Stendur algjörlega með breytingum á rammaáætlun

For­sæt­is­ráð­herra var spurð á þingi í dag út í „sinna­skipti“ VG hvað ramma­á­ætlun varðar. Hún segir að horfast verði í augu við það að Alþingi hafi ekki náð saman um vissa áfanga áætl­un­ar­innar hingað til.

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra.
Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Katrín Jak­obs­dóttir, for­sæt­is­ráð­herra og for­maður Vinstri grænna (VG), seg­ist algjör­lega standa með breyt­ingum meiri­hluta umhverfis- og sam­göngu­nefndar Alþingis á þings­á­lykt­un­ar­til­lögu að þriðja áfanga ram­m­á­ætl­unar sem birtar voru um helg­ina. Hún vill ekki láta hjá líða að afgreiða ramma­á­ætlun í ein­hverri mynd. „Ég held að þá værum við fyrst komin í vanda.“

Þetta kom fram í máli ráð­herr­ans í óund­ir­búnum fyr­ir­spurna­tíma á Alþingi í dag en Þórunn Svein­bjarn­ar­dóttir þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar spurði hana meðal ann­ars hvað hefði breyst í við­horfi VG á síð­ustu árum í umhverf­is­vernd. „Með hvaða rökum styðja Vinstri græn færslu Kjalöldu­veitu og virkj­un­ar­kost­anna í Hér­aðs­vötnum úr vernd­ar­flokki í bið­flokk?“ spurði hún meðal ann­ars.

Þórunn sagð­ist í upp­hafi fyr­ir­spurnar sinnar fagna því að það hillti undir afgreiðslu 3. áfanga ramma­á­ætl­unar á Alþingi vonum seinna en það væri ekki sama hvernig það væri gert.

„Sú var tíðin að Vinstri­hreyf­ingin – grænt fram­boð gaf sig út fyrir að vera flagg­skip nátt­úru­verndar hér á landi og tók það hlut­verk alvar­lega oft­ast nær. Það urðu hér nokkur tíð­indi í lið­inni viku þegar VG ákvað að setja nafn sitt við breyt­ing­ar­til­lögu meiri­hluta umhverfis- og sam­göngu­nefndar við afgreiðslu 3. áfanga rammans úr nefnd, reyndar á þann veg að annar tveggja full­trúa VG í nefnd­inni, Bjarni Jónsson, þing­maður Norð­vest­ur­kjör­dæmis, studdi þá til­lögu ekki,“ benti Þórunn á.

Þórunn rifj­aði upp orð Katrínar í umræðum um rammann á Alþingi árið 2017 þegar hún sagði að að sjálf­sögðu væri margt gott í þeirri áætlun sem lögð var óbreytt fram frá fyrra þingi, þá sér­stak­lega hvað varðar vernd­ar­flokk­inn, og kæmi kannski ekki á óvart að hún fagn­aði því sér­stak­lega. „Ég horfi þá til að mynda til Skjálf­anda­fljóts, Skaftár og fleiri þátta, og Norð­linga­öldu­veitu sem hefur tals­vert verið til umræðu í þessum sal á und­an­förnum árum. Og svo auð­vitað jök­ul­vötnin í Skaga­firði,“ sagði Katrín árið 2017.

Þórunn rifj­aði það einnig upp að Katrín hefði verið á þings­á­lykt­un­ar­til­lögu VG um frið­lýs­ingu aust­ari og vest­ari Jökulsár í Skaga­firði árið 2008.

„Eftir að hafa fylgst með póli­tík Vinstri grænna í meira en tvo ára­tugi á ég bágt með að skilja þessi sinna­skipti,“ sagði þing­mað­ur­inn og spurði for­sæt­is­ráð­herra hvað hefði breyst. „Með hvaða rökum styðja Vinstri græn færslu Kjalöldu­veitu og virkj­un­ar­kost­anna í Hér­aðs­vötnum úr vernd­ar­flokki í bið­flokk?“

Búin að ræða málin i sex ár

Katrín svar­aði og sagði að sú ramma­á­ætlun sem nú væri lögð fram í fjórða skipti hefði fyrst verið lögð fram árið 2016. „Aldrei hefur umfjöllun verið lokið, meðal ann­ars vegna gagn­rýni þeirrar sem hér stendur.“

Hún sagði að Þórunn hefði sleppt því að nefna að ráð­herr­ann hefði bent á að í nýt­ing­ar­flokki væru kostir eins og Skrokkalda inni á miðju hálendi sem þyrfti aug­ljós­lega að skoða betur út frá hug­myndum um mögu­legan mið­há­lend­is­þjóð­garð og út frá þeirri lands­lags­heild sem þar væri að finna og ósnortnum víð­ernum.

„Þar ræddi ég líka, í þessum ræðum, af því að ég man þær nú ágæt­lega, um virkj­anir í neðri hluta Þjórsár og þá stað­reynd að sam­fé­lags­leg áhrif af þeim virkj­unum hefðu ekki verið metin með full­nægj­andi hætti. Og hver er til­laga meiri­hluta umhverfis- og sam­göngu­nefndar í þessum efnum? Jú, það er að færa nákvæm­lega þessa kosti í bið­flokk af því að þá þurfi að meta betur.

Vissu­lega er líka verið að leggja til færslu á kostum úr vernd­ar­flokki í bið. En verðum við ekki ein­fald­lega að horfast í augu við það, Alþingi, að við höfum ekki náð saman um þennan áfanga ramma­á­ætl­unar í þau þrjú skipti sem hann hefur verið lagður fram? Verðum við ekki að taka það til opin­skárrar umræðu að lík­lega eru þetta of margir kostir til að geta tekið afstöðu til þeirra í einu ef marka má þessa sögu, sem ég tek alvar­lega? Þetta eru sex ár sem við höfum verið að ræða þetta mál og þetta þarf ekki að koma jafn mikið á óvart og ein­hverjir hátt­virtir þing­menn telja í ljósi þess að í stjórn­ar­sátt­mála er sér­stak­lega talað um að eðli­legt sé að horfa til þess að bið­flokkur verði stækk­aður þannig að þetta sé gert í minni áföngum,“ sagði Katrín í svari sínu.

Hún benti á að Þórunn hefði nefnt í fyr­ir­spurn sinni Skaftá og Skjálf­anda­fljót sem eru í vernd­ar­flokki. „Og af því að hátt­virtur þing­maður spyr um Vinstri­hreyf­ing­una – grænt fram­boð þá held ég að það sé ágætt að rifja það upp að ýmis svæði eru ekki undir í þess­ari áætlun, til dæmis ekki þau tíu svæði sem voru frið­lýst á tíma Vinstri grænna í umhverf­is­ráðu­neyt­inu, sem eru auð­vitað líka mikil tíma­mót í þess­ari umræðu,“ sagði hún.

Öllu snúið á haus

Þórunn sagð­ist í fram­hald­inu ekki deila við for­sæt­is­ráð­herra um þau atriði sem hún nefndi í sinni ræðu.

„Það er öllu snúið á haus þegar kemur að var­úð­ar­regl­unni og færslu á kostum úr vernd í bið – úr vernd í bið. Það vill þannig til að við erum að tala um kosti sem hafa eitt­hvert hæsta vernd­ar­gildi sam­kvæmt mati fag­hópa sem unnið hafa fyrir verk­efn­is­stjórn­ina og þeir eru í vernd­ar­flokki vegna nátt­úru­vernd­ar­hags­muna. Það er ekki í sam­ræmi við var­úð­ar­regl­una að taka kosti úr vernd í bið,“ sagði hún og bætti því við að þetta gengi hrein­lega ekki upp.

„Það hljóta því að vera ein­hverjar aðrar ástæður þar að baki. Það hljóta þá að vera ein­hverjar aðrar ástæður þar að baki af því það eru ekki nátt­úru­vernd­ar­á­stæð­urnar sem eru þar að baki.“ Hún spurði því ráð­herr­ann hvernig stæði á því að VG stæði að þeirri ákvörðun að færa Hér­aðs­vötn og Kjalöldu­veit­una úr vernd í bið.

Hefur haft áhyggjur af því að ekki hafi verið unnt að ljúka afgreiðslu rammaáætlunarinnar

Katrín svar­aði í annað sinn og sagð­ist telja að ramma­á­ætlun væri mjög mik­il­vægt tæki. „Ég hef satt að segja haft af því þungar áhyggjur að fylgj­ast með þeirri þróun sem hér hefur verið und­an­farin sex ár, að ekki hafi verið unnt að ljúka afgreiðslu ramma­á­ætl­unar. Ég tek mark á því eftir að hafa hlustað á sam­þing­menn mína úr öllum flokkum sem ræða það að hér þurfi ein­fald­lega að horfa til minni áfanga og undir það er tekið í nefnd­ar­á­liti meiri­hlut­ans.“

Hún sagð­ist jafn­framt vera viss um að Þórunn væri henni sam­mála af því að auð­vitað þyrfti að vega það og meta hvað væri athuga­vert við það þegar þingið væri fjórum sinnum búið að leggja ramma­á­ætlun fram og ekki náð að klára málið.

„Ég vil minna á, þegar við erum að ræða að Alþingi hafi hér síð­asta orðið, að það var alger­lega með­vituð ákvörðun þegar lögin um ramma­á­ætlun voru sam­þykkt á sínum tíma að Alþingi skyldi hafa síð­asta orðið, að ramma­á­ætlun kæmi einmitt ekki fram frá verk­efn­is­stjórn og yrði afgreidd óbreytt. Það var alveg sér­stak­lega rætt, eins og hátt­virtur þing­maður þekkir, hvort það ætti að vera reglan og það var tekin alger­lega með­vituð ákvörðun um að svo yrði ekki.

Þannig að ég stend alger­lega með þessu. Fyrir þessu eru færð ákveðin rök í áliti meiri­hlut­ans og ég held að við værum í veru­legum vanda stödd, herra for­seti, ef við ætl­uðum enn og aftur að leggja fram þennan áfanga ramma­á­ætl­unar og láta hjá líða að afgreiða hann í ein­hverri mynd. Ég held að þá værum við fyrst komin í vanda, herra for­seti,“ sagði hún að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár