Allt bendir til þess að Grikkir hafi hafnað samkomulaginu

Allar sex sjónvarps­stöðvar Grikk­lands spá því að grískir kjósendur hafni samkomu­lagi við kröfuhafa gríska ríkisins um frekari aðhaldsaðsgerðir í ríkis­rekstri landsins í staðinn fyrir frekari fjárhags­aðstoð. Kjör­staðir lokuðu klukkan 16 og fyrstu útgöngu­spár sýna einnig að Grikkir hafi sagt nei við samkomu­laginu. Þó virðist vera gríðar­lega mjótt á mununum og ljóst að gríska þjóðin er þver­klofin í málinu. Þetta má sjá á vef The Guardian.

Skoðana­kannanir í síðustu viku bentu til þess að samkomu­lagið yrði samþykkt með naumindum en síðustu kannanir sem voru gerðar áður en þjóðar­atkvæða­greiðslan fór fram í dag bentu til þess að það væri að dragast hratt saman milli fylkingu.

Búist er við þvi að Syriza-flokkurinn, sem leiðir ríkis­stjórn Grikk­lands, muni nota þessa niður­stöður, verði hún staðfest að lokinni talningu, til að taka nýju tilboði þríeykisins kröfuhafa landsins, sem samanstendur af Alþjóða­gjaldeyris­sjóðnum, Evrópska Seðla­bankanum og framkvæmda­stjórn Evrópu­sambandsins.

Bankar í Grikk­landi voru lokaðir alla síðustu viku og geta Grikkir ekki tekið hærri fjárhæð en 60 evrur, ríflega átta þúsund krónur, úr hrað­bönkum á dag. Fjölmörgun hrað­bönkum hefur auk þess verið lokað þar sem ekki var til reiðufé til að fylla á þá. Óvissa um fram­haldið hefur leitt til óvenjulegra aðstæðna í landinu, svo ekki sé meira sagt, þar sem langar biðraðir myndast við hraðbanka og bæði launþegar og atvinnu­rekendur vita ekkert um framhald mála.

Sérfræðingar segja að bregðast verði strax við því ástandi sem ríkir í banka­kerfi landsins og því er búist við að viðræður milli Grikkja og þríeykisins hefjist að nýju strax í kvöld í Brussel.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár