Bankastjóri Barclays-bankans rekinn

Anthony Jenkins, sem tók við sem forstjóri hins breska Barclays-banka fyrir um þremur árum síðan, hefur verið látinn fara frá bankanum. Jenkins tók við í kjölfar LIBOR-hneykslisins, þar sem uppvíst var að Barclays og nokkrir aðrir alþjóð­legir bankar hefðu með kerfis­bundnum tilraunum skekkt uppgefna milli­bankavexti á árunum 2005-2009 með því að veita rangar upplýsingar um lántöku­kostnað sinn. Við starfi Jenkins tekur tíma­bundið John McFarlane, stjórnar­formaður Barclays, en leit að eftir­manni stendur þegar yfir.

Í yfir­lýsingu sem Barclays sendi frá sér vegna þess er haft eftir Sir Michael Rake, vara­formanni stjórnar bankans, að Jenkins hefði lagt mikið af mörkum á undan­förnum árum en að það væri mat stjórnarinnar að þörf væri á annars konar hæfi­leikum til að takast á við þær áskoranir sem framundan væru á fjármála­markaði.

Mikið brimrót hefur verið hjá Barclays bankanum undan­farin ár. Í maí síðastliðnum var hann var til að mynda sektaður af hinum ýmsu stofnunum og eftirlits­aðilum í Banda­ríkjunum og í Bretlandi um 1,5 milljarða sterlingspunda, eða tæplega 312 milljarða íslenskra króna, vegna LIBOR-hneykslisins. Þar af var bankanum gert að greiða breska fjármála­eftirlitinu 284 milljónir sterlingspunda, sem er hæsta sektar­upphæð sem stofnunin hefur lagt á fjármála­stofnun fyrr og síðar.

Hagnaður bankans á árinu 2014 2,26 milljarðar punda, um 440 milljarðar króna. Hann lækkaði hins vegar um 21 prósent á milli ára. Stjórn bankans ákvað samt sem áður að auka fjár­munina sem voru til skiptanna í bónus­greiðslur um 22 prósent, og nam upphæðin sem starfs­menn gátu fengið í bónus­greiðslur, ef markmið nást, um 1,86 milljörðum punda, eða sem nemur 372 milljörðum króna.

Jenkins sjálfur fékk 1,1 milljónir punda í bónus­greiðslu vegna hagnaðar bankans í fyrra, eða sem nemur 220 milljónum króna. Heildar­laun hans á árinu 2014 námu 5,5 milljónum punda eða sem nemur 1,2 milljörðum króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár