Arctica Finance sektað um 72 milljónir króna

Fyrir­tækið notaðist við ólöglegt kaupa­aukakerfi fyrir starfs­menn.

Hinn 20. september 2017 tók stjórn Fjármála­eftirlitsins (FME) þá ákvörðun að leggja stjórnvalds­sekt að fjárhæð 72 milljónir króna á Arctica Finance ehf. vegna brota félagsins gegn 57. gr. a laga nr. 161/2002 um fjármála­fyrirtæki (fftl.) og reglum nr. 700/2011 og 388/2016 um kaupauka­kerfi.

Brotin fólust í því að hafa greitt starfs­mönnum kaupauka í formi arðs af B, C og D hlutum í félaginu frá og með 2012 til og með 2017.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá FME.

„Við ákvörðun sektar­fjárhæðar var litið til markmiðs kaupauka­reglna fjármála­fyrirtækja, sem er að koma í veg fyrir óhóflega áhættu í starfsemi þeirra með áhrifum á fjármála­stöðugleika og almenning, að teknu tilliti til þess að Arctica er verðbréfa­fyrirtæki. Þá var horft til þess að brotin ná yfir sex ára tímabil, að stór hluti starfs­manna naut kaupauka­greiðslnanna, að kaup­aukarnir voru bundnir við árangur þeirrar deildar sem viðkomandi starfs­maður starfaði í, að kaup­aukarnir voru í sumum tilvikum margföld föst laun viðkomandi starfs­manns og að reglu­verði félagsins var greiddur kaupauki. Með hliðsjón af ofan­greindum atriðum þótti stjórnvalds­sekt hæfilega ákveðin 72 milljónir,“ segir í úrskurðar­orðum.

Kvika banki hefur lagt niður sitt kaupauka­kerfi, eftir rannsókn FME, og óskað eftir því að ljúka málinu með sátt, að því er fram kom í Frétta­blaðinu í gær. Starfs­menn sem áttu B-hlutabréf fengu um 400 milljónir í arð, en FME telur þetta fyrir­komulag ekki hafa verið lögum samkvæmt.

Arctica hyggst ekki una niður­stöðu FME, og ætlar að stefna eftirlitinu, þar sem það er mat Arctica að kerfið hafi verið lögum samkvæmt.

Í rökstuðningi FME fyrir ákvörðuninni varðandi Arctica Finance var litið til þess hvernig fyrir­tækið hafði samið við starfs­fólk, og hvert væri markmið þess fyrir­komulags sem var fyrir hendi.

„Fjármála­eftirlitið telur að almennt séð sé starfs­mönnum fjármála­fyrirtækja, öðrum en starfs­mönnum innri endur­skoðunar, heimilt að fjárfesta í hluta­bréfum viðkomandi fjármála­fyrirtækis. Sömuleiðis er viðurkennt að starfs­menn sem fjárfesta í fjármála­fyrirtæki sem þeir starfa hjá eigi almennt séð kröfu til arðs af fjár­festingum sínum, án þess að arðgreiðslurnar þurfi endilega að teljast til kaupauka.

Í því máli sem hér var til skoðunar taldi Fjármála­eftirlitið þó ýmis atriði valda því að rétt væri að telja arðgreiðslur vegna B, C og D hluta í Arctica til kaupauka í skilningi 57. gr. a fftl. og í skilningi reglna nr. 700/2011 og 388/2016:

Í fyrsta lagi mætti ráða að engir aðrir en starfs­menn Arctica hefðu fengið að kaupa hlutabréf í umræddum flokkum og þá aðeins í þeim flokki sem tengdur væri afkomu deildarinnar sem starfs­maðurinn starfaði í.

Í öðru lagi hefði verið verulegur munur á fjár­festingu starfs­mannanna og þeirri hagnaðarvon sem þeir hefðu getað gert til hluta­bréfanna væri horft til arðgreiðslna til hluthafa í B, C og D flokki á árunum 2011 til 2017, sem námu samtals 715.043.691 krónum. Af því mætti ráða að verulegur munur væri á þeirri fjárhags­legu áhættu sem hluthafar B, C og D flokks hefðu tekið með fjár­festingum sínum og hagnaðar­vonar þeirra.

Í þriðja lagi kveða samþykktir Arctica á um að við starfslok hjá félaginu skuli hluthafi í B, C og D flokki sæta innlausn á fram­reiknuðu nafnverði. Sú litla fjárhags­lega áhætta sem hluthafar hefðu tekið með fjár­festingu í bréfunum hefði orðið enn minni við það að þeir gátu verið vissir um að við starfslok fengju þeir bréfin innleyst á sama gengi og þeir keyptu þau á. Arctica hefur gengið lengra við starfslok starfs­manna og bætt við nafn­verðið fjárhæð sem svaraði til hlut­deildar hinna seldu hluta í þeim arði sem viðkomandi flokkur átti rétt til á því tímamarki sem starfslok viðkomandi starfs­manns áttu sér stað. Fjár­máleftirlitið taldi síðastnefnda atriðið sýna að félagið hefði sjálft meðhöndlað arðgreiðslurnar sem hluta af launum starfs­mannanna.

Í fjórða lagi kemur fram í ráðningar­samningum Arctica, við þá starfs­menn eignar­stýringar­sviðs sem jafnframt voru hluthafar í C flokki, undir liðnum „Laun“ að hlut­höfunum sé tryggð greiðsla frá félaginu ef nýr aðili eignast meirihlutann í Arctica. Taldi Fjármála­eftirlitið þetta sýna að líta bæri á handhöfn a.m.k. C hlutanna sem lið í launa­kjörum starfs­manna, frekar en fjár­festingu í félaginu.

Fjármála­eftirlitið taldi að ofan­greind atriði yllu því að ekki væri unnt að leggja arðgreiðslur til hluthafa B, C og D flokka að jöfnu við venjulegar arðgreiðslur af fjár­festingum í hluta­bréfum. Arðgreiðslur til hluthafa B, C og D flokks fólust í greiðslum í reiðufé. Endanlega fjárhæð var ekki unnt að sjá fyrirfram með nákvæmum hætti, enda var fjárhæðin ákvörðuð eftir reikni­reglu sem tók tillit til rekstrar­árangurs þeirrar deildar, sem viðkomandi flokkur var tengdur við og hluthafar störfuðu í. Af fyrir­liggjandi gögnum varð ekki ráðið að greiðslurnar hefðu verið þáttur í föstum starfs­kjörum starfs­manna félagsins,“ í tilkynningu Fjármála­eftirlitsins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár