Bretar breyta orðalagi í þjóðaratkvæðagreiðslu um ESB

Kjör­stjórn í Bretlandi hefur gefið út yfir­lýsingu þar sem fram kemur að hún vilji að stjórn­völd breyti orðalagi í spurningunni sem notuð verður í þjóðar­atkvæða­greiðslu um áfram­haldandi aðild Breta að Evrópu­sambandinu. David Cameron forsætis­ráðherra hefur brugðist skjótt við og segir að spurningunni verði breytt í samræmi við tillögur kjör­stjórnarinnar.

Spurningin sem til stóð að nota er "Ætti Bretland að vera áfram meðlimur í Evrópu­sambandinu?" (e. Should the United Kingdom remain a member of the European Union?). Möguleg svör við spurningunni eru svo já og nei. Kjör­stjórn mælti með því að spurningunni yrði breytt þannig að hún yrði orðuð "Ætti Bretland að vera áfram meðlimur í Evrópu­sambandinu eða fara úr Evrópu­sambandinu?" Svörin yrðu þá "áfram meðlimur í Evrópu­sambandinu" og "fara úr Evrópu­sambandinu".

Jenny Watson, formaður kjör­stjórnarinnar, sagði í yfir­lýsingu að allar spurningar í þjóðar­atkvæða­greiðslum þurfi að vera eins skýrar og mögulegt er svo að kjósendur skilji það mikilvæga val sem þeir standi frammi fyrir. "Við höfum prófað væntanlega spurningu meðal kjósenda og fengið álit frá þeim sem koma til með að standa í kosninga­baráttu, frá háskóla­fólki og tungumála­sérfræðingum." Þótt kjósendur hafi skilið spurninguna sögðu sumir að orðalagið væri ekki hlutlaust. "Það er nú undir þinginu komið að ræða ráðgjöf okkar og ákveða hvaða orðalag á að nota."

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár