Aðeins þrjú prósent aldraðra hagnast á tvöföldun frítekjumarks atvinnutekna

Tvö­földun frí­tekju­marks atvinnu­tekna aldr­aðra mun fyrst og fremst nýt­ast tekju­hærri karl­mönnum. Hækkun almenna frí­tekju­marks­ins myndi dreifast jafnar.

Í fjárlagafrumvarp vegna ársins 2022 sem kynnt var í byrjun desember kemur fram að setja á 540 millj­­ónir króna í að tvö­­falda frí­­tekju­­mark atvinn­u­­tekna hjá elli­líf­eyr­is­þegum úr 100 þús­und í 200 þús­und krón­ur.
Í fjár­laga­frum­varp vegna árs­ins 2022 sem kynnt var í byrjun des­em­ber kemur fram að setja á 540 millj­­ónir króna í að tvö­­falda frí­­tekju­­mark atvinn­u­­tekna hjá elli­líf­eyr­is­þegum úr 100 þús­und í 200 þús­und krón­ur.

Aðeins 1279 manns, eða þrjú pró­sent aldr­aðra, hafa beinan ávinn­ing af því að tvö­falda frí­tekju­mark atvinnu­tekna úr 100 þús­und krónum í 200 þús­und krónur. Af þessum þremur pró­sentum sem breyt­ingin gagn­ast eru tveir þriðju karlar. Þetta er meðal þess sem fram kemur í minn­is­blaði félags­mála­ráðu­neyt­is­ins fyrir efna­hags- og við­skipta­nefnd Alþingi

Í fjár­laga­frum­varp vegna árs­ins 2022 sem kynnt var í byrjun des­em­ber kemur fram að setja á 540 millj­­ónir króna í að tvö­­falda frí­­tekju­­mark atvinn­u­­tekna hjá elli­líf­eyr­is­þegum úr 100 þús­und í 200 þús­und krón­ur. Minn­is­blaðið var unnið að ósk Jóhanns Páls Jóhanns­sonar, þing­manns Sam­fylk­ing­ar­innar, sem óskaði eftir því á fundi efna­hags- og við­skipta­nefndar í síð­ustu viku. Fór hann fram á að í minn­is­blað­inu kæmi fram hver ábat­inn af tvö­földun frí­tekju­marks upp í 200 þús­und krónur dreif­ist eftir tekju­tí­undum og kyni. Hann hefur jafn­framt lagt fram fyr­ir­spurn til fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra varð­andi málið.

Kostn­aður rík­is­sjóðs við tvö­földun frí­tekju­marks atvinnu­tekna er áætl­aður um 560 millj­ónir króna og nýtur tekju­hæsta tíundin mests ávinn­ings af breyt­ing­unni en tvö­föld­unin hefur lítil sem engin áhrif hjá fyrstu sjö tekju­tí­und­unum.

Tvöföldun almenna frítekjumarksins gagnast 89 prósentum aldraðra

Í minn­is­blað­inu er einnig tekið saman áhrif tvö­földun á almenna frí­tekju­mark­inu úr 25.000 krónum í 50.000 krónur en það myndi dreifast jafnar milli kynja og skila sér betur til lág­tekju- og milli­tekju­hópa. Kostn­aður rík­is­sjóðs við þá aðgerð er áætl­aður um 5 millj­arðar króna og tal­inn gagn­ast um 35 þús­und ein­stak­lingum eða 89 pró­sent aldr­aðra sem eru á skrá Trygg­inga­stofnun rík­is­ins. Aðgerðin dreif­ist á allar tekju­tí­undir og kynja­skipt­ing í sam­ræmi við kynja­skipt­ingu þýð­is­ins. Hæsta tíundin fær hlut­falls­lega minnsta ávinn­ing­inn.

„Hækkun frí­tekju­marks atvinnu­tekna er besta mál en hitt er miklu brýnna. Verði frí­tekju­mark atvinnu­tekna hjá eldra fólki hækkað er auð­vitað lág­marks­krafa að frí­tekju­mark atvinnu­tekna hjá öryrkjum, sem hefur staðið í stað í ára­tug, hækki með sama hætti strax um ára­mótin,“ segir Jóhann Páll í færslu á Facebook þar sem hann vekur athygli á minn­is­blað­inu.

Jóhann Páll bendir á að með því að hækka frí­tekju­mark atvinnu­tekna aldr­aðra en láta almenna frí­tekju­markið óhreyft verði frí­tekju­mark atvinnu­tekna átta sinnum hærra heldur en það frí­tekju­mark sem tekur til líf­eyr­is­tekna eftir ára­mót. „Ég hef gagn­rýnt þessa for­gangs­röðun harð­lega og bent á að með þessu er m.a. fólk sem hefur unnið erf­ið­is­vinnu, getur ekki unnið lengur og treystir á greiðslur úr líf­eyr­is­sjóði látið sitja eftir,“ segir Jóhann Páll í færslu sinni á Facebook.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár