Þorsteinn Már: Veiðigjöld taka ekki mið af núverandi aðstæðum

For­stjóri Samherja vill að íslenskur sjáv­ar­út­vegur njóti sann­mælis sem atvinnu­grein. Hann bendir á að Orku­veita Reykja­víkur þurfi ekki að greiða sér­stakt gjald fyrir afnot af vatns­auð­lindum þrátt fyrir mik­inn hagnað.

Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, vill að íslenskur sjávarútvegur fái að dafna í framtíðinni og njóta sannmælis sem atvinnugrein. Hann segir að veiðigjöld taki ekki mið af aðstæðum í umhverfi greinarinnar heldur þegar aðstæður hafi verið allt aðrar og betri. Þetta kom fram í ræðu sem hann flutti á aðalfundi Síldarvinnslunnar síðastliðinn miðvikudag og var birt á vef fyrirtækisins í dag. Þorsteinn er stjórnarformaður Síldarvinnslunnar og Samherji er stærsti einstaki eigandi hennar.

Hagnaður Síldarvinnslunnar árið 2017 var 2,9 milljarðar króna. Samherjasamstæðan, sem starfar á sviði sjávarútvegs bæði hérlendis og erlendis, hagnaðist um 86 milljarða króna á árunum 2010-2016. Árið 2016 var hagnaður hennar fyrir afskriftir og fjár­magnsliði 17 millj­arðar króna.

Þorsteinn sagði í ræðu sinni að Síldarvinnslan færi ekki varhluta af breytingum á gengi krónunnar, hækkun sumra kostnaðarliða og sveiflum í afurðarverði alþjóðalega. Allt væru þetta þó breytur sem væri erfitt að stjórna og hafa áhrif á.

Hins vegar væru aðrar breytingar sem Íslendingar hefðu stjórn á. Þar nefndi hann til að mynda veiðigjöld og sagði að Síldarvinnslan hefði greitt 250 milljónir króna í slík á fyrstu fjórum mánuðum yfirstandandi fiskveiðiárs. „Veiðigjöldin taka ekki mið af aðstæðum í umhverfi okkar í dag heldur þegar aðstæður voru allt aðrar og betri. Til samanburðar borgar Orkuveita Reykjavíkur engin gjöld þrátt fyrir afnot af vatnsauðlindum en hagnaður hennar á síðasta ári nam 16,3 milljörðum króna. Í þessu sambandi má einnig nefna að húshitunarkostnaður er mjög breytilegur eins og alkunna er, en hluti landsmanna á kost á að kynda með heitu vatni sem óneitanlega er sameiginleg auðlind þjóðarinnar. Í Neskaupstað kostar til dæmis tvöfalt meira að kynda 140 fermetra hús en í Reykjavík.“ Orkuveita Reykjavíkur er að öllu leyti í opinberri eigu.

Þorsteinn tók líka dæmi af auknum kostnaði við eftirlitsmann um borð í frystiskipi, kolefnisgjöld sem flotinn þarf að greiða og stimpilgjöld sem greidd eru þegar ný skip eru keypt.

Hann sagði að fyrirtæki eins og Síldarvinnslan veiti mörgum atvinnu og skapi störf sem mörg hver eru vel launuð og eftirsótt. „Margfeldisáhrif fyrirtækja eins og Síldarvinnslunnar eru ótvíræð. Þrátt fyrir þetta verður að viðurkennast að sátt um greinina er vart til staðar þó hún sé skattlögð langt umfram aðrar atvinnugreinar. Þá ber að hafa í huga að íslenskur sjávarútvegur er í samkeppni við sjávarútveg annarra þjóða en erlendis finnst engin hliðstæða hvað álögur varðar. Vonandi fær íslenskur sjávarútvegur að dafna í framtíðinni og njóta sannmælis sem atvinnugrein. Það er staðreynd að utan fjármálafyrirtækja og opinberra aðila eru fjögur sjávarútvegsfyrirtæki hæstu skattgreiðendur landsins ásamt Icelandair og Síldarvinnslan er í þeim hópi.“

Samkvæmt nýlegri spá, sem gerð var fyrir stjórnvöld, segir að tekjur sjávarútvegs hafi dreg­ist saman úr 249 millj­örðum króna árið 2016, sem var metár, í 240 millj­arða króna í fyrra.

Sam­an­lagðar arð­greiðslur sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja frá byrjun árs 2010 og út árið 2016 voru 65,8 millj­arðar króna. Eigið fé þeirra frá hruni og til loka árs 2016 batn­aði um 300 millj­arða króna. Því hefur hagur sjáv­ar­út­veg­ar­ins vænkast um 365,8 millj­arða króna á örfáum árum.

Hæstu veiði­gjöldin greiddi sjáv­ar­út­veg­ur­inn vegna fisk­veiði­árs­ins 2012/2013, en þá greiddi útgerðin 12,8 millj­arða króna í rík­is­sjóð vegna veiði­gjalda. Árin þar á eftir lækk­uðu gjöldin skref fyrir skref niður í 4,8 millj­arða árið 2016. Áætlað er að þau verði rúmlega tíu milljarðar króna vegna yfirstandandi fiskveiðiárs.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár