Íslandi voru 181 milljarður í fyrra

Á meðan að rík­is­sjóður var rek­inn í 130 millj­arða króna tapi á síð­asta ári juk­ust fjár­magnstekjur ein­stak­linga um 65 millj­arða króna. Mest hækk­aði sölu­hagn­aður vegna hluta­bréfa, sem var alls 69,5 millj­arðar króna í fyrra.

Ein­stak­lingar greiddu alls 38,6 millj­arða króna í fjár­magnstekju­skatt í fyrra af alls 181 millj­arðs króna fjár­magnstekjum. Það er 16,3 millj­örðum krónum, eða 73 pró­sent, meira en þeir greiddu í slíkan skatt árið áður en tekj­urnar hækk­uðu alls um 65 millj­arða króna milli ára, eða um 57 pró­sent.

Þetta kemur fram í tölum um álagn­ingu opin­berra gjalda á ein­stak­linga sem fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytið birti í gær. Þar segir að meðal fjár­magnstekju­skattur sem lagður var á hverja fjöl­skyldu hafi verið 1,3 millj­ónir króna, sem er hækkun upp á 53 pró­sent frá árinu áður.

Samtals fengu 28.673 fjöl­skyldur álagðan fjár­magnstekju­skatt og fjölg­aði þeim um 3.278 frá fyrra ári. Heild­ar­fjöldi fram­telj­enda var 317.567 í fyrra og því greiddu um níu pró­sent fram­telj­enda fjár­magnstekju­skatt.

Skipta má fjár­magnstekjum í arð, vexti, leigu og sölu­hagnað. Þeir sem græða á því að nota pen­ing­anna sína í fjár­fest­ingar borga fjár­magnstekju­skatt. Sá skattur er 22 pró­sent, sem er mun lægra hlut­fall en greitt er af t.d. launa­tekj­um, þar sem skatt­hlut­fallið er frá 31,45 til 46,25 pró­sent eftir því hversu háar tekj­urnar eru.

Nokkrar breyt­ingar voru gerðar í álagn­ingu fjár­magnstekju­skatts í upp­hafi árs 2021. Eftir þær þarf til að mynda ekki að greiða skatt af vöxt­um, arði og sölu­hagn­aði hluta­bréfa á skipu­legum verð­bréfa­mark­aði sem var undir 300 þús­und krónum og frí­tekju­mark hjóna var hækkað upp í 600 þús­und krón­ur.

Auk þess er ein­ungis helm­ingur af útleigu íbúð­ar­hús­næðis til búsetu leigj­anda og sem fellur undir húsa­leigu­lög skatt­skyldur ef ein íbúð er leigð út.

Söluhagnaður hlutabréfa rauk upp

Allir liðir fjár­magnstekna hækk­uðu í fyrra. Mest hækk­aði sölu­hagn­aður hluta­bréfa sem var 69,5 millj­arðar króna. Annar sölu­hagn­aður nam 4,8 millj­örðum króna. Því var sölu­hagn­aður síð­asta árs því sam­an­lagt 74,4 millj­arðar króna og var fyrir vikið stærsti ein­staki liður fjár­magnstekna.

Í umfjöllun fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins segir að fjöldi fjöl­skyldna sem hafði hagnað af sölu hluta­bréfa hafi verið 9.718 og auk­ist um 6.737 á milli ára. Þar skiptir nær örugg­lega mestu máli mikil þátt­taka almenn­ings í útboði á hlutum í Íslands­banka fyrir ári síðan, en almenn­ingur gat þá keypt fyrir eina milljón króna án þess að skerð­ast. Alls voru hlut­hafar Íslands­banka um 24 þús­und tals­ins eftir útboðið en um hálfu ári síðar, um síð­ustu ára­mót, voru þeir orðnir 15.900. Þeim hafði því fækkað um rúm­lega átta þús­und. Hluta­bréfa­verð í Íslands­banka hækk­aði um 60 pró­sent frá því gengi sem var í útboð­inu og fram til loka síð­asta árs. Sá sem keypti fyrir milljón krónur gat því leyst út 600 þús­und króna hagnað á nokkrum mán­uðum með því að selja. Af þeim hagn­aði greiddi við­kom­andi 132 þús­und krónur í fjár­magnstekju­skatt.

Skráning Íslandsbanka á markað í júní í fyrra fjölgaði mjög þeim fjölda landsmanna sem átti hlutabréf.
Skráning Íslands­banka á markað í júní í fyrra fjölg­aði mjög þeim fjölda lands­manna sem átti hluta­bréf.

Öll félögin sem skráð eru á aðal­markað Kaup­hall­ar­innar hækk­uðu í virði í fyrra. Mest hækk­aði Arion banki, en mark­aðsvirði hans tvö­fald­að­ist á einu ári. Nánast öll félögin hafa lækkað umtals­vert í virði það sem af er ári, en úrvals­vísi­tala Kaup­hall­ar­innar, sem mælir gengi þeirra tíu félaga sem eru með mestan selj­an­leika hverju sinni, hefur lækkað um rúm­lega 20 pró­sent á fimm mán­uðum.

Arðgreiðslur til einstaklinga 63,7 milljarðar

Tekjur ein­stak­linga af arð­greiðslum voru 63,7 millj­arðar króna í fyrra og juk­ust um 23,8 pró­sent. Í umfjöllun ráðu­neyt­is­ins segir að aukn­ingin stafi aðal­lega af arði inn­lendra hluta­bréfa sem jókst um 19,8 millj­arða króna á meðan arður af erlendum hluta­bréfum minnk­aði um 7,5 millj­arða króna.

Arð­greiðslur síð­asta árs voru greiddar út vegna frammi­stöðu fyr­ir­tækja á árinu 2020, þegar kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn herj­aði af fullum krafti á heim­inn og rík­is­sjóður var rek­inn með 144 millj­arða króna halla, aðal­lega vegna umfangs­mik­illa efna­hags­að­gerða sem gripið var til vegna far­ald­urs­ins og tekju­taps sem rekja mátti til hans. Í fyrra nam halla­rekstur rík­is­sjóðs 130 millj­örðum króna og því er sam­an­lagt tap hans á þeim tveimur árum sem kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn stóð yfir 274 millj­arðar króna. Auk þeirra efna­hags­að­gerða sem stjórn­völd gripu til, sem fólu meðal ann­ars í sér marg­hátt­aðar styrkt­ar­greiðslur til fyr­ir­tækja og veit­ingu á vaxta­lausum lánum í formi frestaðra skatt­greiðslna, þá afnam Seðla­banki Íslands hinn svo­kall­aða sveiflu­jöfn­un­ar­auka sem jók útlána­getu banka lands­ins um mörg hund­ruð millj­arða króna og stýri­vextir voru lækk­aðir niður í 0,75 pró­sent. Þeir höfðu aldrei verið lægri. Þessar örv­un­ar­að­gerðir gerðu það að verkum að til­færsla varð á fjár­munum til fjár­magns­eig­enda.

Til við­bótar við ofan­greindar fjár­magnstekjur höfðu ein­stak­lingar alls 26,5 millj­arða króna tekjur af vöxtum milli ára, sem er hækkun upp á 2,6 millj­arða króna frá árinu 2020. Sú hækkun stafar aðal­lega af því að vextir á verð­bréfum hækk­uðu um fimm millj­arða króna en vextir af inn­stæðum í bönkum dróg­ust saman um 2,4 millj­arða króna milli ára vegna lægri stýri­vaxta.

Þá námu leigu­tekjur alls 16,4 millj­örðum króna og hækk­uðu um 8,6 millj­arða króna milli ára, en tæp­lega átta þús­und fjöl­skyldur gáfu upp leigu­tekjur. Það eru 5,2 pró­sent fleiri en það gerðu árið 2020.

Aðgerðir gegn skattsvikum fjármagnseigenda boðaðar

Í stjórn­­­ar­sátt­­mála rík­­is­­stjórn­­­ar­innar frá 30. nóv­­em­ber 2021 sagði að skatt­­mats­­reglur verði end­­ur­­skoð­aðar og að komið verði í veg fyrir „óeðli­­lega og óheil­brigða hvata til stofn­unar einka­hluta­­fé­laga“. Þar sagði að enn fremur verði reglu­verk í kringum tekju­til­­flutn­ing „tekið til end­­ur­­skoð­unar til að tryggja að þau sem hafa ein­­göngu fjár­­­magnstekjur reikni sér end­­ur­­gjald og greiði þannig útsvar.“

Engar frek­­ari skýr­ingar voru gefnar í sátt­­mál­­anum á því hvernig end­­ur­­mat á skatt­­mats­­reglum eigi að fara fram, hvaða óeðli­­legu og óheil­brigðu hvata eigi að koma í veg fyrir né hvernig tryggja eigi að þeir sem hafi ein­­göngu fjár­­­magnstekjur verði látnir greiða útsvar og þeirra mála sem er að finna á þing­­mála­­skrá rík­­is­­stjórn­­­ar­innar bera það með sér að fjalla um ofan­­greind atriði.

Kjarn­inn spurð­ist fyrir um hvað fælist í þessu stefnu­máli rík­is­stjórn­ar­innar fyrr á þessu ári, en hvorki for­sæt­is- né fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytið gat svarað því.

Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra.
Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra.

Jóhann Páll Jóhanns­son, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, lagði í kjöl­farið fram fyr­ir­spurn á Alþingi um sama mál, og fékk efn­is­legt svar við henni í gær frá Bjarna Bene­dikts­syni, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra.

Í því svari, sem barst í lok apríl, sagði að end­ur­skoðun skatt­mats­regln­anna, til að koma í veg fyrir óeðli­lega og óheil­brigða hvata til stofn­unar einka­hluta­fé­laga, feli í sér að skatt­mat á hlunn­indum og reglur um reiknað end­ur­gjald verði teknar til ein­hvers­konar end­ur­skoð­un­ar.

Þeir sem eiga einka­hluta­fé­lag utan um ein­hvers­konar rekstur eiga að reikna sér laun fyrir þá vinnu sem felst í rekstr­in­um, sem getur eðli máls­ins sam­kvæmt verið alls­kon­ar. Rík­is­skatt­stjóri setur árlega reglur um hver lág­marks­laun fyrir störf eigi að vera.

Munur á skattprósentu getur falið í sér hvata

Í svari Bjarna sagði að gætt hafi „til­hneig­ingar til þess að þeir sem telja fram launa­tekjur á grund­velli reikn­aðs end­ur­gjalds gangi út frá lægstu við­mið­unum sem regl­urnar heim­ila og greiði sér í rík­ari mæli út hagnað eða arð af rekstri. Af því leiðir að þeir sem telja fram lægra reiknað end­ur­gjald en rétt mætti telja að séu tekjur þeirra í reynd greiða lægri tekju­skatt til rík­is­sjóðs en þeir sem starfa hjá ótengdum vinnu­veit­end­um. Lægri reiknuð laun þýða enn fremur að greitt er lægra trygg­inga­gjald og iðgjald til líf­eyr­is­sjóðs en ella væri.“

Í svari Bjarna sagði að munur tekju­skatti ann­ars vegar og sam­an­lögðum skatt­greiðslum vegna arðs og hagn­aðar hins vegar geta falið í sér hvata til að stofna félag utan um atvinnu­rekstur svo hagn­aður skatt­legg­ist í lægra hlut­falli en efsta þrep­inu. „Þessu til við­bótar er hætta á að því að lög­að­ilar og þeir sem stunda sjálf­stæðan atvinnu­rekstur gjald­færi útgjöld á rekstur sem rétt væri að þeir beri per­sónu­lega af launa­tekjum sín­um. Í því felst ígildi hlunn­inda eða tekna sem hvorki er greiddur tekju­skattur af í rík­is­sjóð né launa­tengd gjöld. Einnig að virð­is­auka­skattur af einka­kostn­aði sé tal­inn fram sem inn­skattur þannig að skil á virð­is­auka­skatti í rík­is­sjóð verði lægri sem því nem­ur.“

Ætla að skipa starfs­hóp

Jóhann Páll spurði einnig af hverju það hafi ekki verið gripið fyrr til aðgerða til að sporna við þessum hvötum sem eru inn­byggðir inn í skatt­mats­kerfi Íslands. Í svari ráð­herra var því ekki svarað beint heldur þar þar meðal ann­ars að í öðrum löndum hafi verið farnar „ýmsar aðrar leiðir en hér á landi til að reyna að sam­ræma skatt­lagn­ingu á tekjur af mis­mun­andi upp­runa en ljóst er að það getur verið vanda­samt í fram­kvæmd.“

Fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra sagði að rík­is­stjórnin ætli sér að koma í veg fyrir þessa hvata, í sam­ræmi við fyr­ir­heit í stjórn­ar­sátt­mála, með því að stofna sér­stakan starfs­hóp um verk­efn­ið. Erindi þess hóps verður skil­greint í skip­un­ar­bréfi. „Þar verður m.a. kveðið á um end­ur­skoðun og ein­földun reglna um reiknað end­ur­gjald í eigin atvinnu­rekstri og sam­spil við skatt­lagn­ingu á hagnað og arð sem og skatt­mat vegna hlunn­inda og úttekta eig­enda úr félög­um.“

Sá starfs­hópur hefur enn ekki verið skip­aður.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár