Gunnar Bragi gerir athugasemd við ummæli talskonu ESB

Gunnar Bragi Sveinsson utan­ríkis­ráðherra hefur gert athuga­semdir við ummæli talskonu framkvæmda­stjóra nágranna­stefnu og aðildar­viðræðna um bréfið sem hann sendi frá sér í gær. Gunnar Bragi segir í samtali við mbl.is að talskonan Maja Kocijanic hafi ekki farið rétt með og að búið sé að hafa samband við hana vegna þess.

Á blaðamanna­fundi framkvæmda­stjórnarinnar fyrr í dag sagði Kocijanic að Ísland hefði ekki formlega dregið umsókn sína um aðild að Evrópu­sambandinu til baka. Viðræðum hefði verið frestað um tvö ár, en ef stjórn­völd ákvæðu að draga umsóknina formlega til baka þyrfti að leggja þá ákvörðun fyrir ráðherra­ráðið. Það myndi svo taka ákvörðun um fram­haldið.

„Það er alveg greinilegt að þessi ágæti talsmaður er engan veginn með það á hreinu sem stendur í bréfinu enda setur hún þarna fram full­yrðingar um atriði sem hvergi koma þar fram,“ segir Gunnar Bragi við mbl.is. Á hann þá við ummælin um að í raun hafi viðræðum verið frestað um tvö ár, vegna þess að aldrei sé minnst á tveggja ára tímabil í bréfi ríkis­stjórnarinnar.

Hér má sjá ummæli Kocijanic um Ísland á fundinum fyrr í dag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár