Ungverjar lýsa yfir neyðarástandi og geta beitt hernum gegn flóttamönnum

Stjórn­völd í Ungverja­landi lýstu í dag yfir neyðar­ástandi í tveimur sýslum við landamæri Serbíu í suður­hluta landsins. Með því að lýsa yfir neyðar­ástandi er herliði landsins heimilað að aðstoða lögregluna við landamæra­eftirlit og aðrar skyldur sem tengjast straumi flótta­manna til landsins.

Mikið hefur gengið á við landamæri Ungverja­lands og ástandið þar eldfimt. Í gær tóku í gildi strangari lög um flótta­fólk sem refsivæða það að fara ólöglega inn í landið og heimila þannig lögreglunni að handtaka hvern þann sem reynir að komast yfir girðinguna sem liggur við landamæri Serbíu og Ungverja­lands.

Að sögn ungverskra stjórn­valda komu yfir níu þúsund flótta­menn inn í landið í gær, á mánudag, og er það nýtt met. Á miðnætti tóku í gildi hertari lög og landa­mærunum var lokað.

Gyorgy Bakondi, sérstakur varnarmála­ráðgjafi forsætis­ráðherra landsins, tilkynnti í dag að sérstakt svæði hafi verið skilgreint fyrir flótta­menn við landa­mærin. Þeir sem koma þangað og óski eftir hæli verði sendir til baka til Serbíu. Skilgreinda svæðið er lagalega ekki Ungverja­land, sagði Bakondi við blaðamenn í dag, samkvæmt frásögn The Guardian.

Bakondi sagði að fjöldi Sýrlendinga sem hafi komið inn í Ungverja­land á síðustu þremur mánuðum sé 66.896. Hann benti á að flótta­menn frá 74 öðrum löndum hafi komið til landsins á sama tímabili, þar á meðal 32.900 frá Afganistan og 3.630 frá Írak. Alls hafa 171 þúsund manns óskað eftir hæli á síðustu þremur mánuðum. Aðeins 300 hefur verið veitt hæli á sama tíma og 4.000 hefur verið synjað og sendir úr landi. Umsóknar­ferli 65 þúsund annarra hefur verið hætt vegna þess að umsækjendur „hurfu“, sagði Bakondi blaða­mönnum. Um 95 þúsund umsóknir eru nú til skoðunar.

Engin niður­staða fékkst á ráðherra­fundi Evrópu­sambands­landa og Schengen-ríkja um málefni flótta­manna í gær. Tillaga framkvæmda­stjórnar Evrópu­sambandsins um að 120 þúsund flótta­mönnum, sem nú halda til í Grikk­landi, Ítalíu og Ungverja­landi, verði dreift um álfuna með bindnandi kvótum, náði ekki fram að ganga. Ákveðið hefur verið að 40 þúsund flótta­menn flytjist frá Ítalíu og Grikk­landi en að öðru leyti standa viðræður ríkjanna óleystar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár