Þarf ekki lengur starfsleyfi fyrir heimagistingu

Frá 1. júlí þarf ekki lengur að fá starfs­leyfi frá heil­brigð­is­nefnd til að starf­rækja heimagist­ingu í 90 daga eða minna. Nóg verður að skrá fast­eignir hjá sýslu­mann­inum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.

Búið er að fella niður kröfu um starfs­leyfi frá heil­brigð­is­nefnd þegar fólk leigir út íbúðir eða sum­ar­bú­staði í heimagist­ingu. Breyt­ingin tekur gildi 1. júlí næst­kom­andi, og þá þarf aðeins að skrá fast­eign­ina hjá sýslu­mann­inum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu eða á mið­lægu vef­svæði sé það fyrir hendi, og greiða átta þús­und krónur fyrir það.

Breyt­ingin lýtur ein­göngu að heimagist­ingu, sem er gist­ing á lög­heim­ili ein­stak­lings eða einni annarri fast­eign sem hann hefur per­sónu­leg not af, til dæmis sum­ar­bú­stað. Hámarks leigu­tími eru sam­tals 90 dagar á ári.

Þeir sem vilja leigja út heim­ili sitt í 90 daga eða skemur þurfa því aðeins að skrá fast­eign­ina í stað þess að sækja um starfs­leyfi. Áfram þarf að greiða skatta af leigu­tekj­unum eins og áður.

Ekki er búið að birta lögin á vef Alþingis, en í frum­varp­inu sem Björt Ólafs­dóttir umhverfis- og auð­linda­ráð­herra lagði fram í mars síð­ast­liðnum kemur fram að það sé stefna rík­is­stjórn­ar­innar að bæta við­mót og aðgengi að stjórn­sýslu og í því ljósi sé mik­il­vægt að end­ur­skoða og leggja mat á þörf­ina fyrir að til­tekin starf­semi sé háð starfs­leyfi. Því sé lagt til að dregið verði úr vægi starfs­leyf­is­skyldu og miðað við að ein­ungis verði gerð krafa um að starf­semi sé starfs­leyf­is­skyld þegar þess er þörf með til­liti til umfangs og eðlis starf­sem­innar. Því hafi ráð­herra heim­ild til að kveða á um að ákveðin starf­semi sé háð skrán­ing­ar­skyldu frekar en starfs­leyf­is­skyldu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár