Christiano Ronaldo gaf umboðsmanni sínum gríska eyju í brúðkaupsgjöf

Knattspyrnu­maðurinn Christiano Ronaldo, sem leikur með Real Madrid á Spáni, gaf umboðs­manni sínum, Jorge Mendes, gríska eyju að gjöf þegar Mendes gekk að eiga heitkonu sína til rúmlega áratugar, Söndru Barbosa, á sunnudag. Eyjan hefur enn ekki fengið nafn en samkvæmt vef BBC hleypur verð­miðinn á henni á milljónum punda.

Ronaldo var í þriðja sæti yfir þá íþrótta­menn sem þénuðu mest á 2015-lista Forbes. Árlegar tekjur hans eru þar áætlaðar um 80 milljónir dala, um 10,7 milljarðar króna. Þessi þrítugi knattspyrnu­snillingur, sem hefur þrisvar verið valinn besti knattspyrnu­maður heims, er líka ríkasti knattspyrnu­maður í heimi og eignir hans eru metnar á um 32 milljarða króna.

Mendes hefur verið umboðs­maður um langt skeið og Ronaldo var svara­maður í brúðkaupinu sem fór fram í Porto á Portúgal. Brúðhjónin hafa verið saman í um áratug og eiga þrjú börn. Mendes er sjálfur ekki á flæðis­keri staddur fjárhags­lega en hann tekur fyrirtæki sem kallast Gestifute og sér um að þróa og selja efnilega knattspyrnu­menn. Auður hans er metinn á tæplega 15 milljarða króna.

Fjöldi grískra eyja hafa verið boðnar til sölu í kjölfar efnahags­erfiðleika gríska ríkisins. Á síðunni Private Islands Online segir að hægt sé að kaupa sér eyju við Grikkland á allt niður í um 450 milljónir króna.

Margir heims­þekktir aðilar úr knattspyrnu­heiminum voru viðstaddir brúðkaupið. Má þar nefna Sir Alex Ferguson (fyrrum knattspyrnu­stjóri Manchester United), Roman Abramovich (eigandi Chelsea), Florentino Perez (forseti Real Madrid) og Luis Filipe Viera (forseti Benfica).

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár