Flóttamannakrísa: Bretar taka við fleirum og Þjóðverjar auka framlög

David Cameron, forsætis­ráðherra Bretlands, mun í dag kynna áætlun stjórn­valda til að mæta straumi flótta­manna frá Sýrlandi og sögulegri fjölgum hælis­leitenda í Evrópu. Búist er við að Cameron upplýsi um þann fjölda flótta­manna sem Bretlandi mun taka við, en forsætis­ráðherrann hefur áður sagt að tekið verði við þúsundum flótta­manna og að líklega verði um að ræða flótta­menn sem eru ekki þegar komnir til Evrópu. BBC greinir frá þessu í dag.

Um 420 þúsund Bretar hafa nú skrifað undir áskorun til stjórn­valda um að tekið verði á móti fleiri flótta­mönnum. Á sama tíma hafa um 71 þúsund manns skrifað undir áskorun þess efnis að ekki eigi að taka á móti fleirum. Cameron tjáði sig um málið síðasta föstudag og sagði að Bretland myndi leitast við að taka á móti flótta­mönnum sem nú búa við bág skilyrði í flóttamanna­búðum nærri landa­mærum Sýrland. Þannig væri reynt að koma í veg fyrir að fólkið leiti til smyglara á leið sinni til Evrópu.


Í Þýska­landi samþykkti stjórnar­meirihlutinn að auka útgjöld um sex milljarða evra á þessu ári til að mæta komu flótta­manna og hælis­leitenda. Áætlað er að um átján þúsund manns hafi komið til Þýska­lands um liðna helgi, eftir langt og strangt ferðalag um Evrópu frá heima­löndum sínum. Alls búast þýsk stjórn­völd við komu um 800 þúsund hælis­leitenda en stjórn Merkel, kanslara Þýska­lands, hefur lýst sig reiðubúna að taka á móti mun fleiri flótta­mönnum en ríkis­stjórnir annarra Evrópu­ríkja. Fram kemur í frétt The Guardian að þrír milljarðar evra fari beint til sveitar­stjórna til að mæta auknum húnsæðis­kostnaði. Þremur milljörðum evra til viðbótar verða notaðir til að mæta kostnaði öðrum kostnaði við velferðar­kerfið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár