Finnur hættir hjá Högum og Guðmundur yfirgefur Bónus

Tveir helstu lykil­stjórnendur smásölu­risans Haga hafa ákveðið að hætta störfum hjá félaginu. Þeir hafa báðir starfað þar frá því á síðustu öld.

Bónus er krúnudjásnið í Hagasamstæðunni og stærsta dagvöruverslunarkeðja landsins.
Bónus er krúnu­djá­snið í Haga­sam­stæð­unni og stærsta dag­vöru­versl­un­ar­keðja lands­ins. Mynd: Bára Huld Beck

Finnur Árnason, sem hefur verið forstjóri smásölu­risans Haga frá árinu 2005, hefur óskað eftir því að láta af störfum. Þá hefur Guðmundur Marteinsson, sem verið hefur framkvæmda­stjóri Bónus sem er í eigu Haga, einnig óskað eftir því að hætta. Þeir tveir hafa verið lykilmenn í þeim mikla vexti sem Hagar hafa gengið í gegnum á þessari öld og hófu báðir störf þar fyrir aldarmót.

Í tilkynningu til Kaup­hallar Íslands kemur fram að þeir muni báðir starfa áfram þar til að eftirmenn þeirra verða ráðnir.

Finnur segir þar að hann telji rétt á þessum tíma­punkti fyrir sig persónu­lega að staldra við og huga að öðru. „Á sama tíma tel ég gott fyrir Haga að nýr aðili taki við keflinu með ferskar hugmyndir í farte­skinu. Framundan eru fjölmörg tækifæri, en einnig spennandi áskoranir sem félagið er vel í stakk búið til að takast á við. Mér er efst í huga þakklæti til þess samstarfs­fólks og samferða­fólks sem ég hef unnið með og kynnst á þeim rúmlega 22 árum sem ég hef starfað fyrir félagið. Styrkur félagsins liggur í öflugu og samhentu starfs­fólki sem kann sitt fag og það hafa verið forréttindi að vera hluti af þessari liðsheild. Ég er stoltur af þeim árangri sem við höfum í sameiningu náð, sem leiðandi smásölu­fyrirtæki á Íslandi. Hér er viðskipta­vinurinn ávallt í öndvegi og frá fyrsta degi hefur félagið boðið lands­mönnum lægsta vöruverð á landinu og sama verð um land allt. Ég óska félaginu og samstarfs­fólki mínu velfarnaðar í fram­tíðinni.“

Guðmundur segir á sama stað að það verði erfitt að kveðja fyrir­tækið eftir hartnær þrjá áratugi. „Ég er stoltur af þeim árangri sem við höfum náð og ég kveð það fólk sem ég hef kynnst á þessum tíma með söknuði, þá sérstak­lega öflugt og frábært starfs­fólk Bónus, sem og samstarfs­aðila og viðskipta­vini.“

Hagar reka 46 verslanir innan fimm smásölu­fyrirtækja og tveggja vöruhúsa. Þá rekur félagið 28 Olísstöðvar um land allt auk 41 ÓB-stöð. Megin­starfsemi Haga er á sviði matvöru en innan þess eru tvær af stærstu verslunar­keðjum landsins, Bónus og Hagkaup, svo og stoð­starfsemi á sviði innkaupa og dreifingar. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár