Afkoma Icelandair batnar - 7,5 milljarða hagnaður á þriðja ársfjórðungi

Horfur í rekstri Icelandair hafa batnað. Gengið var frá öðru samkomu­lagi við Boeing í dag, um bætur vegna neikvæðra áhrifa á rekstur félagsins vegna kyrr­setningar 737 Max vélanna.

Icelandair hagnaðist um 7,5 milljarða á þriðja ársfjórðungi, sem er rekstrar­bati milli ára, þrátt fyrir kyrr­setningu 737 Max vélanna. Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, segir að sveigjanleiki í leiða­kerfi Icelandair hafi reynst félaginu vel, þegar kemur að endur­skipulagningu vegna alþjóðlegrar kyrr­setningar Max vélanna.

„Góður árangur hefur náðst í rekstri Icelandair Group, þrátt fyrir að uppgjör fjórðungsins hafi litast verulega af áhrifum kyrr­setningar MAX vélanna. Sveigjanleiki í leiða­kerfinu hefur gert okkur kleift að færa tíðni á milli áfanga­staða og einbeita okkur að því að nýta flug­flotann á arðbærum leiðum. Við höfum lagt áherslu á ferðamanna­markaðinn til Íslands að undan­förnu til að mæta mikilli eftir­spurn og munum halda því áfram. Íslensk ferða­þjónusta hefur notið góðs af þessari áherslu­breytingu en við fluttum 30% fleiri farþega til landsins yfir háannatímann í ár en í fyrra.

Vel hefur gengið að milda áhrif kyrr­setningar MAX vélanna og höfum við unnið markvisst að því að ná niður kostnaði og auka tekjur félagsins. Það höfum við til dæmis gert með umbótum í leiða­kerfinu, bættri tekju­stýringu og betri nýtingu starfs­manna. Einnig hefur mikill árangur náðst við að bæta stundvísi félagsins á milli ára sem hefur á móti dregið verulega úr þeim kostnaði sem hlýst af röskunum í leiða­kerfinu, þrátt fyrir mikið álag á leiða­kerfið og starfs­fólk vegna kyrr­setningar MAX vélanna.

Horfur fyrir árið 2019 hafa batnað og gerum við ráð fyrir tals­verðum afkomu­bata á fjórða ársfjórðungi. Grunn­rekstur félagsins er að styrkjast, eiginfjár­staða nam rúmlega 62 milljörðum króna og lausafjár­staða tæplega 30 milljörðum króna í lok fjórðungsins. Við erum því vel í stakk búin til að ná markmiðum okkar um að bæta arðsemi félagsins á komandi misserum,“ segir Bogi Nils í tilkynningu til kaup­hallar.

Samkomulag við Boeing

EBIT hagnaður nam um 10 milljörðum króna (81,1 milljón dala) á þriðja ársfjórðungi, sem er hækkun um 0,3 milljarða króna (2,8 milljónir USD) á milli ára, þrátt fyrir kyrr­setningu MAX véla.

Tekjur félagsins námu um 65,6 milljörðum króna (533,9 milljónum dala) í fjórðungnum og lækkuðu um 2% á milli ára.

Sveigjanleiki í leiða­kerfi Icelandair gerði félaginu kleift að auka farþega­fjölda til Íslands um 27 prósent í fjórðungnum.

Eigið fé félagsins í lok september nam um 62,2 milljörðum króna (500,9 milljónum dala).Eiginfjár­hlutfall félagsins þann 30. september var 30% og jókst úr 28% frá byrjun árs 2019 ef sömu reiknings­skila­aðferðir eru notaðar. Án áhrifa IFRS 16, var eiginfjár­hlutfallið 37%.

Lausafjár­staða félagsins nam um 29,6 milljörðum króna í lok fjórðungsins (238,5 milljónum dala).

Icelandair gekk frá öðru samkomu­lagi við Boeing í dag um bætur fyrir hluta þess tjóns sem félagið hefur orðið fyrir vegna kyrr­setningar MAX véla, til viðbótar við það samkomulag sem félagið gerði við fram­leiðandann í þriðja ársfjórðungi.

Viðræður við Boeing um frekari bætur halda áfram eftir sem áður.Gert er ráð fyrir bættri afkomu á fjórða ársfjórðungi á milli ára.

Þegar metin neikvæð áhrif vegna kyrr­setningar MAX vélanna eru ennþá veruleg en áætlað EBIT tap félagsins á árinu 2019, með tilliti til áhrifa kyrr­setningarinnar, er á bilinu 4,3-5,5 milljarðar króna (35-45 milljónir dala), segir í tilkynningu frá félaginu.

Markaðs­virði Icelandair er í tæplega 33 milljarðar, en eigið fé 62,2 milljarðar eins og áður segir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár