Búið að boða mótmæli á Austurvelli í kvöld klukkan átta vegna ESB-viðræðurslita

Búið er að boða til mótmæla vegna ákvörðunar ríkis­stjórnarinnar um að binda enda á viðræður við Evrópu­sambandið á Austur­velli klukkan átta í kvöld. Í tilkynningu á Facebook síðu mótmælanna segir: "Ríkis­stjórn Íslands hefur ákveðið að slíta endanlega viðræðum við Evrópu­sambandið og með því kosið að hunsa vilja þjóðarinnar í einu og öllu. Ákvörðunin er tekinn með sérhagsmuni í huga en ekki hagsmuni þjóðarinnar.

Mætum á Austur­völl í kvöld og sendum ríkis­stjórninni sterk skilaboð, hvort ísland semji við Evrópu­sambandið er ákvörðun allar íslendinga í þjóðar­atkvæða­greiðslu en ekki einhliða ákvörðun Fram­sóknar- og Sjálfstæðis­flokksins."

Á Vísi.is er rætt við Jóhannes Benediktsson, einn aðstand­enda mótmælanna. Hann segir mikla reiði ríkja vegna ákvörðunar ríkis­stjórnarinnar. „Það er alger sturlun það sem þeir gerðu. Þetta á ekki að vera í boði. Íslendingar láta ekki bjóða sér þetta.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár