Segir marga hljóta að spyrja hvað LOGOS fékk greitt fyrir minnisblað um Bankasýsluna

Þing­maður Sam­fylk­ingar segir að ef mönnum sé alvara um að fara í saumana á söl­unni á Íslands­banka sé það ekki ekki gert með aðkeyptum lög­fræði­á­litum sem bæta engu við mál­flutn­ing­inn og er komið með for­gangi til ákveð­inna fjöl­miðla til for­síðu­birt­ingar.“

Kristrún Frostadóttir, þingmaður Samfylkingarinnar.
Kristrún Frosta­dóttir, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar. Mynd: Bára Huld Beck

Kristrún Frosta­dóttir, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, seg­ist enn sann­færð­ari en áður um að afger­andi vís­bend­ingar um að lög­brot hafi átt sér stað sölu á 22,5 pró­sent hlut rík­is­ins í Íslands­banka eftir að hafa lesið minn­is­blað sem LOGOS gerði fyrir Banka­sýslu rík­is­ins. Í minn­is­blað­inu er kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að engin lög hafi verið brotin. LOGOS, sem vann minn­is­blaðið, varð ráðið sem inn­lendur lög­fræði­legur ráð­gjafi Banka­sýsl­unnar í tengslum við sölu­með­ferð­ina á hlutnum í Íslands­banka 18. febr­úar, en hlut­ur­inn í bank­anum var seldur með til­boðs­fyr­ir­komu­lagi þann 22. mars. Minn­is­blað hennar fjallar því um lög­mæti sölu­með­ferðar sem stofan vann sjálf að.

Kristrún segir í stöðu­upp­færslu á Facebook að minn­is­blaðið sé aug­ljóst við­bragð við grein sem hún birti á Vísi í byrjun maí með fyr­ir­sögn­inni „Afger­andi vís­bend­ingar um lög­brot“. „Minn­is­blaðið á að svara rök­semd­ar­færsl­unni sem birt­ist í grein minni um að jafn­ræði hafi verið brotið við söl­una á bank­anum. Við lestur þess kemur hins vegar í ljós að engar nýjar upp­lýs­ingar er þar að finna. Engin rök sem hafa ekki nú þegar heyrst frá Banka­sýsl­unni og fjár­mála­ráð­herra. Aðeins rök sem einmitt þóttu ótrú­verðug og ég rakti í grein­inni.“

Ríkisstjórnin sé að vonast til að málið gleymist

Hún segir það líka athygl­is­vert að Banka­sýslan, sem sé opin­ber stofnun á fjár­lögum sem hafi starfs­menn, hafi séð ástæðu til að leita til utan­að­kom­andi lög­fræð­ings til að vinna minn­is­blað til að svara grein hennar. „Þar sem engar nýjar upp­lýs­ingar eða rök­semd­ar­færslur koma fram. Margir hljóta að spyrja sig hvað var greitt fyrir þessa þjón­ustu. Ef mönnum er alvara með að fara í saumana á þessu máli þá er það ekki gert með aðkeyptum lög­fræði­á­litum sem bæta engu við mál­flutn­ing­inn og er komið með for­gangi til ákveð­inna fjöl­miðla til for­síðu­birt­ingar.“

[adspot]Þar vísar Kristrún til þess að almanna­teng­ill sendi minn­is­blaðið á fjöl­miðla fyrir hönd Banka­sýslu rík­is­ins klukkan sex í morgun, en þá hafði for­síðu­frétt upp úr því þegar birst í Morg­un­blað­inu. Blaðið fékk því minn­is­blaðið á undan öðrum fjöl­miðlum.

[links]Kristrún segir að nú séum við að koma út úr sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingum og að rík­is­stjórnin sé að vona að banka­sölu­málið gleym­ist. „Eða ef ekki, að það snú­ist bara um Banka­sýsl­una, ekki fjár­mála­ráð­herra. Eins og rakið er ítar­lega í grein­inni sem þurfti lög­fræði­stofu til að svara er Rík­is­end­ur­skoð­andi ekki réttur far­vegur fyrir málið. Um það á málið að snú­ast núna. Þetta nýjasta útspil Banka­sýsl­urnar er ekki til að auka traustið, og er lýsandi fyrir það hvernig við­brögðin hjá Banka­sýsl­unni og rík­is­stjórn­inni hafa verið í þessu máli: því er ítrekað haldið fram að almenn­ingur skilji bara ekki hvað málið snú­ist um, hér sé aðeins verið að þyrla upp mold­viðri. En þegar kemur að því að efn­is­lega bregð­ast við mál­efna­legri gagn­rýni hefur ekk­ert komið sem dregur úr efa­semdum um að ferlið hafi stað­ist lög.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár