Óskar eftir upplýsingum um heildarkostnað ríkissjóðs vegna málareksturs gegn Hafdísi Helgu

Þing­maður Við­reisnar hefur lagt fram fyr­ir­spurn um heild­ar­kostnað rík­is­sjóðs vegna mála­rekst­urs rík­is­ins gegn Hafdísi Helgu Ólafs­dóttur, sem sótti um stöðu ráðu­neyt­is­stjóra í mennta- og menn­ing­ar­mála­ráðu­neyti í ráð­herra­tíð Lilju Alfreðs­dóttur.

Þorbjörg Sigríður Gunnarsdóttir, þingmaður Viðreisnar.
Þorbjörg Sigríður Gunn­ars­dóttir, þing­maður Við­reisnar. Mynd: Bára Huld Beck

Þorbjörg Sigríður Gunn­ars­dóttir, þing­maður Við­reisnar, hefur lagt fram fyr­ir­spurn til mennta- og barna­mála­ráð­herra um heild­ar­kostnað rík­is­sjóðs vegna dóms­máls íslenska rík­is­ins á hendur Hafdísi Helgu Ólafs­dóttur.

Hafdís Helga var á meðal umsækj­anda um stöðu ráðu­neyt­is­stjóra í mennta- og menn­ing­ar­mála­ráðu­neyti sem aug­lýst var til umsóknar í júní 2019. Þann 1. nóv­em­ber sama ár var Páll Magn­ús­son skip­aður í starf­ið. Haf­dís Helga kærði þá nið­ur­stöðu til kæru­nefndar jafn­rétt­is­mála þar sem hún taldi ljóst að reynslu­minni og minna mennt­aður karl­­maður hefði verið ráðin í starfið sem hún sótt­­ist eft­­ir.

Kæru­nefnd jafn­rétt­is­mála komst að þeirri nið­ur­stöðu 2020 að Lilja Alfreðs­dóttir, þáver­andi mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra, hefði brotið jafn­rétt­islög þegar hún skip­aði Pál Magn­ús­son í emb­ætti ráðu­neyt­is­stjóra. Lilja ákvað að stefna kær­and­anum per­sónu­lega í nafni íslenska rík­is­ins til að fá úrskurð­inum hnekkt, tap­aði fyrir hér­aðs­dómi og ákvað að áfrýja til Lands­réttar.

Þar átti að taka málið fyrir í 28. febr­úar en nokkrum dögum áður en mál­flutn­ingur átti að hefj­ast ákvað Ásmundur Einar Daðason, sem tók við mála­rekstr­inum, að semja um mála­lok og greiða Hafdísi Helgu 2,3 millj­ónir króna í miska­bætur.

Kærunefnd jafnréttismála, héraðsdómur, áfrýjun, Landsdómur og samkomulag um miskabætur

Í fyr­ir­spurn sinni óskar Þorbjörg eftir upp­lýs­ingum um kostnað íslenska rík­is­ins vegna með­ferðar máls­ins hjá kæru­nefnd jafn­rétt­is­mála, kostnað við rekstur máls­ins fyrir hér­aðs­dómi, þar á meðal laun setts rík­is­lög­manns og málsvarn­ar­laun verj­anda stefndu.

Í mars í fyrra hafn­aði hér­­aðs­­dómur Reykja­víkur öllum máls­á­­stæðum Lilju og sagði í nið­­ur­­stöðu sinni að ekki hafi verið fyrir hendi neinir „ann­­markar á máls­­með­­­ferð kæru­­nefnd­­ar­innar sem leitt geti til ógild­ingar á úrskurði henn­­ar.“

Lilja ákvað að áfrýja dómnum rúmum fjórum klukku­­stundum eftir að hann hafði fall­ið. Þar með lá fyrir að málið yrði í áfrýj­un­ar­ferli að minnsta kosti fram yfir þing­kosn­ing­ar, sem fram fóru 25. sept­em­ber síð­ast­lið­inn. Í fyr­ir­spurn sinni óskar Þorbjörg eftir upp­lýs­ingum um kostnað vegna áfrýj­unar og með­ferðar máls­ins í Lands­rétti, þar á meðal laun setts rík­is­lög­manns og málsvarn­ar­laun verj­anda stefndu.

Þá óskar Þorbjörg einnig eftir upp­lýs­ingum um kostnað íslenska rík­is­ins vegna sam­komu­lags­ins sem gert var við Hafdísi Helgu í aðdrag­anda þess að fallið var frá mál­inu nokkrum dögum áður en til mál­flutn­ings kom.

Samkvæmt upp­lýs­ingum Kjarnans nam kostn­að­­­ur­ rík­­is­ins við rekstur máls­ins fyrir hér­­­aðs­­­dómi alls 8,7 millj­­­ónum króna. Áætlað var að kostn­aður vegna áfrýj­unar til Lands­réttar yrði á bil­inu 900 þús­und krónur til 1,2 millj­­­ónir króna án virð­is­auka­skatts. Til við­bótar bæt­ist sá kostn­aður sem fellur til vegna greiðslu miska­bóta.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár