Kosningar í Grikklandi verða 20. september

Alexis Tsipras, forsætis­ráðherra Grikk­lands, mun síðar í dag boða til kosninga í landinu þann 20. september næst­komandi. Þetta gerir forsætis­ráðherrann til að bregðast við uppreisn innan stjórnar­flokksins Syriza í tengslum við neyðarlána­pakkann sem grísk stjórn­völd sömdu við lána­drottna sína. Fyrsta greiðslan úr þessum þriðja neyðarlána­pakka til Grikk­lands barst í morgun, þrettán milljarðar evra, og Grikkir greiddu strax í kjölfarið afborgun af láni til Seðla­banka Evrópu.

Frétta­stofa BBC greinir frá fyrir­hugaðri tilkynningu Tsipras en háværar sögu­sagnir hafa verið síðustu daga og klukku­stundir um að hann boði til kosninga.


Greek PM Tsipras informing party leaders of his decision to head for snap elections. Ballot date likely to be Sept 20, sources say #Greece


— Kathimerini English (@ekathimerini) August 20, 2015

Gríska stjórnar­skráin gerir ráð fyrir að sitjandi stjórn­völd segi af sér og tíma­bundinn forsætis­ráðherra er skipaður fram yfir kosningar, þar til búið er að skipa nýjan forsætisráherra. Lögum samkvæmt tekur forseti Hæstaréttar Grikk­lands við embætti forsætis­ráðherra tíma­bundið.

Þann 1. júlí síðastliðinn varð Vassiliki Thanou-Chritophilou forseti Hæstaréttar og yrði hún fyrsti kvenkyns forsætis­ráðherra Grikk­lands.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár