Varðskipið Þór til taks fyrir vestan

Skipinu siglt vestur í gær í varúðar­skyni. Mikið öldurót úti af Dýrafirði í morgun. Lítil skipa­umferð er á Vestfjörðum eða út af Norður­landi og liggja skip í vari.

Óveðrið er skollið á Vestfjörðum, Norð­vesturlandi og Norð­austurlandi. Gefin hefur verið út rauð viðvörun í fyrsta sinn á Ströndum og Norður­landi vestra. Hluti ástæðunnar fyrir rauðri viðvörun er að ölduhæð verður mikil.

Varð­skipið Þór sigldi vestur í gær vegna yfir­vofandi óveðurs og er til taks í Ísafjarðar­djúpi ef á þarf að halda en skipið hefur sinnt eftirliti á hafsvæðinu umhverfis landið undan­farna daga. Þá eru þyrlur Landhelgis­gæslunnar sömuleiðis til taks í Reykjavík.

Lítil skipa­umferð er nú á Vestfjörðum. Fjögur skip liggja í vari undir Grænuhlíð og eitt tankskip er á leið fyrir Hornbjarg og fer suður með Vestfjörðum. Engin skipa­umferð er á miðunum norður af landinu en stjórnstöð Landhelgis­gæslunnar fylgist vel með skipa­umferð umhverfis landið allt.

Meðfylgjandi myndbönd voru tekin af áhöfn varð­skipsins Þórs í morgun þegar skipið var út af Dýrafirði snemma í morgun. Eins og sjá má var þá farið að hvessa hressilega á Vestfjarða­miðum og gekk sjórinn yfir varð­skipið.

Á Norður­landi fer verður versnandi og er orðið bálhvasst á norðan­verðum Trölla­skaga. Stefán Vagn Stef­ánsson, yfir­lögreglu­þjónn á Sauðár­króki, sagði um klukkan 11:00 að þar væri vind farið að herða verulega og veðrið væri að skella á. Aðspurður sagðist hann telja, og raunar vita fyrir víst, að menn hefðu verið að í gærkvöldi og í morgun við að tryggja muni fyrir veðrinu, líta til með bátum og tryggja að skepnur á útigangi hefðu fóður.

Óveðrið færist suður og austur með landinu í dag. Gult ástand tekur við á höfuð­borgar­svæðinu með ört vaxandi norðanátt, 18 til 23 metrum á sekúndu í vestur­hverfum. Klukkan þrjú tekur við appelsínu­gult ástand, á höfuð­borgar­svæðinu með norðan stormi eða roki, 20-28 metrum á sekúndu. Hvassast verður vestantil í borginni, á Kjalarnesi og Mosfellsbæ. Í tilkynningu frá Veður­stofu Íslands er áhættunni lýst: „Samgöngu­truflanir eru líklegar á meðan veðrið gengur yfir og truflanir á flug­samgöngum. Hætt er við foktjóni og eru byggingar­aðilar hvattir til að ganga vel frá framkvæmda­svæðum. Búast má við hækkandi sjávar­stöðu vegna áhlaðanda og líkur á að smábátar geta laskast eða losnað frá bryggju. Fólki er bent á að ganga vel frá lausum munum og sýna varkárni.“ Appelsínu­gult ástand gildir til klukkan 7 í fyrra­málið í höfuð­borginni, en nær yfir allt land fram að aðfarar­nótt fimmtudags.

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár