Lavrov: Bandaríkin verða að vinna með Assad í Sýrlandi

Sergei Lavrov, utan­ríkis­ráðherra Rússlands, lét hafa eftir sér í rússneskum miðlum í dag að Banda­ríkin verði að hefja samstarf með stjórn Bashar al-Assad í Sýrlandi, eigi að vinnast sigur gegn Íslamska ríkinu. Sigur verði ekki unninn nema með alþjóðlegri samvinnu.

Banda­ríkin sendu í morgun sex F-16 orustu­þotur til Tyrklands sem eiga að halda áfram loft­árásum á svæði undir stjórn Íslamska ríkisins í Sýrlandi og Írak. Tyrkir samþykktu nýlega að her banda­manna gegn Íslamska ríkinu fengi að nota flugvelli í Tyrklandi.

Stjórn­völd í Moskvu hafa hins vegar gagnrýnt Banda­ríkin fyrir að vilja ekki vinna með stjórn­völdum í Sýrlandi, banda­mönnum Rússa, í stríðinu gegn Íslamska ríkinu. „Vinir okkar í Banda­ríkjunum og fleiri löndum hafa ítrekað neitað að viðurkenna Assad sem bandamann, sem er skrítið,“ sagði Lavrov. Reuters greinir frá.

„Assad er gildur banda­maður þegar kemur að útrýmingu efnavopna en einhvernveginn er hann það ekki þegar kemur að baráttu gegn hryðju­verkum,“ sagði Lavrov enn fremur og vísaði til samkomu­lags milli Sýrlands, Rússlands og Banda­ríkjanna um útrýmingu efnavopna fyrir botni Miðjarðar­hafsins.

Banda­ríkin, Sádí-Arabía og stjórnar­andstæðingar í Sýrlandi hafa ekki viljað vinna með Assad vegna þess að þeir eru á einu máli um að hann verði að láta af völdum. Samvinna með honum gegn Íslamska ríkinu gæti reynst stuðnings­yfirlýsing við hann og stöðu hans.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár