Hefur áhyggjur af því að enn og aftur verði unga fólkið skilið eftir

Þing­maður Pírata spurði for­sæt­is­ráð­herra hvort hún ætl­aði „virki­lega að skilja ungt fólk eftir enn eina ferð­ina“. Ráð­herr­ann svar­aði og sagði að tölu­vert hefði þegar verið und­ir­búið sem myndi mæta mjög mörgum náms­mönnum á kom­andi sumri.

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, þingmaður Pírata.
Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir, þing­maður Pírata. Mynd: Bára Huld Beck

Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir þing­maður Pírata spurði Katrínu Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra út í aðgerðir rík­is­stjórn­ar­innar gagn­vart unga fólk­inu í land­inu í óund­ir­búnum fyr­ir­spurna­tíma á Alþingi í dag.

Þing­mað­ur­inn sagði að í kjöl­far hruns­ins fyrir rúm­lega ára­tug hefði verið gripið til fjöl­margra úrræða sem áttu að bæta hag lands­manna. „Leið­rétt­ingin, eins og hún var kölluð, er dæmi um aðgerð stjórn­valda sem greiddi millj­arða­tugi til eldri kyn­slóða og eigna­fólks. Talað var um for­sendu­brest sem rétt­lætti þessa gríð­ar­legu eigna­til­færslu en yngri kyn­slóðin fékk enga leið­rétt­ingu. Sú kyn­slóð er enn að berj­ast við að geta fjár­fest í hús­næði. Sú kyn­slóð er fyrsta kyn­slóð Íslend­inga í ára­tugaraðir sem býr við lak­ari lífs­kjör en kyn­slóðin þar á undan.“

Hún sagði að leið­rétt­ingin og nið­ur­fell­ing skulda hefðu ekki náð til þess­arar kyn­slóðar enda hefði hún ekki verið þátt­tak­andi í því skulda­kapp­hlaupi sem átti sér stað árin á undan. Í góð­ær­inu sem nú hefði keyrt á vegg hefði hún heldur engra fríð­inda notið.

Öryggisleysið um þessar mundir óásættanlegt

Þór­hildur Sunna sagð­ist enn fremur hafa þungar áhyggjur af því að nú ætti enn og aftur að skilja unga fólkið eftir. „Ég hef þungar áhyggjur af aðgerða­leysi stjórn­valda sem ég finn fyrir gagn­vart félags­legu öryggi ungs fólks og að það muni leiða af sér enn dýpra kyn­slóða­bil lífs­gæða í land­inu, að ungt fólk og þá sér í lagi náms­menn sem ekki fá notið úrræða stjórn­valda til jafns við aðra neyð­ist til að skuld­setja sig enn frekar og að ekki sjái fyrir end­ann á því.“

Hún sagði að örygg­is­leysið sem unga kyn­slóðin byggi við um þessar mundir væri óásætt­an­legt. „Þessi rík­is­stjórn virð­ist stað­ráðin í að svara þess­ari kyn­slóð engu um fram­tíð sína í kom­andi efna­hagslægð. Námsmenn sem sann­ar­lega hafa orðið fyrir for­sendu­bresti vegna áhrifa heims­far­ald­urs­ins fá engin svör um fjár­hags­legt öryggi sitt nema kannski að þeim býðst að skuld­setja sig frekar með sum­ar­náms­lánum sem eng­inn bað um.“

Þór­hildur Sunna spurði því Katrínu hvort hún ætl­aði „virki­lega að skilja ungt fólk eftir enn eina ferð­ina“.

Margar aðgerðir komið mjög til móts við ungt fólk

Katrín vildi byrja á að taka það fram að leið­rétt­ingin hefði verið í tíð fyrri rík­is­stjórnar á árunum 2013 til 2016 þannig að hún gæti illa borið ábyrgð á henni. „Hins vegar hafa margar þær aðgerðir sem núver­andi rík­is­stjórn hefur gripið til einmitt miðað að því að koma til móts við ungt fólk, meðal ann­ars vegna þess sem fram kom þegar við fórum í rann­sókn á því hvernig lífs­kjör í land­inu hafa þró­ast á árunum 1991 til 2017 og hefur nú verið upp­færð til 2018. Þar kemur fram að yngri kyn­slóðin hefur setið eftir þegar kemur að lífs­kjörum. Meðal ann­ars þess vegna höfum við ráð­ist í aðgerðir til að hækka barna­bætur og lengja fæð­ing­ar­or­lof. Í þing­inu er frum­varp um Mennta­sjóð náms­manna sem snýst um að taka í raun og veru upp styrkja­kerfi til náms­manna. Allar þær aðgerðir koma mjög til móts við ungt fólk,“ sagði ráð­herr­ann.

Hún nefndi jafn­framt sér­stakar aðgerðir og sagði að nú þegar hefði verið gripið til aðgerða til að skapa 3.000 sum­ar­störf á vegum ríkis og sveit­ar­fé­laga sem hún von­að­ist til að yrði aug­lýst sem fyrst.

„Þá hefur sömu­leiðis verið sett inn gríð­ar­leg inn­spýt­ing í Nýsköp­un­ar­sjóð náms­manna sem nam 80 millj­ónum króna en nemur nú 500 millj­ónum króna og mun skapa 500 ný störf á þeim vett­vangi og uppi eru áform um sum­ar­nám fyrir þá náms­menn sem geta nýtt það til að flýta námi sínu,“ sagði hún.

Katrín telur enn fremur að stjórn­völd muni þurfa að taka stöð­una til að átta sig á því hvort ein­hverjir „lendi á milli skips og bryggju þrátt fyrir allar þessar umfangs­miklu aðgerðir og koma þá til móts við þann hóp náms­manna með ein­hverjum hætti. Ekki er hægt að segja annað en að tölu­vert hafi þegar verið und­ir­búið sem mun mæta mjög mörgum náms­mönnum á kom­andi sumri.“

Margir atvinnulausir í sumar

Þór­hildur Sunna fór aftur í pontu og sagði að for­sæt­is­ráð­herra héldi „hér ræðu um alla þá hluti sem hún telur rík­is­stjórn­ina vera að gera fyrir ungt fólk og náms­menn“ en að hún hefði samt ekki svarað því skýrt hvað tæki við hjá þeim náms­mönnum sem ekki fá vinnu í sumar.

„Við vitum alveg að það verður tölu­vert um náms­menn sem ekki fá vinnu í sumar, það liggur fyrir. Þar með hefur hæst­virt rík­is­stjórn ekki orðið við þeirri skýru kröfu stúd­enta­hreyf­ing­ar­innar að stúd­entar búi við fjár­hags­legt öryggi. Vissa stúd­enta um sitt fjár­hags­lega öryggi nær varla fram að næstu mán­aða­mótum. Hvers konar skila­boð eru það til ungs fólks að það eigi að bíða upp á von og óvon um að fá kannski stuðn­ing stjórn­valda? Hvers vegna er þessi tregi hjá rík­is­stjórn­inni til að taka af allan vafa um að náms­menn muni eiga rétt á atvinnu­leys­is­bótum?“

Hún lauk máli sínu á því að spyrja hvort Katrín væri sam­mála Ásmundi Einari Daðasyni félags­mála­ráð­herra að ekki ætti að láta þessa nem­endur fá pen­ing fyrir að gera ekki neitt og vís­aði hún þar í orð ráð­herr­ans í Silfrinu í gær.

Þarf auðvitað að ráðast í aðgerðir til að grípa þá sem lenda milli skips og bryggju

Katrín svar­aði aftur og gerði athuga­semd við það orða­lag Þór­hildar Sunna „sem segir að rík­is­stjórnin telji sig vera að gera hluti, þegar ég fer yfir öll þau mál sem hafa verið afgreidd á þessu kjör­tíma­bili og gagn­ast svo sann­ar­lega ungu barna­fólki og hefur verið barist fyrir árum, ef ekki ára­tugum, saman. Ég vitna þá sér­stak­lega í fæð­ing­ar­or­lofið og Mennta­sjóðs­frum­varpið og margt fleira. Hæst­virtur þing­maður verður að virða stað­reyndir þegar hún kemur hér upp,“ sagði hún.

For­sæt­is­ráð­herra sagði enn fremur að Þór­hildur Sunna léti eins og það væri engin aðgerð að fara í 3.500 sum­ar­störf. „Ég er nokkuð viss um að það er það sem flestir náms­menn vilja gera, þeir vilja eiga kost á starfi yfir sum­arið og sér­stak­lega ein­hverju áhuga­verðu starfi. Þegar hæst­virtur þing­maður lætur eins og það að fara í sum­ar­nám séu ekki raun­veru­legar aðgerðir fer hæst­virtur þing­maður hrein­lega ekki rétt með. Það sem ég sagði áðan er að síðan þarf auð­vitað að ráð­ast í aðgerðir til að grípa þá sem lenda milli skips og bryggju í þessum aðgerðum. Þessi útfærsla liggur hjá félags- og barna­mála­ráð­herra og mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra og mér er kunn­ugt um að þau munu kynna nán­ari útfærslur í þess­ari viku,“ sagði hún að lokum í svari sínu.

Skynjar mikið vantraust og skilningsleysi í garð ungs fólks

Halldóra Mogensen, þing­flokks­for­maður Pírata, fjall­aði um málið á Facebook í dag en þar sagði hún að ef úrræði félags­mála­ráð­herra fyrir stúd­enta væru svona frá­bær þá kost­aði það ekki neitt að veita stúd­entum lág­marks­fjár­hags­ör­yggi með atvinnu­leys­is­bótum.

„Nema hann van­treysti ungu fólki svona gríð­ar­lega og haldi að ungt fólk velji bætur fram­yfir vinnu­úr­ræði rík­is­stjórn­ar­innar. Eftir að hafa hlustað á svör hans og for­sæt­is­ráð­herra í óund­ir­búnum fyr­ir­spurnum rétt í þessu skynja ég mikið van­traust og skiln­ings­leysi í garð ungs fólks,“ skrif­aði hún.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár