Vilja auka fiskneyslu ungs fólks

Stjórn­völd í Noregi ráð­ast í her­ferð til að auka fiskneyslu fólks, sér­stak­lega yngstu kyn­slóð­anna.

Fiskneysla í Noregi hefur minnkað á síð­ustu árum og munar fimmtán pró­sentum á milli ára. Stjórn­völd þar í landi hafa af þessu það miklar áhyggjur að her­ferð hefur verið hleypt af stokk­unum þar sem mark­miðið er að fá fólk til að borða þrjár mál­tíðir á viku.

Frá þessu er greint í frétt á vef­síðu Fiski­frétta.

Í frétt­inni segir að sér­stakt lógó hafi verið hannað og því komi fyrir þar sem von er á ungu fólki. Skila­boðin „þrisvar í viku“ séu skreytt hvers kyns skila­boðum um hversu heilsu­bæt­andi fiskátið er, auk þess sem upp­skriftir að spenn­andi réttum og hús­ráð séu látin fylgja. Mark­hóp­ur­inn sé ungt fólk eða ald­urs­hóp­ur­inn átján til 40 ára en þessi hópur er sagður síst lík­legur til að borða fisk.

Fiskneysla mest á Íslandi

Embætti land­læknis stóð fyrir nor­rænni könnun á matar­æði, hreyf­ingu og holda­fari hér á landi í sam­starfi við rann­sak­endur frá Danmörku, Noregi, Finn­landi og Svíþjóð og voru nið­ur­stöð­urnar birtar í jan­úar á síð­asta ári. Önnur umferð rann­sókn­ar­innar fór fram haustið 2014 en sú fyrri haustið 2011. 

Í könn­un­inni kom fram að á Íslandi var meira borðað af syk­ur­ríkum mat­vörum á borð við súkkulaði, sæl­gæti, kökum og gos­drykkjum, en á hinum Norð­ur­lönd­unum og hafði neyslan ekki minnkað frá árinu 2011 líkt og gerst hafði á hinum Norð­ur­lönd­unum að Svíþjóð und­an­skil­inni þar sem neyslan stóð í stað. Íslend­ingar borða minnst af græn­meti og ávöxtum miðað við hin Norð­ur­löndin, sam­kvæmt könn­un­inni, og breytt­ist neyslan hér á landi ekki á tíma­bil­inu. Sömu­leiðis borð­uðu Íslend­ingar minnst af heil­korna­brauði og hafði neyslan minnkað milli ára. Fiskneysla var aftur á móti mest á Íslandi og óbreytt milli kann­ana.

Nýta samfélagsmiðla

Í frétt Fiski­frétta segir að stjórn­völd von­ist til að hægt sé að vekja norska neyt­endur til vit­undar um gæði og kosti fisk­metis á árinu sem framundan er. Í þeim anda hafi verið lagt í sér­staka rann­sókn hvernig auð­veld­ast sé að ná athygli unga fólks­ins í gegnum þá miðla sem þau nota helst, sam­fé­lags­miðla og aðra. Slík nálgun sé helst talin lík­leg til að ná árangri, að kynn­ing á fisk­meti nái augum þeirra og eyrum á nefndum miðlum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár