Jóna Hrönn biðst afsökunar: „Það er ekki ósk mín að þeir Frosti og Þorkell Máni verði atvinnulausir“

Séra Jóna Hrönn Bolla­dóttir skoraði á fólk að sniðganga Stöð 2 á meðan Frosti Logason og Þorkell Máni Pétursson stýra Harmageddon. Prestar kvörtuðu undan meintum dónaskap Frosta gagnvart miðli sem hann mætti í sjónvarpssal. Félagi hans kveður þjóð­kirkjuna.

Reiður prestur
Reiður prestur Séra Jóna Hrönn Bolla­dóttir hvatti fólk til að hætta að horfa á Stöð 2. Í kjöl­farið gekk Máni úr þjóð­kirkj­unni en Jóna Hrönn er sókn­ar­prestur í Garða­sókn, þar sem hann býr.

Séra Jóna Hrönn Bolla­dóttir biðst afsökunar á þeim ummælum sem hún lét falla í gær, um að fólk ætti að sniðganga Stöð 2 á meðan þeir Frosti Logason og Þorkell Máni Pétursson stýri þar umræðunni. „Orð vega þungt og ég finn að menn hafa brugðist mjög reiðir við þessari setningu sem fannst á kommenta­kerfinu frá mér og ég tek mark á þeirri reiði og geri ekki lítið úr henni. Ég óska þess ekki að Frosta og Þorkeli Mána farnist illa, í raun bið ég þeim allra blessunar,“ segir Jóna Hrönn í stöðu­uppfærslu á Facebook.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár