Tíu mikilvægustu hlutirnir sem eru að gerast í heiminum í dag

Þótt ótrúlegt megi virðast þá er ýmislegt annað að gerast í heiminum í dag en umræða um þöggun í Vestmanna­eyjum, vera sela á íslenskum tjald­stæðum og tíðindi af magni umferðar á Suður­landsvegi. Business Insider tekur reglulega saman lista yfir merkilegustu hlutina sem eru að gerast í heiminum í dag. Að venju kennir ýmissa grasa á listanum.


  1. Yfirvöld í Malasíu hafa staðfest að brakið sem fannst á eyju í Indlands­hafi sé að Boeing 777-þotu, sem er sama tegund og hin týnda vél Malaysian Airlines, MH 370, var. Vélin hvarf snemma á síðasta ári.

  2. Grikkir gætu beðið um allt að 24 milljarða evra, rúmlega 3.500 milljarða króna, þegar fyrsti áfangi nýs björgunar­pakka frá kröfu­höfum landsins verður greiddur út síðar í þessum mánuði. Frá þessu er greint í grískum fjöl­miðlum.

  3. Fjölmargir hafa vottað söng­konunni og sjónvarps­stjörnunni Cillu Black, sem lést á heimili sínu á Spáni í gær, virðingu sína. Banamein hennar Black, sem var 72 ára þegar hún lést, liggur ekki fyrir en krufning fer fram síðar í dag.

  4. Breski stór­bankinn HSBC tilkynnti í dag að tekjur hans hefðu aukist um tíu prósent á fyrri helmingi ársins 2015, miðað við sama tímabil í fyrra. Ástæðan er gríðarleg hagnaðar­aukning hjá starfsstöð bankans í Hong Kong, en HSBC hefur verið að íhuga að færa höfuð­stöðvar sínar frá London til Hong Kong vegna aukinna umsvifa sinna þar.

  5. Tujia, kínversk fyrirtæki sem leigir út heimili fólks á svipaðan hátt og Airbnb, tilkynnti um það í morgun að það hefði safnað um 300 milljónum dala, um 40,3 milljörðum króna, frá fjár­festum í nýafstöðnu hlutafjár­útboði. Tilgangurinn er að auka rekstur Tujia í öðrum löndum.

  6. Rapparinn Snoop Dogg, sem nýverið heimsótti Íslands, heldur áfram að rata í vandræði. Hann var stöðvaður af lögreglu á Ítalíu á föstudag þar sem að hann var að fara um borð í einkaþotu á leið til Bretlands með 422 þúsund dali, um 57 milljónir króna, í reiðufé á sér. Reiðuféð var í Lous Vuitton tösku í eigu rapparans.

  7. Volkswagen hefur tekið fram úr Toyota í fram­leiðslu á bílum og er nú stærsti bíla­fram­leiðandi í heimi. Takmarkinu var náð þremur árum fyrr en áætlanir þýska bíla­risans gerðu ráð fyrir.

  8. Grikkland mun steig enn eitt skrefið í átt frá efnahags­legum glundroða þegar kaup­höllin í Aþenu var opnuð á ný eftir að hafa verið lokuð í fimm vikur. Líkt og við var búist féll verð hluta­bréfa skarpt við opnunina.

  9. Notkun ólöglegra lyfja til þess að bæta árangur er mun útbreiddari í frjálsum íþróttum en áður var talið, en samkvæmt rannsókn sem unnin var á fimm þúsund einstaklingum í frjálsum íþróttum var einn af hverjum sjö með ólögleg lyf í blóðinu. Þetta kemur fram í gögnum sem Alþjóða frjáls­íþrótta­sambandið, IAAF, hefur til skoðunar. Samkvæmt þeim var um þriðjungur verðlauna sem unnið var til á Olympíuleikum eða heims­meistara­mótum á tíu ára tímabili unnin af íþrótta­mönnum þar sem grunur leikur á lyfja­notkun.

  10. Barack Obama kynnti í gær til sögunnar nýja orku­áætlun Banda­ríkjanna. Samkvæmt henni verða rekstrar­aðilar bandarískra kola­orkuvera verða skikkaðir til að draga mjög úr losun koltvísýrings af þeirra völdum á næstu 15 árum. Búist er við hatrömmum mótmælum frá hagsmuna­aðilum vegna þessa.


Og að lokum....

Fyrsta stiklan úr Zoolander 2 hefur verið gerð opinber á netinu. Og hún er mjög fyndin.

https://youtu.be/09nTwccQTUA

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár