Mótmæla ákvörðun Bandaríkjastjórnar

Íslensk stjórn­völd hafa komið á framfæri mótmælum vegna ákvörðunar Bandaríkja­stjórnar að banna flug­ferðir frá flestum löndum Evrópu. Ríkis­stjórnin fundar í hádeginu í dag vegna þeirrar stöðu sem upp er komin vegna Covid-19 veirunnar og banns Bandaríkja­stjórnar. Í kjölfarið fundar ríkis­stjórnin með formönnum stjórnar­andstöðu­flokkanna.

Mótmæla ferðabanni
Mótmæla ferða­banni For­sæt­is­ráð­herra sagði á Alþingi í morgun að rík­is­stjórnin hefði mót­mælt ferða­banni til Banda­ríkj­anna. Mynd: Pressphotos

Íslensk stjórn­völd hafa komið á framfæri mótmælum vegna þeirrar ákvörðunar Bandaríkja­stjórnar að banna flug­ferðir frá flestum löndum Evrópu. Ríkis­stjórnin fundar í hádeginu í dag vegna þeirrar stöðu sem upp er komin vegna Covid-19 veirunnar og þessarra ákvörðunar banns Bandaríkja­stjórnar. Í kjölfarið fundar ríkis­stjórnin með formönnum stjórnar­andstöðu­flokkanna.

Þetta sagði Katrín Jakobs­dóttir forsætis­ráðherra í óundirbúnum fyrirspurna­tíma á Alþingi í morgun. Þingmenn stjórnar­andstöðunnar sögðu mikilvægt að allir þingmenn hefðu jafnan aðgang að upplýsingum um stöðu mála.

Logi Ein­ars­son„Við erum öll í sama bátnum og það þarf allar hendur upp á dekk.“

Logi Einarsson, þingmaður Samfylkingarinnar, sagði að ekki mætti bíða eftir að „veru­leikinn teiknaðist einhvernveginn upp“. Hann sagði velferðar­kerfið „í molum“ vegna hægri­stefnu í nokkur ár og að innviðir hefðu verið að grotna niður. Nú þyrfti að snúa þessari þróun við.  „Mun ríkis­stjórnin kalla stjórnarand­stöðina og verkalýðs­hreyfinguna til borðsins til að leita lausna? Við erum öll í sama bátnum og það þarf allar hendur á dekk,“ sagði Logi.

Staðan önnur en 2008

Forsætis­ráðherra var til andsvara og sagði að ríkis­stjórnin myndi koma saman til fundar í hádeginu og í kjölfarið funda með formönnum stjórnar­andstöðu­flokkanna. Á morgun yrði fundað með aðilum vinnu­markaðarins. „Staðan er allt önnur en 2008,“ sagði Katrín. Gjaldeyris­forði væri öflugur, skulda­hlutfall lágt og viðskipta­jöfnuður væri jákvæður. „Þær aðgerðir sem við kynntum eru aðeins þær fyrstu. Við verðum að tryggja að við komum standandi niður.“

„Þær aðgerðir sem við kynntum eru aðeins þær fyrstu. Við verðum að tryggja að við komum standandi niður“

Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir „Öllu máli skiptir að miðla upp­lýs­ingum fyrir heim­ilin og fyr­ir­tækin í land­inu.“

Þorgerður Katrín Gunnars­dóttir, þingmaður Viðreisnar, sagði að upplýsinga­gjöf til stjórnar­andstöðunnar hefði ekki verið til fyrir­myndar og fagnaði boðuðum fundi með forystu­mönnum stjórnar­andstöðunnar „Öllu máli skiptir að miðla upplýsingum fyrir heimilin og fyrir­tækin í landinu,“ sagði Þorgerður Katrín og lýsti yfir þungum áhyggjum af ákvörðun Bandaríkja­stjórnar. 

Utanríkisnefnd komi saman við fyrsta tækifæri

Katrín Jakobs­dóttir forsætis­ráðherra svaraði því til að íslensk stjórn­völd hefðu komið á framfæri mótmælum. Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkis- og þróunar­mála­ráðherra, hefði átt samtal við sendi­herra Banda­ríkjanna í morgun, og í kjölfarið fund með stað­gengli hans vegna málsins til þess að koma mótmælum á framfæri.

Katrín Jak­obs­dóttir „Tíðindi næt­ur­innar hafa sett þetta í nýtt sam­hengi.“

„Utan­ríkis­ráðherra hefur óskað eftir fundi í utan­ríkismála­nefnd við fyrsta tækifæri til að ræða þá stöðu sem upp er komin. Tíðindi næturinnar hafa sett þetta í nýtt samhengi,“ sagði Katrín.

Í frétta­tilkynningu frá Utan­ríkis­ráðuneytinu segir að Guðlaugur Þór hafi í þessum samtölum við bandarísk stjórn­völd lagt á það ríka áherslu að Ísland verði undan­þegið ákvæðunum í ljósi land­fræðilegrar sérstöðu sinnar og þeirra aðgerða sem íslensk stjórn­völd hafa gripið til til að hefta útbreiðslu Covid-19 hér á landi.

 

 

 

 

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hópsýking greindist eftir þorrablót í Brúarási – Guðrún Hafsteins­dóttir meðal gesta

Enn ein matar­sýking er komin upp eftir þorrablót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jökulsár­hlíð á Fljótsdals­héraði á laugar­daginn. Guðrún Hafsteins­dóttir, formanns­efni Sjálfstæðis­flokksins sótti blótið. Samkvæmt Austur­frétt eru Heilbrigðis­eftirlit Austurlans (HAUST) og Heilbrigðis­stofnun Austur­lands (HSA) að vinna að því að rekja uppruna matar­sýkingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laugardags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár