Jón Steindór: Mikið óréttlæti í uppsiglingu sem verður að leiðrétta

Um 30 fötluð ung­menni fá ekki inn­göngu á starfs­greina­brautir fram­halds­skól­anna á kom­andi skóla­ári. Þing­maður Við­reisnar segir að alþing­is­menn verði að bregð­ast við því ótrú­lega órétt­læti sem fötluð börn eru beitt.

Jón Steindór Valdimarsson, þingmaður Viðreisnar.
Jón Steindór Valdi­mars­son, þing­maður Við­reisnar. Mynd: Bára Huld Beck

Jón Steindór Valdi­mars­son þing­maður Við­reisnar hefur lagt fram breyt­ing­ar­til­lögu við fjár­auka­lög sem felur í sér 110 milljón króna fjár­veit­ingu til að tryggja nýjum nem­endum á starfs­braut og sér­náms­braut í mennta­skólum vist í þeim skólum sem best henta aðstæðum þeirra og þörfum. Fjár­hæðin gerir ráð fyrir ráðn­ingu 10 nýrra starfs­manna eða kenn­ara að við­bættum 16 millj­ónum króna vegna ann­ars kostn­aðar.

Í stöðu­upp­færslu á Facebook segir að hann til­gang­ur­inn sé að rétta hlut 30 barna sem séu miklum rang­indum beitt. „Á loka­dögum þings­ins er verið að ræða frum­varp til fjár­auka­laga. Við það tæki­færi benti ég á mikið órétt­læti sem er í upp­sigl­ingu og verður að leið­rétta,“ skrifar hann.

Í ræðu sinni á Alþingi í gær sagði hann að málið væri ein­fald­lega þannig vaxið að alþing­is­menn gætu ekki verið „þekktir fyrir annað en bregð­ast við því ótrú­lega órétt­læti sem fötluð börn eru beitt með því að neita hluta þeirra sem nú ættu að setj­ast á skóla­bekk með félögum sínum á starfs­greina­brautum fram­halds­skól­anna“.

„Þau eru skilin eftir af því að það eru ekki pláss og peningar til að sinna þeim“

Um 30 fötluð ung­menni fá ekki inn­göngu á starfs­greina­brautir fram­halds­skól­anna á kom­andi skóla­ári. „Vandinn virð­ist að mestu bund­inn við höf­uð­borg­ar­svæðið. Því er borið við að nú sé um óvenju­lega stóran árgang að ræða en það má nú segja að þetta hljóti að hafa verið vitað síð­ast­liðin 16 ár að skóla­kerfið þyrfti að geta tekið við þessum börnum núna haustið 2021. Stærð árgangs­ins getur ekki hafa komið yfir­völdum á óvart,“ benti þing­mað­ur­inn á í ræðu sinni á þingi í gær.

„Ágætu þing­menn. Hugsið ykkur nú eitt augna­blik að vera fatlað barn sem hefur hlakkað til þess að fara af einu skóla­stigi á annað með félögum sínum. Svo taka til­kynn­ingar að ber­ast um að Nonni vinur sé komin inn í þennan skóla, Stína vin­kona inn í hinn og svo áfram og áfram, en Siggi og Sigga bíða hins vegar og engin til­kynn­ing um skóla­vist berst þeim. Þau eru skilin eftir af því að það eru ekki pláss og pen­ingar til að sinna þeim. Er nokkuð dap­ur­legra hægt að hugsa sér fyrir þessi börn og aðstand­endur þeirra? Nei, það held ég varla,“ sagði hann.

Biðin setur fötluð ungmenni í afar vonda stöðu

Þroska­hjálp sendi frá sér yfir­lýs­ingu vegna máls­ins í gær en í henni harma sam­tökin þá stöðu sem upp er komin vegna inn­rit­unar á starfs­brautir fram­halds­skól­anna.

„Það er með öllu óásætt­an­legt að mennta­kerfið geri ekki ráð fyrir öllum útskrif­uðum ung­mennum úr grunn­skóla í nám á fram­halds­skóla­stigi. Bið sem þessi setur fötluð ung­menni í afar vonda stöðu. Það er með öllu ófor­svar­an­legt að ekki hafi verið gerðar ráð­staf­anir af hálfu hlut­að­eig­andi skóla­yf­ir­valda í tíma þar sem legið hefur lengi hversu fjöl­mennur hóp­ur­inn er ár hvert,“ segir í yfir­lýs­ing­unni.

Samtökin krefj­ast þess að öllum nem­endum sem vilja inn­rit­ast á starfs­braut verði tryggð hnökra­laus inn­ritun og góðar og styðj­andi aðstæður til náms þar sem þörfum hvers og eins nem­anda er mætt.

Þetta ætti ekki að koma skólayfirvöldum á óvart

Vísar Þroska­hjálp í yfir­lýs­ingu kennslu­stjóra sér­náms­brauta og starfs­brauta í fram­halds­skólum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu þar sem þeir lýstu yfir von­brigðum og óánægju með inn­rit­un­ar­ferli á sér­náms­brautir og starfs­brautir.

Í yfir­lýs­ing­unni eru ann­markar á inn­töku­ferl­inu gagn­rýndir þar sem það komi niður á und­ir­bún­ingi nýrra nem­enda sem hefja fram­halds­skóla­nám í haust. Þá gagn­rýna kennslu­stjór­arnir aukna kröfu um að taka æ fleiri nem­endur inn á braut­irnar og segja þá þróun bitna á námsum­hverfi og ein­stak­ling­smið­uðu námi.

Kennslu­stjór­arnir hvetja til þess að sér­náms­brautum og starfs­brautum verði fjölgað og að allir fram­halds­skólar bjóði upp á slíkt nám og taki þannig þátt í því að skapa skóla­sam­fé­lag án aðgrein­ingar. Loks er í yfir­lýs­ing­unni bent á að fjöldi nem­enda sem inn­rit­ast á sér­náms­brautir ætti ekki að koma skóla­yf­ir­völdum á óvart þar sem ein­falt er að nálg­ast tölu­legar upp­lýs­ingar frá grunn­skólum með góðum fyr­ir­vara.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár