Fjögur kjaftshögg Árna Johnsen

Árni Johnsen varð þekktur fyrir að heilsa að sjómannasið árið 1984. Hann hélt uppteknum hætti og þrír popparar urðu fyrir hrammi hans.

Um verslunar­manna­helgina í ágúst 2005 kom upp mál á Þjóðhátíð í Vestmanna­eyjum. Árni Johnsen, fyrr­verandi alþingis­maður, var sakaður um að hafa kýlt Hreim Örn Heimisson söngvara á sviðinu í Herjólfsdal. Vitni sáu þegar atburðurinn varð og var staðfest að Árni hefði slegið söngvarann utan undir. Hreimur varð þriðji tónlistar­maðurinn til að verða fyrir hrammi þing­mannsins þáverandi. Áður höfðu Páll Óskar Hjálm­týsson og Erpur Eyvindarson lent í ónáð Árna þannig að af hlaust líkamlegt ofbeldi.

DV sagði frá málinu í fyrsta tölublaði eftir hátíðina. Þar segir að Árni og Hreimur séu ekki sammála um atburðinn sem varð þegar fjöldi söngvara var kominn á svið til að syngja þjóð­hátíðar­lagið Lífið er yndislegt. Þá birtist Árni og veittist að Hreimi. Hreimur Örn sagði við DV að Árni hefði kýlt sig en Árni sagðist aftur á móti hafa rekist óviljandi í hann og strax beðist afsökunar. Vitni lýstu því að Árni hefði rekið Hreimi kröftugan löðrung.

„Síminn hefur ekki stoppað hjá mér í dag og fólk hefur verið að hvetja mig til að kæra. Ég ætla hins vegar ekki að gera það. Ég leyfi þjóðinni að hlæja að honum í staðinn,“ Hreimur við blaðið.

Árni Johnsen segir ekkert til í þessum ásökunum. „Þetta er úlfaldi í mýflugu­mynd,“ sagði hann í samtali við DV.

„Ég var að taka saman hljóðnema á sviðinu þegar ég rakst óviljandi utan í hann. Þetta er bara misskilningur. Ég bað hann afsökunar strax og man ekki betur en að við höfum gert út um þetta strax á sviðinu,“ sagði Árni. Hreimur vísar því til föður­húsanna að Árni hafi beðið sig afsökunar á sviðinu. Hann sagði hegðun Árna hafa verið fáránlega.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Gamla fréttin

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár