Nauðgunarrannsókn á hendur Assange hætt

Svíar hafa hætt rannsókn á nokkrum af ásökununum á hendur Julian Assange, stofnanda Wikileaks, því kæru­frestur er að renna út. Bretar segja Ekvador hafa hindrað framgang rétt­vísinnar með því að hýsa Assange í sendiráði sínu í London. Sky News greinir frá þessu.

Saksóknari í Svíþjóðhefur haft Assange til rann­sóknar fyrir meinta nauðgun og kynbundið ofbeldi sem á að hafa átt sér stað í ágúst 2010. Nauðgunar­rann­sókninni hefur verið hætt. Assange hefur haldið sig í sendiráði Ekvador síðan í júní 2012 þegar Bretar samþykktu að framselja hann til Svíþjóðar.

Hugo Swire, undir­ráðherra í utan­ríkis­ráðuneyti Breta, hefur staðfest að sendi­herra Bretlands í Quito, höfuðborg Ekvador, muni leggja formleg mótæli fyrir stjórn­völd þar í landi. Bretar séu skyldugir til að framselja Assange.

Sænski saksókn­arinn lét hafa eftir sér að Julian Assange hafi „forðast ákæru­valdið með því að leita hælis í sendiráði Ekvador.“ Jen Robinson, einn lögfræðinganna í teymi Assange, hafnar þessum ásökunum Svía og segir skjólstæðing sinn hafa verið tilbúinn til að bera vitni í sendi­ráðinu. Búið var að semja um dagsetningu yfirheyrslu í London í júní síðastliðnum en sænsk yfirvöld hættu við á síðustu stundu.

Assange hefur ekki hætt sér út fyrir lóð sendi­ráðsins í London af ótta við að vera fram­seldur til Svíþjóðar. Þaðan telur hann sig verða fram­seldan til Banda­ríkjanna fyrir að birta leynigögn á vef Wikileaks.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár