Rekinn úr landi með fullan maga af sprengjubrotum

Afganskur flótta­maður hefur, eftir ára­langar hrakn­ingar sótt um dval­ar­leyfi á Íslandi, og fengið höfnun. Nú á að flytja hann til Frakk­lands, þar sem hann var áður á göt­unni. Hann þarf á lækn­is­hjálp að halda vegna áverka sem hann hlaut á ung­lings­aldri, þegar upp­reisn­ar­menn í Afganistan reyndu að drepa hann. Þráir hann heit­ast af öllu að fá tæki­færi til að lifa frið­sömu og eðli­legu lífi hér, en ekk­ert bendir til þess að stjórn­völd verði við þeirri bón.

Noor
Noor Við eld­hús­borð við Klepps­veg situr land­laus maður.

Noor Mohammed Nasiry, eins og hann heitir fullu nafni, er við fyrstu sýn ósköp eðli­legur maður. En þegar þú sest niður með honum, hlustar á sögu hans og fylgist með honum fer maður smám saman að sjá. Fyrst örum settan lík­ama hans, fing­ur­inn sem vantar framan á. Smám saman finnur maður svo fyrir örunum á sál­inni, sér baug­ana til­komna vegna hrakn­inga á milli landa, og verður fljót­lega ljóst að hér er maður með mikla sorg í fartesk­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár