Bankasýslan borgaði LOGOS 6,2 milljónir og lét Morgunblaðið fá upplýsingar fyrirfram

Banka­sýslan sendi Morg­un­blað­inu einum fjöl­miðla fyr­ir­fram til­kynn­ingu um að lög­fræði­legur ráð­gjafi hennar hefði kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að jafn­ræðis hafi verið gætt við sölu á hlut rík­is­ins í Íslands­banka.

Lárus Blöndal, stjórnarformaður Bankasýslu ríkisins, og Jón Gunnar Jónsson, forstjóri stofnunarinnar.
Lárus Blöndal, stjórn­ar­for­maður Banka­sýslu rík­is­ins, og Jón Gunnar Jónsson, for­stjóri stofn­un­ar­innar. Mynd: RÚV

LOGOS lög­fræði­þjón­usta fékk tæp­lega 1,5 millj­ónir króna auk virð­is­auka­skatts frá Banka­sýslu rík­is­ins fyrir að skrifa lög­fræði­á­lit um jafn­ræði við sölu­með­ferð 22,5 pró­sent eign­ar­hluta rík­is­ins í Íslands­banka sem dag­sett er 11. maí 2022. Í því áliti var kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að jafn­ræðis hefði verið gætt.

LOGOS, sem var inn­lendur lög­fræði­legur ráð­gjafi Banka­sýsl­unnar í sölu­ferl­inu, mat ekki hvort sölu­með­ferðin eign­ar­hluta rík­is­ins í Íslands­banka stæð­ist reglur um jafn­ræði áður en salan fór fram, heldur ein­ungis eftir að hún var yfir­staðin.

Þetta kemur fram í svari Bjarna Bene­dikts­sonar, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, við fyr­ir­spurn Jóhanns Páls Jóhanns­sonar, þing­manns Sam­fylk­ing­ar­innar, um málið sem birt var á vef Alþingis í dag.

Alls fékk LOGOS um 6,2 millj­ónir króna í greiðslu frá Banka­sýsl­unni frá lokum mars­mán­aðar og til loka maí vegna ýmissa verka sem það vann fyrir stofn­un­ina. Meðal ann­ars fékk LOGOS um 2,8 millj­ónir króna fyrir að veita lög­fræði­ráð­gjöf og lög­fræði­þjón­ustu í mars og apríl 2022 sem tengd­ist rétt­ar­reglum um banka­leynd, per­sónu­vernd og skyldu eða heim­ild til að afhenda upp­lýs­ingar, skyldum gagn­vart þing­nefnd og svörum við fyr­ir­spurnum, sam­skiptum við Fjár­mála­eft­ir­lit Seðla­banka Íslands, rétt­ar­stöðu gagn­vart sölu­ráð­gjöfum, frétta­til­kynn­ingum, almennum spurn­ingum og svörum og ýmsum sam­skiptum.

Þar er til að mynda um að ræða álit sem LOGOS vann um hvort birta ætti lista yfir þá sem fengu að kaupa hlut rík­is­ins í Íslands­banka. Nið­ur­staða þess var að það ætti ekki að birta list­ann. Fjármála- og efna­hags­ráð­herra lagði hins vegar sjálf­stætt mat á nauð­syn þess og birti í kjöl­farið lista yfir kaup­endur.

Morgunblaðið fékk eitt upplýsingar fyrirfram

Jóhann Páll spurði einnig af hverju sú lög­manns­stofa sem kom að sölu­með­ferð­inni sem inn­lendur lög­fræði­legur ráð­gjafi Banka­sýslu rík­is­ins hefði verið falið að leggja mat á lög­mæti sölu­með­ferð­ar­innar eftir að salan var um garð gengin í stað þess að fela það annarri lög­manns­stofu sem hafði ekki komið áður að mál­inu.

[adspot]Í svari ráðu­neyt­is­ins segir að LOGOS hefði verið Banka­sýsl­unni til ráð­gjafar eftir söl­una í tengslum við ýmis álita­efni og fyr­ir­spurnir sem upp hafi komið enda sé stofn­un­inni heim­ilt, eins og stjórn­völdum almennt, að leita sér ráð­gjafar við þau verk­efni og ákvarð­anir sem hún hefur með höndum. „Tekið skal fram að LOGOS kom ekki að ákvörð­unum um skerð­ingu áskrifta og úthlutun til bjóð­enda og hafði því ekki áður lagt mat á þau álita­efni sem til umfjöll­unar voru í minn­is­blaði lög­manns­stof­unnar. Af þeim sökum m.a. þótti ekki sér­stakt til­efni til að leita annað um ráð­gjöf vegna þess­ara atriða.“

Í fyr­ir­spurn þing­manns­ins var farið fram á svör um af hverju jafn­ræðis hefði ekki verið gætt gagn­vart fjöl­miðlum þegar lög­fræði­á­litið var birt 18. maí síð­ast­lið­inn. Álitið var sent á fjöl­miðla klukkan sex að morgni en hafði þá þegar birst á for­síðu Morg­un­blaðs­ins auk þess sem ítar­leg frétt birt­ist á Inn­herja á Vísi klukkan 06:43.

Í svari ráð­herra segir að banka­sýslan hefði ákveðið að senda frétta­til­kynn­ingu um nið­ur­stöður athug­unar LOGOS mið­viku­dags­morg­un­inn 18. maí til helstu fjöl­miðla lands­ins. Ráð­gjaf­ar­fyr­ir­tæk­inu Athygli hafi verið falið að sjá um að senda út til­kynn­ingu fyrir hönd Banka­sýslu rík­is­ins. „Eft­ir­mið­dag­inn 17. maí var hringt í rit­stjórnir þeirra prent­miðla sem komu út um mið­viku­dags­morg­un­inn (Morg­un­blaðið og Frétta­blaðið) og kannað hvort þeir hefðu áhuga á að fjalla um efni frétta­til­kynn­ingar og birta nið­ur­stöður hennar í prentút­gáfum sem kæmu út á svip­uðum tíma 18. maí og til­kynn­ing yrði send út. Ekki náð­ist sam­band sím­leiðis við rit­stjórn Frétta­blaðs­ins en aðili á rit­stjórn Morg­un­blaðs­ins óskaði eftir að fá til­kynn­ingu senda eftir að hafa sam­þykkt skil­yrði um að efni hennar yrði ekki gert opin­bert fyrr en til­kynn­ing hefði verið send helstu fjöl­miðlum 18. maí kl. 06.00. Markmið Banka­sýsl­unnar var það eitt að fá umfjöllun um frétta­til­kynn­ing­una í sem flestum fjöl­miðlum. Þar sem aðeins náð­ist sam­band sím­leiðis við rit­stjórn Morg­un­blaðs­ins var til­kynn­ingin ein­ungis send Morg­un­blað­inu dag­inn áður til birt­ingar á sama tíma og til­kynn­ing var send öðrum miðlum 18. maí.“

Ráð­gjaf­inn komst að þeirri nið­ur­stöðu að jafn­ræði hefði ríkt

Í minn­is­­blað­inu sem LOGOS vann fyrir Banka­­sýslu rík­­is­ins var kom­ist að þeirri nið­­ur­­stöðu að ákvörðun um tak­­marka þátt­­töku í útboði á 22,5 pró­­senta hlut íslenskra rík­­is­ins við svo­­kall­aða hæfa fjár­­­festa án þess að gerð yrði krafa um lág­­marks­til­­boð hafi ekki falið í sér brot gegn jafn­­ræð­is­­reglu. Í útboð­inu var hlut­­ur­inn seldur til alls 207 fjár­­­festa undir mark­aðsvirði.

Þá taldi lög­­­manns­­stofan að full­nægj­andi ráð­staf­­anir hafi verið gerðar af hálfu Banka­­sýsl­unnar til að tryggja jafnt aðgengi hæfra fjár­­­festa að útboð­inu í laga­­legu til­­liti og að ákvörðun hennar um að selja ekki hlut til Lands­­bank­ans og Kviku banka, sem gerðu til­­­boð fyrir hönd velt­u­­bóka sinna, hafi stuðst við mál­efna­­leg sjón­­­ar­mið og hafi einnig verið í sam­ræmi við jafn­­ræð­is­­reglu.

[adspot]LOGOS var ráðið sem inn­­­lendur lög­­fræð­i­­legur ráð­gjafi Banka­­sýsl­unnar í tengslum við sölu­­með­­­ferð­ina á hlutnum í Íslands­­­banka 18. febr­­úar síð­­ast­lið­inn, en hlut­­ur­inn í bank­­anum var seldur með til­­­boðs­­fyr­ir­komu­lagi þann 22. mars. Minn­is­­blað hennar fjallar því um lög­­­mæti sölu­­með­­­ferðar sem stofan vann sjálf að. Óttar Páls­­son, einn með­­eig­enda LOGOS, er sá sem sendir minn­is­­blaðið á Banka­­sýsl­una.

LOGOS vann einnig minn­is­­blað fyrir Banka­­sýslu rík­­is­ins snemma í apríl um hvort að birta ætti lista yfir kaup­endur að hlutn­­um. Þá var það nið­­ur­­staða LOGOS að slíkt væri óvar­­legt. Fjár­­­mála- og efna­hags­ráð­herra lagði hins vegar sjálf­­stætt mat á birt­ingu list­ans og komst að annarri nið­­ur­­stöðu. Í til­­kynn­ingu sem birt­ist á vef stjórn­­­ar­ráðs­ins þegar list­inn yfir þá sem fengu að kaupa í Íslands­­­­­banka var birtur sagði að ráðu­­neytið hefði metið málið þannig að upp­­­lýs­ing­­­ar um við­­­skipti á milli rík­­­is­­­sjóðs og fjár­­­­­festa falli „ekki undir banka­­­leynd og með hlið­­­sjón af mik­il­vægi þess að gagn­­­sæi ríki um ráð­­­stöfun opin­berra hags­muna hefur ráð­herra ákveðið að birta yfir­­­lit­ið.“

Gagn­rýnendur segja söl­una ekki stand­­ast lög

Mikil gagn­rýni hefur verið á söl­una á hlutum rík­­is­ins í Íslands­­­banka, meðal ann­­ars út frá þeim for­­sendum að sölu­­fyr­ir­komu­lagið hafi ekki stað­ist þá kröfu um jafn­­ræði sem gerð er í lögum um sölu­­­með­­­­­ferð eign­­­ar­hluta rík­­­is­ins í fjár­­­­­mála­­­fyr­ir­tækj­­um.

Ein þeirra sem hefur sett fram slíka gagn­rýni er Sig­ríður Bene­dikts­dótt­ir, hag­fræð­ingur við Yale háskóla og fyrr­ver­andi fram­­­­kvæmda­­­­stjóri fjár­­­­­­­mála­­­­stöð­ug­­­­leika­sviðs Seðla­­­­banka Íslands, sem sagði við Kjarn­ann í mars að þegar tak­­mark­aður hópur fjár­­­festa sé val­inn til að kaupa magn bréfa sem sé svo lítið að það hefði ekki hreyft við mark­aðsvirði Íslands­­­­­banka ef þeir hefur keypt á eft­ir­­­mark­aði þá brjóti það í bága við 3. grein og mög­u­­­lega einnig 2. grein umræddra laga. „Á grund­velli þess þarf ein­hver að axla ábyrgð fyrir að hafa heim­ilað þetta og auk þess þarf að rifta þessum við­­­skiptum við ein­stak­l­inga og ehf., enda eru þau ekki í sam­ræmi við lög og kaup­endum og mið­l­­­urum hefði mátt vera það ljóst sem og því stjórn­­­­­valdi sem heim­il­aði þetta.“ Sig­ríður sat í rann­­sókn­­ar­­nefnd Alþingis um banka­hrunið sem skil­aði af sér umfangs­­mik­illi skýrslu í apríl 2010. Lögin um sölu­­með­­­ferð á hlut rík­­is­ins í fjár­­­mála­­fyr­ir­tækjum horfa meðal ann­­ars til ábend­inga rann­­sókn­­ar­­nefnd­­ar­inn­­ar.

Þriðja grein lag­anna fjallar um meg­in­­­reglur við sölu­­­með­­­­­ferð. Í grein­inni seg­ir: „Þegar ákvörðun er tekin um und­ir­­­bún­­­ing og fram­­­kvæmd sölu­­­með­­­­­ferðar eign­­­ar­hluta skal áhersla lögð á opið sölu­­­ferli, gagn­­­sæi, hlut­lægni og hag­­­kvæmni. Með hag­­­kvæmni er átt við að leitað sé hæsta verðs eða mark­aðs­verðs fyrir eign­­­ar­hluti. Þess skal gætt að skil­yrði þau sem til­­­­­boðs­­­gjöfum eru sett séu sann­­­gjörn og að þeir njóti jafn­­­ræð­­­is. Þá skal við sölu kapp­­­kosta að efla virka og eðli­­­lega sam­keppni á fjár­­­­­mála­­­mark­að­i.“

Seg­ist enn sann­færð­ari um lög­brot

Kristrún Frosta­dótt­ir, þing­­maður Sam­­fylk­ing­­ar­inn­­ar, er á meðal ann­­arra sem hafa sett fram sam­­bæri­­lega gagn­rýni og Sig­ríð­­ur. Hún hefur meðal ann­­ars, í grein sem hún birti á Vísi í byrjun maí með fyr­ir­­sögn­inni „Af­­ger­andi vís­bend­ingar um lög­­brot“, bent á að engin ástæða hafi verið fyrir því að selja litlum fjár­­­festum hlut rík­­is­ins í banka með afslætti, en minnsti fjár­­­fest­ir­inn keypti fyrir rúma milljón króna og alls 59 aðilar fengu að kaupa fyrir minna 30 millj­­­ónir króna.

Eftir að minn­is­blaðið birt­ist sagð­ist Kristrún enn sann­færð­ari en áður um að lög­brot hafi átt sér stað við banka­söl­una.

[links]Hún sagði í stöðu­upp­færslu á Facebook aug­ljóst að minn­is­blaðið væri við­bragð við grein hennar frá því í byrjun maí. „Minn­is­­blaðið á að svara rök­­semd­­ar­­færsl­unni sem birt­ist í grein minni um að jafn­­ræði hafi verið brotið við söl­una á bank­an­­um. Við lestur þess kemur hins vegar í ljós að engar nýjar upp­­lýs­ingar er þar að finna. Engin rök sem hafa ekki nú þegar heyrst frá Banka­­sýsl­unni og fjár­­­mála­ráð­herra. Aðeins rök sem einmitt þóttu ótrú­verðug og ég rakti í grein­inn­i.“

Hún sagði það líka athygl­is­vert að Banka­­sýslan, sem sé opin­ber stofnun á fjár­­lögum sem hafi starfs­­menn, hafi séð ástæðu til að leita til utan­­að­kom­andi lög­­fræð­ings til að vinna minn­is­­blað til að svara grein henn­­ar. „Þar sem engar nýjar upp­­lýs­ingar eða rök­­semd­­ar­­færslur koma fram. Margir hljóta að spyrja sig hvað var greitt fyrir þessa þjón­­ustu. Ef mönnum er alvara með að fara í saumana á þessu máli þá er það ekki gert með aðkeyptum lög­­fræð­i­á­litum sem bæta engu við mál­­flutn­ing­inn og er komið með for­­gangi til ákveð­inna fjöl­miðla til for­­síð­u­birt­ing­­ar.“

Salan á hlut rík­­is­ins í Íslands­­­banka er nú til skoð­unar hjá Fjár­­­mála­eft­ir­liti Seðla­­banka Íslands auk þess sem Rík­­is­end­­ur­­skoðun er að fram­­kvæma stjórn­­­sýslu­út­­­tekt á ferl­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

bankasýsla

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár