Freyðir í munni en eyðir jörð

Aðeins nokkrum vikum eftir að hæð­irnar umhverfis ítalska þorpið Miane voru settar á heimsminja­skrá UNESCO fóru und­ar­legir hlutir að ger­ast. Það hafði þó ekk­ert með UNESCO að gera heldur hið heims­fræga freyði­vín prosecco.

Prosecco-hæðirnar, núna oft kallaðar UNESCO-hæðirnar, njóta verndar vegna menningarlangslags.
Prosecco-hæð­irnar, núna oft kall­aðar UNESCO-hæð­irnar, njóta verndar vegna menn­ing­ar­langslags. Mynd: UNESCO

Þorsta fólks í ítalska freyði­vínið prosecco virð­ist vart hægt að svala. Svo mik­ill er hann að sífellt fleiri svæði þarf til að rækta glera-þrúg­una sem ásamt tank­að­ferð­inni gerir vínið ferskt og ávaxta­ríkt og því kjörið í hverskyns kok­teila.

En það voru þó ekki glað­vær hlátra­sköll freyði­víns­unn­enda sem vöktu íbúa þorps­ins Miane morgun einn í júlí árið 2019. Nei, það voru keðju­sagir. Og verið var að nota þær til að fella ára­tuga gömul tré.

Þetta fannst þorps­búum skjóta skökku við því aðeins nokkrum vikum fyrr hafði þeim hlotn­ast sá heiður að koma hæð­unum trj­á­vöxnu umhverfis þorpið á heimsminja­skrá UNESCO.

Miane er í Treviso-hér­aði á Ítalíu. Það hérað er í dag þekkt­ast fyrir fram­leiðslu á hinu freyð­andi prosecco. Það var einmitt vegna hennar sem kveikt var á keðju­sög­unum: Til að fella tré svo breyta mætti hæð­unum sem þau huldu í vín­ekrur.

Íbúar í Miane eru ekki þeir einu sem finnst nóg komið. Íbúar fjórtán ann­arra þorpa í nágrenni UNESCO-hæð­anna í Conegliano og Valdobb­i­adene, eins og þær eru almennt kall­aðar í dag, eru á sama máli. Sumir hafa sagt rányrkju vera að eiga sér stað.

Vínekrur hafa í ára­tugi og jafn­vel lengur sett svip sinn á svæðið. „En núna er þetta komið úr bönd­unum,“ hefur Guardian eftir Fabio Magro sem hefur búið þar allt sitt líf. Skógur var ruddur til að búa til vín, segir hann. Um þaul­ræktun sé að ræða, þétt­leik­inn á ekr­unum mik­ill og skor­dýra­eitur liggi í loft­inu fyrir utan her­berg­is­glugga barn­anna hans.

Vín­fram­leiðsla hefur dafnað sér­stak­lega vel á þessu svæði og fleirum á Norð­austur-Ítalíu eftir árið 2009 eftir að prosecco fékk sér­staka við­ur­kenn­ingu land­bún­að­ar­ráðu­neyt­is­ins gæðum þess til stað­fest­ingar. Að auki hafa styrkir til vín­fram­leiðslu í Veneto-hér­aði verið mjög drjúgir og meiri­hluti fjár­ins farið til fram­leiðslu á prosecco.

Þetta hefur orðið til þess að atvinnu­líf á mörgum svæðum er orðið ein­hæft. Það eru bók­staf­lega allir á kafi í prosecco. Reyndir bændur hafa hætt hefð­bundn­ari land­bún­aði og snúið sér að vín­rækt. Það á einnig við um fólk sem hefur ekki nokk­urra reynslu af jarð­rækt. Vínekrur skulu það vera.

Þegar gróður á stórum svæðum verður ein­hæf­ari skap­ast aukin hætta á hraðri útbreiðslu skor­dýra sem þessar til­teknu teg­undar girn­ast. Og þá grípa vín­fram­leið­end­urnir til notk­unar skor­dýra­eit­urs. Í frétt Guardian segir að 36 pró­sent meira af skor­dýra­eitri sé notað í hér­uð­unum sem fram­leiða prosecco nú en fyrir átta árum.

Jarð­vegseyð­ing er einnig orðið vanda­mál. Nið­ur­staða rann­sóknar sem gerð var árið 2019 var sú að um 400 millj­ónir kílóa af jarð­vegi tap­ist árlega vegna fram­leiðslu á prosecco. Aftur er það þétt­leiki á vín­ekr­unum sem þessu veldur. Því það þarf mikið land – og alltaf meira – til að halda áfram að svala þorst­anum í prosecco. Um 500 millj­ónir flaska af því eru fram­leiddar ár hvert á Ítalíu.

En þegar heilu hér­uðin eru farin að stóla svo mikið á eina atvinnu­grein – og eina fram­leiðslu­vöru í þeirri atvinnu­grein – þá eiga þeir sem gagn­rýna fram­leiðsl­una ekki von á góðu. Corrado Pizziolo, biskup í UNESCO-bænum Vittorio Veneto, var lát­inn heyra það eftir að hafa hvatt opin­ber­lega til meiri sjálf­bærni í prosecco-fram­leiðsl­unni. „Við þurfum að sýna meiri ábyrgð,“ segir hann. Hæðirnar ofan við litlu þorpin séu gjöf­ular en þeim þurfi að sýna virð­ingu. Einhæf ræktun hafi nei­kvæð áhrif á umhverfið og ofræktin gæti átt eftir að koma í bakið á Ítölum.

Stjórn­mála­leið­togar á svæð­inu gera lítið úr áhyggjum fólks vegna fram­leiðsl­unnar og segir vel fylgst með málum og að þró­unin sé alls ekki stjórn­laus. Nýlegar við­bætur við vín­ekrurnar séu aðeins tíma­bundin aðgerð til að bregð­ast við breyti­legu (árs­tíða­bundnu) veð­ur­fari og þá einnig til að bregð­ast við hinni gríð­ar­legu eft­ir­spurn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár