Palestínska stúlkan sem grét í samræðum við Merkel fær að vera í Þýskalandi

Unglings­stúlka frá Palestínu, sem hefur vakið mikla athygli eftir að hún brast í grát í umræðum við Angelu Merkel Þýska­lands­kanslara, fær að vera áfram í Þýska­landi. Talsmaður borgar­stjórans í Rostock, þar sem hún býr, segir að engin áform séu uppi um að senda stúlkuna og fjöl­skyldu hennar úr landi.

Myndband af samskiptum stúlkunnar, sem heitir Reem, við Merkel hefur farið sem eldur í sinu um internetið síðustu daga. Þau áttu sér stað í sjónvarps­þætti þar sem rætt var um Þýskaland, og stúlkan sagði Merkel frá því að hún og fjöl­skylda hennar hefðu komið til Rostock í Þýska­landi fyrir fjórum árum úr flóttamanna­búðum í Líbanon. Hún talaði um skóla­félaga sína og sagði við kanslarann „ég hef markmið eins og allir aðrir. Mig langar að læra eins og þau...það er mjög óþægilegt að sjá hvernig aðrir fá að njóta lífsins, en ég get það ekki.“

Merkel svaraði Reem og sagðist skilja stöðu hennar, en að stjórnmál væru stundum erfið. Það væru þúsundir á þúsundir ofan í palestínskum flóttamanna­búðum í Líbanon og það væri ekki hægt að leyfa öllum að koma.

Reem brast í grát á meðan Merkel var að tala, sem varð til þess að kanslarinn fór til hennar og strauk henni og reyndi að hugga hana.

Þjóð­verjar tóku á móti 200 þúsund hælis­leitendum í fyrra og búist er við allt að 450 þúsundum á þessu ári.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár