Högnuðust samtals um 16,5 milljarða eftir að þau greiddu 4,4 milljarða í veiðigjöld og skatta

Útgerð­ar­fé­lög að öllu leyti í eigu Samherja og Síld­ar­vinnslan, sem Samherji á þriðj­ung í, greiddu um fimmt­ung þess sem var til skipt­anna úr rekstr­inum til rík­is­ins í formi veiði­gjalda en afgang­ur­inn rann til hlut­hafa.

Þorsteinn Már Baldvinsson er forstjóri Samherja og stjórnarformaður Síldarvinnslunnar.
Þor­steinn Már Bald­vins­son er for­stjóri Samherja og stjórn­ar­for­maður Síld­ar­vinnsl­unnar. Mynd: Skjáskot/Samherji

Síld­ar­vinnslan, Samherji Íslands og Útgerð­ar­fé­lag Akur­eyrar högn­uð­ust sam­tals um 16,5 millj­arða króna í fyrra. Þá er búið að taka til­lit til þess að útgerð­ar­fé­lögin þrjú greiddu sam­tals um 4,4 millj­arða króna í veiði­gjöld og skatta. Því fór um fimmt­ungur þess sem var til skipt­anna hjá félög­unum þremur eftir greiddan kostnað til rík­is­ins en afgang­ur­inn, tæp 80 pró­sent, rann til hlut­hafa.

Þetta má lesa út úr árs­reikn­ingum þeirra þriggja vegna árs­ins 2021.

Samherji hf. á tvö síð­ar­nefndu félögin að öllu leyti og rekur botn­fisksveiðar og -vinnslu sína í gegnum þau. Samherji hf. er auk þess stærsti eig­andi Síld­ar­vinnsl­unnar sem er en stærsta upp­sjáv­ar­veiða­út­gerð lands­ins. Móð­ur­fé­lagið á um þriðj­ung í Síld­ar­vinnsl­unni sem er skráð á hluta­bréfa­markað, en talið sem hlut­deild­ar­fé­lag í árs­reikn­ingi Samherja hf.

Samherji Ísland

Sam­herji Ísland, útgerð­ar- og fisk­vinnslu­fyr­ir­tæki að öllu leyti í eigu Sam­herj­a­sam­stæð­unn­ar, hagn­að­ist um næstum fjóra millj­arða króna á árinu 2021, ef miðað er við með­al­gengi evru á síð­asta ári, en útgerðin gerir upp í þeirri mynt.

Útgerðin er með fjórðu mestu afla­hlut­­­­­deild í íslenskri efna­hags­lög­­­­sögu allra sjá­v­­­­­ar­út­­­­­­­vegs­­­­fyr­ir­tækja á Íslandi, eða 8,09 pró­­­­­sent, sam­kvæmt síð­ustu birtu töl­u­m.

[adspot]Í árs­reikn­ingi félags­ins sem er nú aðgengi­legur í fyr­ir­tækja­skrá kemur fram að rekstr­ar­hagn­aður hafi verið um 4,6 millj­arðar króna, en þá var búið að gera ráð fyrir greiðslu veiði­gjalda upp á um 470 millj­ónir króna sem hluta af kostn­að­ar­verði seldra vara. Sam­herji Ísland borg­aði svo um 900 millj­ónir króna í tekju­skatt. Sam­tals fóru því tæp­lega 1,4 millj­arðar króna til rík­is­sjóðs frá félag­inu á árinu 2021.

Stjórn Sam­herja Ísland ákvað að greiða út 40 pró­sent af hagn­aði árs­ins í arð til móð­ur­fé­lags­ins Samherja hf. vegna síð­asta árs, sem eru þá um 1,6 millj­arðar króna. Greidd veiði­gjöld voru því undir 30 pró­sent af arð­greiðsl­unni sem greidd var upp í móð­ur­fé­lagið Sam­herja hf.

Útgerðarfélag Akureyringa

Hitt útgerð­ar­fé­lagið sem Samherji hf. á að öllu leyti er Útgerð­ar­fé­lag Akur­eyr­inga, sem heldur á 1,1 pró­sent af öllum úthlut­uðum kvóta. Sam­an­lagt halda Samherji Ísland og Útgerð­ar­fé­lag Akur­eyr­inga því á 9,2 pró­sent af öllum kvóta á Íslandi. Sam­an­lagt gera félögin tvö út átta skip og reka land­vinnslu á Dalvík, Akureyri og á Laugum í Reykja­dal.

Samkvæmt til­kynn­ingu sem birt var á vef Samherja í gær samnýtir það félag veiði­heim­ildir sínar með Samherja Íslandi. Vegna þessa bók­færði Samherji Ísland um einn millj­arð króna í kvóta­leigu­tekjur á síð­asta ári en Útgerð­ar­fé­lag Akur­eyrar leigði allan þann kvóta af syst­ur­fé­lag­inu fyrir sömu upp­hæð.

Vergur hagn­aður Útgerð­ar­fé­lags Akur­eyr­inga, eftir greiðslu 240 milljón króna veiði­gjalds, á síð­asta ári var 4,2 millj­arðar króna. Kvóta­leiga, afskriftir og fjár­magns­gjöld, ásamt umtals­verðum nei­kvæðum geng­is­mun, gerði það að verkum að end­an­legur hagn­aður Útgerð­ar­fé­lags Akur­eyrar eftir greiðslu 127 milljón króna í skatta, var 1,4 millj­arðar króna. Stjórn félags­ins ákvað að greiða helm­ing­inn af þeirri upp­hæð til móð­ur­fé­lags­ins Samherja hf. í arð, eða um 700 millj­ónir króna.

Samtals greiddi Útgerð­ar­fé­lag Akur­eyr­inga því um 367 millj­ónir króna, miðað við með­al­gengi evru, í rík­is­sjóð á síð­asta ári eða rúm­lega helm­ing þess sem félagið greiddi í arð til móð­ur­fé­lags­ins Samherja hf.

Síldarvinnslan

Samherji er líka stærsti ein­staki eig­andi útgerð­ar­ris­ans Síld­ar­vinnsl­unnar, sem skráð er á markað, með 32,6 pró­sent hlut. Síld­ar­vinnslan hélt á 9,41 pró­sent af úthlut­uðum kvóta sam­kvæmt síð­ustu birtu upp­lýs­ingum Fiski­stofu og félagið til­kynnti nýlega um kaup á Vísi í Grinda­vík fyrir á fjórða tug millj­arða króna, en Vísir heldur á 2,16 pró­sent af öllum úthlut­uðum kvóta. Að óbreyttu fer Síld­ar­vinnslan ein og sér því yfir það tólf pró­sent hámark sem hver útgerð má sam­kvæmt lögum halda á af úthlut­uðum kvóta.

Síld­ar­vinnslan hagn­að­ist um 11,1 millj­arð króna í fyrra. Af þeirri upp­hæð féllu um þrír millj­arðar króna til vegna sölu­hagn­aðar sem mynd­að­ist þegar SVN eigna­fé­lag, stærsti eig­andi trygg­inga­fé­lags­ins Sjóvár, var afhentur fyrri hlut­höfum Síld­ar­vinnsl­unnar áður en félagið var skráð á markað í maí í fyrra.

Síld­ar­vinnslan greiddi hlut­höfum sínum 3,4 millj­arða króna í arð, miðað við með­al­gengi Banda­ríkja­dals á árinu 2021 en félagið gerir upp í þeirri mynt.

Þegar horft er á rekstr­ar­hagnað félags­ins fyrir afskriftir, fjár­magns­kostnað og skatta (EBITDA), þar sem búið er að gera ráð fyrir greiðslu veiði­gjalda en sölu­hagn­aður vegn a SVN eigna­fé­lags er ekki tek­inn með, nam hann 10,7 millj­örðum króna á síð­asta ári.

Félagið greiddi 531 millj­ónir króna í veiði­gjöld í fyrra og tæp­lega 2,1 millj­arð króna í tekju­skatt. Því námu sam­an­lagðar greiðslur vegna veiði­gjalds og tekju­skatts í rík­is­sjóð um 2,6 millj­örðum króna,

Af þeim arð­greiðslum sem Síld­ar­vinnslan greiddi fóru um 1,1 millj­arður króna til stærsta eig­and­ans, Samherja hf.

Móðurfélagið

Vert er að taka fram að Samherji hf., félags­ins sem heldur utan um inn­lendan rekstur Sam­herja, starf­sem­i í Fær­eyjum auk eign­ar­hluta í nokkrum skráðum félög­um, greiddi hlut­höfum sínum ekki út arð vegna síð­asta árs og hefur raunar ekki gert það síð­ustu þrjú rekstr­arár. Hagnaður sam­stæð­unnar í fyrra var 17,1 millj­arður króna og eigið fé þess var orðið 89 millj­arðar króna um síð­ustu ára­mót. Eig­in­fjár­hlut­fallið var 72 pró­sent í lok árs 2021.

[adspot]Hluta þeirra miklu fjár­muna sem safnað hefur verið í Samherja hf. á að nota í upp­bygg­ingu á lax­eldi í þremur áföngum á næstu ell­efu árum, en dótt­ur­fé­lagið Samherji fisk­eldi áformar að byggja upp allt að 40 þús­und tonna land­eldi á laxi á þeim tíma. Land­eld­is­stöðin verður stað­sett við Reykja­nes­virkjun og mun sam­an­standa af seiða­stöð, áframeld­is­stöð og frum­vinnslu­húsi ásamt þjón­ustu­bygg­ingum. Í árs­reikn­ingi Samherja hf. segir að heild­ar­fjár­fest­ing sé áætluð ríf­lega 45 millj­arðar króna en stjórn Samherja hefur ákveðið að leggja til fjár­magn til fyrsta áfanga verk­efn­is­ins og mun hækka hlutafé félags­ins um allt að 7,5 millj­arða króna, þar af um að minnsta kosti. 3,5 millj­arða króna á árinu 2022.

Samherji á líka fjár­fest­inga­fé­lagið Kaldbak, sem heldur utan um ýmsar fjár­fest­inga­eignir sam­stæð­unnar. Þar ber helst að nefna 4,5 pró­sent hlut í smá­söluris­anum Högum, sem færður var inn í Kaldbak fyrr á þessu ári og er met­inn á um 3,7 millj­arða króna í dag.

Eigendur

Til­­­kynnt var opin­ber­­­lega um eig­enda­­­skipti á Sam­herja hf. 15. maí 2020. Þá birt­ist til­­­kynn­ing á heima­­­síðu Sam­herj­­­a­­­sam­­­stæð­unnar um að Þor­­­steinn Már Bald­vins­­­son, Helga S. Guð­­­munds­dóttir og Krist­ján Vil­helms­­­son væru að færa næstum allt eign­­­ar­hald á Sam­herja hf., sem er eign­­­ar­halds­­­­­fé­lag utan um þorra starf­­­semi sam­­­stæð­unnar á Íslandi og í Fær­eyj­um, til barna sinna. Sú til­­­færsla átti sér þó stað á árinu 2019.

Þau halda hins vegar áfram að vera eig­endur að erlendu starf­­­sem­inni, og halda á stórum hlut í Eim­­­skip, sem hefur frá 2018 verið vistað inni í öðru eign­­­ar­halds­­­­­fé­lagi. Árs­reikn­ingur Samherja Holding vegna árs­ins 2021 liggur ekki fyrir.

Stærsti eig­andi Sam­herja hf. í dag er félagið K&B ehf., sem er í 2,1 pró­­­sent eigu Þor­­­steins Más, for­­­stjóra Sam­herja, 49 pró­­­sent eigu Bald­vins Þor­­­steins­­­son­­­ar, sonar hans, og 48,9 pró­­­sent eigu Kötlu Þor­­­steins­dótt­­­ur, dóttur Þor­­­steins Más. Það á 44,1 pró­­­sent í félag­inu. Félagið Bliki ehf., sem Sam­herji á sjálfur 32,1 pró­sent í og flokk­ast þar með sem dótt­ur­fé­lag sam­stæð­unn­ar, er næst stærsti ein­staki eig­and­inn með 11,9 pró­sent hlut. Sam­herji keypti 10,3 pró­sent hlut í Blika í fyrra auk þess sem dótt­ur­fé­lag­ið Fram­in­vest Sp/f á 28,2 pró­sent eign­ar­hlut í Blika. Kross­eigna­tengsl félag­anna eru færð út til lækk­unar á eigin fé í reikn­ingum Sam­herja. Þor­­­­­steinn Már er helsti skráði stjórn­­­­­andi Fram­in­vest sp/f, sem er með heim­il­is­festi í Fær­eyj­­­­­um.

Hall­­­dór Örn, Krist­ján Bjarni og Katrín, börn útgerð­­ar­­stjór­ans Krist­jáns Vil­helms­­son­­ar, eiga sam­an­lagt með um 41,5 pró­­­sent hluta­fjár en ekk­ert þeirra meira en 8,5 pró­­sent hlut hvert.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár