Rammaáætlun verður lögð fram í fjórða sinn af fjórða ráðherranum

Sautján virkj­ana­kostir eru í nýt­ing­ar­flokki til­lögu að ramma­á­ætlun sem nú hefur verið dreift á Alþingi. Þetta er sama til­laga og fyrst var lögð fram haustið 2016 fyrir utan að tíu svæði í vernd­ar­flokki hafa verið frið­lýst og eru því ósnert­an­leg.

Eldvörp eru meðal þeirra landsvæða sem lagt er til að fari í orkunýtingarflokk rammaáætlunar.
Eldvörp eru meðal þeirra land­svæða sem lagt er til að fari í orku­nýt­ing­ar­flokk ramma­á­ætl­unar. Mynd: Ellert Grétarsson

Guð­laugur Þór Þórð­ar­son, umhverfis-, orku- og lofts­lags­ráð­herra telur mik­il­vægt að Alþingi fjalli efn­is­lega um til­lögur verk­efn­is­stjórnar þriðja áfanga ramma­á­ætl­unar sem beðið hafa afgreiðslu þings­ins í að verða fimm og hálft ár. Hann er fjórði ráð­herr­ann sem mun leggja þings­á­lykt­un­ar­til­lögu um flokkun virkj­un­ar­kosta í þriðja áfanga áætl­un­ar­innar fram og í dag var til­lagan birt á vef þings­ins og er sam­kvæmt þing­mála­skrá á dag­skrá þess í lok mars.

Tillagan er nær sam­hljóða þeirri sem þegar hefur verið lögð fram í þrí­gang að því und­an­skildu að virkj­ana­kostir og svæði í vernd­ar­flokki sem þegar hafa verið frið­lýstir hafa verið felldir úr til­lög­unni. Allar voru frið­lýs­ing­arnar gerðar í tíð Guð­mundar Inga Guð­brands­sonar í stóli umhverf­is­ráð­herra og sam­kvæmt þeim verður ekk­ert af tíu áður fyr­ir­hug­uðum virkj­unum: Hólmsár­lóni, Tungna­ár­lóni, Gýgjar­foss­virkjun, Blá­fells­virkjun, Gjá­stykki, Brenni­steins­fjöll, Hvera­botnum, Neðri-Hverdölum, Kisu­botnum og Þver­felli.

Lagt er til að sautján nýir virkj­ana­kostir fari í orku­nýt­ing­ar­flokk áætl­un­ar­innar, sjö í vatns­afli og tíu í háhita. Þá eru 37 kostir í bið­flokki til­lög­unnar, m.a. vegna þess að verk­efn­is­stjórn taldi að á sínum tíma fylgdi þeim ekki nægj­an­leg gögn, og í vernd­ar­flokk er lagt til að sextán virkj­ana­kostir fari og er þá búið að fella út þau svæði sem nú njóta frið­lýs­ingar.

Núgild­andi ramma­á­ætlun, annar áfangi, var sam­þykktur á Alþingi í jan­úar árið 2013 eða fyrir níu árum síðan. Einn virkj­ana­kostur til við­bótar hefur þó síðan þá bæst við í orku­nýt­ing­ar­flokk, Hvamms­virkjun sem Lands­virkjun áformar í neðri hluta Þjórsár og var það gert með sér­stakri afgreiðslu þings­ins árið 2015.

Tvær aðrar virkj­anir í neðri hluta Þjórsár fengu svo með­ferð verk­efn­is­stjórnar þriðja áfang­ans, Urriða­foss­virkjun og Holta­virkjun, og eru í orku­nýt­ing­ar­flokki til­lög­unnar sem nú fer enn einu sinni fyrir þingið.

Auk þess­ara þriggja virkj­ana­hug­mynda í Þjórsá eru tvær aðrar frá Lands­virkjun í nýt­ing­ar­flokki sam­kvæmt til­lög­unni: Skrokköldu­virkjun og Veitu­leið Blöndu­virkj­unar.

Skrokköldu­virkjun er áformuð á mið­há­lend­inu og var rök­stuðn­ingur verk­efn­is­stjórnar um að setja hana í nýt­inga­flokk sá að þar væri þegar búið að gera miðl­un­ar­lón (Hágöngu­lón), stíflur og til­rauna­bor­holur og ekki því lengur um óraskað svæði að ræða. Þessi hug­mynd féll þó ekki vel í kramið hjá þing­mönnum Vinstri grænna er hún var fyrst lögð fram árið 2016 og aftur 2017. Katrín Jak­obs­dóttir, sem nú er orðin for­sæt­is­ráð­herra í rík­is­stjórn­ar­sam­starfi með Fram­sókn­ar­flokki og Sjálf­stæð­is­flokki, sagð­ist vilja að Skrokkalda yrði „tekin út fyrir sviga“ á meðan áform um hálend­is­þjóð­garð væru til skoð­unar.

Að auki eru tvær virkj­anir á Vest­fjörðum, Aust­ur­gils­virkjun og Hval­ár­virkjun, í orku­nýt­ing­ar­flokki til­lög­unnar, en sú seinni var þegar komin þangað í öðrum áfanga sem nú er í gildi. Það sama má segja um Veitu­leið Blöndu­virkj­unar.

Þeir háhita­kostir sem eru í orku­nýt­ing­ar­flokki til­lög­unnar eru m.a. Aust­urengjar, Sveiflu­háls og Sandfell á Krýsu­vík­ur­svæð­inu, Eldvörp á Svarts­eng­is­svæð­inu, frek­ari virkjun Kröflu­svæð­is­ins og Bjarn­arflags­virkjun.

Hægt er að færa virkj­ana­kosti úr nýt­ing­ar­flokki þar til Orku­stofnun hefur gefið út virkj­ana­leyfi, rétt eins og hægt er að færa kosti úr vernd­ar­flokki ef þeir hafa ekki fengið frið­lýs­ingu.

Vilja stækka biðflokkinn

Í vernd­ar­flokki til­lög­unnar sem Guð­laugur Þór mun leggja fram eru m.a. virkj­ana­hug­myndir í Hér­aðs­vötnum, Skjálf­anda­fljóti, Mark­ar­fljóti og efst í Þjórsá (Kjalöldu­veita og Norð­linga­öldu­veita). Þar er enn­fremur Búlands­virkjun í Skaftá. HS Orka sagði við Kjarnann nýverið að hún ætti fullt erindi i nýt­inga­flokk.

Í stjórn­ar­sátt­mála rík­is­stjórnar Katrínar Jak­obs­dóttur frá því nóv­em­ber er að finna lof­orð um að lokið verði við þriðja áfanga ramma­á­ætl­unar en því er hins vegar bætt við í sömu setn­ingu að kostum í bið­flokki verði fjölgað. Slíkt getur aðeins þýtt tvennt: Að kostir verði færðir úr annað hvort vernd­ar­flokki eða nýt­ing­ar­flokki við þing­lega með­ferð til­lög­unnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár