Tíu mikilvægustu hlutirnir sem eru að gerast í heiminum í dag

Business Insider gerir í dag, eins og svo oft áður, lista yfir tíu mikil­vægustu hlutina sem eru að gerast í heiminum í dag.


  1. Mats­fyrirtækið S&P lækkaði lánshæfismat Grikk­lands í gær vegna þess að enn hefur ekki samist um neyðarlán til ríkisins. Samkvæmt mati S&P mun verða algjört greiðslu­fall hjá ríkinu innan árs ef ekki semst.

  2. Suður-Kórea hefur lækkað stýri­vexti niður í 1,5%, og hafa þeir aldrei verið lægri. Öndunarfæra­sjúk­dómurinn MERS er að breiðast út og faraldur gæti haft skaðleg áhrif á efnahags­lífið.

  3. Enn er leitað að morðingjunum tveimur sem sluppu út úr fangelsi í New York um síðustu helgi. Í gær var leitað í norður­hluta New York ríkis og meðal annars var vegum lokað vegna rann­sóknarinnar, en mennirnir hafa enn ekki fundist.

  4. Alþjóða­knattspyrnu­sambandið FIFA hefur ákveðið að fresta samkeppni um hvaða ríki fær að halda heims­meistara­mótið í fótbolta 2026, vegna spillingar­mála sem nú eru rannsökuð og varða meðal annars úthlutun á mótunum 2018 og 2022.

  5. Barack Obama Bandaríkja­forseti hefur heimilað að hundruð hermanna til viðbótar verði sendir til Írak til að hjálpa íröskum herdeildum að ná aftur landsvæðum sem Íslamska ríkið hefur sölsað undir sig.

  6. Lögreglu­maður í Texas, sem var settur í leyfi eftir að hann beindi byssu að óvopnuðum, þeldökkum unglingum í sundlaugarpartýi á dögunum, hefur tjáð sig um málið. Hann segist hafa verið stressaður eftir að hafa sinnt útkalli vegna sjálfs­vígs skömmu áður.

  7. Þrír ráðherrar í pólsku ríkis­stjórninni og forseti þingsins hafa sagt af sér eftir að leynilegar upptökur af þeim voru gerðar opinberar. Á upptökunum heyrast stjórn­mála­mennirnir ræða ýmislegt, allt frá persónu­legum samningum yfir í viðkvæm utan­ríkismál.

  8. Kínverskir hakkarar sem komust inn í gagna­grunna bandarískra yfirvalda gætu hafa komist yfir persónu­upplýsingar um Kínverja sem hafa tengsl við stjórn­völd í Banda­ríkjunum. Talið er að stjórn­völd í Kína gætu notað upplýsingarnar til kúgunar.

  9. Á tíu daga loftlags­fundi á vegum Sameinuðu þjóðanna í Bonn, er verið að vinna að drögum að áætlun um að takmarka hlýnun jarðar við tvær gráður umfram það sem hitinn var fyrir iðnbyltinguna.

  10. Frans páfi hefur samþykkt að skipaður verði sérstakur dómstóll í Vatíkaninu til að dæma biskupa sem eru grunaðir um að hafa hylmt yfir með barna­níðingum. Þetta þykir stærsta skrefið hingað til í átt að því að draga menn til ábyrgðar vegna barnaníðs­mála í kaþólsku kirkjunni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár