Atvinnulausum innan ESB hefur fækkað um 1,9 milljónir á einu ári

Atvinnu­ástandið innan ríkja Evrópu­sambandsins hefur lagast ár frá ári síðastliðinn áratug. Nú er staðan sú að atvinnu­leysi innan þess mælist 6,8 prósent.

Ungmenni í Evrópusambandslandi.
Ungmenni í Evr­ópu­sam­bands­landi. Mynd: Bára Huld Beck

Atvinnu­leysi innan Evrópu­sambandsins (ESB) hélt áfram að lækka í júlí­mánuði og mældist þá 6,8 prósent. Það er lægsta atvinnu­leysi sem mælst hefur innan sambandsins frá því fyrir fjármála­hrunið sem varð haustið 2008. Þetta kemur fram í nýjum tölum frá Eurostat, hagstofu Evrópu­sambandsins.

Þar segir að fjöldi atvinnu­lausra innan Evr­ópu­sam­bands­ríkj­anna hafi verið 16,8 millj­ónir í júlí. Þar af bjuggu 13,3 millj­ónir þeirra innan þeirra ríkja sem eru með evru sem gjald­mið­il, en atvinnu­leysi innan þess svæðis mæld­ist 8,2 pró­sent og hefur einnig farið hratt lækkandi. Það er minnsta atvinnu­leysi sem mælst hefur innan evru­svæðisins frá því í lok árs 2008.

Atvinnu­lausum innan Evrópu­sambandsins hefur fækkað um 1,9 milljónir á einu ári. Dregið hefur úr atvinnu­leysinu í öllum aðildar­ríkjunum 28. Mestur hefur samdrátturinn verið á Kýpur þar sem atvinnu­leysi hefur farið úr 10,7 prósent í júlí 2017 í 7,7 prósent ári síðar. Í Grikk­landi, þar sem atvinnu­leysi er mest, hefur einnig orðið breyting til batnaðar og atvinnu­lausum fækkað úr 19,8 prósent vinnu­færra manna í 21,7 prósent.

Til sam­an­­burðar má nefna að atvinn­u­­leysi í Banda­­ríkj­unum var 3,9 pró­­sent í júlí 2018. Á Íslandi er það 2,5 pró­­sent samkvæmt nýjustu mælingum Hagstofu Íslands.

Atvinnulausum ungmennum fækkar mikið

Atvinn­u­­leysi á meðal ungs fólks hefur lengi verið mikið vanda­­mál í sumum Evr­­ópu­­sam­­bands­­ríkj­um. Í júlí voru 3,3 milljónir manna undir 25 ára aldri án atvinnu í löndum sambandsins.

Þeim ungmennum sem eru atvinnu­laus í Evrópu­sambandinu hefur hins vegar fækkað um 466 þúsund á einu ári. Fæst ungmenn eru atvinnu­laus í Þýska­landi (6,1 prósent) en flest í Grikk­landi (39,7 prósent).

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár