Hefur áhyggjur af því að rammaáætlun verði ekki afgreidd úr nefnd á þessu þingi

Einungis sex virkir þingdagar eru eftir fyrir sum­ar­frí sam­kvæmt starfs­á­ætlun þings­ins og ramma­á­ætlun var ekki á dag­skrá umhverf­is- og sam­göngu­nefndar í morg­un.

Þórunn Sveinbjarnardóttir þingmaður Samfylkingarinnar.
Þórunn Svein­bjarn­ar­dóttir þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar. Mynd: Bára Huld Beck

„Það setur að mér ugg og ég er farin að hafa áhyggjur af því að áætlun um nýt­ingu og vernd nátt­úru­svæða, svokölluð ramma­á­ætlun, verði ekki afgreidd úr umhverfis- og sam­göngu­nefnd á þessu þingi. Það er full ástæða til að hafa áhyggjur af því.“

Þetta kom fram í máli Þórunnar Svein­bjarn­ar­dóttur þing­manns Sam­fylk­ing­ar­innar á Alþingi í dag.

Hún benti á að ramma­á­ætlun hafi ekki verið á dag­skrá umhverfis- og sam­göngu­nefndar í morgun. Samkvæmt starfs­á­ætlun séu sex þingdagar virkir eftir þangað til þingið fer í sum­ar­frí.

Hvað veldur?

Núgild­andi ramma­á­ætl­un, þar sem virkj­ana­hug­myndir eru flokk­aðar í nýt­ing­ar-, bið- og vernd­ar­flokk, er frá árinu 2013 og er því orðin níu ára göm­ul.

Þórunn rifj­aði það upp að mælt hefði verið fyrir áætl­un­inni í fjórða sinn frá því að hún leit dags­ins ljós fyrir tæpum sex árum á þing­inu en fimm sinnum hefði þessi sama áætlun, 3. áfangi ramma­á­ætl­unar, verið á mála­skrá þeirrar rík­is­stjórnar sem hér hefur verið við völd.

„Sömu flokkar sem seint og snemma þreyt­ast ekki á því að ræða um mik­il­vægi end­ur­nýj­an­legrar raf­orku eða raf­orku­fram­leiðslu og nauð­syn orku­skipta virð­ast núna sitja á höndum sér þegar kemur að afgreiðslu þessa mik­il­væga áfanga í ramma­á­ætlun og ákvörð­unar um nýt­ingu og vernd nátt­úru­svæða hér á landi.

Á sama tíma og 4. áfang­inn er um það bil að verða til­bú­inn og hafin er vinnsla við 5. áfang­ann situr 3. áfangi ramma­á­ætl­un­ar­innar fastur í hátt­virtri umhverfis- og sam­göngu­nefnd eina ferð­ina enn, rétt um sex árum eftir að hann leit dags­ins ljós. Það er ástæða til að spyrja, frú for­seti: Hvað veldur?“ spurði hún í lok ræðu sinnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár