Fyrrverandi formenn stjórnarflokka gagnrýna ríkisstjórnina harðlega

Fyrr­verandi formenn Sjálfstæðis­flokksins og Framsóknar­flokksins hafa í dag gagnrýnt aðgerðir ríkis­stjórnarinnar í ESB-málinu harðlega. Þorsteinn Pálsson og Valgerður Sverris­dóttir skrifa bæði pistla á vefsíðu Hringbrautar um málið.

„Ráðherrar geta ekki breytt ákvörðunum Alþingis. Það er andstætt stjórnar­skrá lýðveldisins,“ skrifar Þorsteinn. Hann segir tilkynningu Gunnars Braga Sveins­sonar utan­ríkis­ráðherra vera gerræði og auglýsingu á því hvernig hann „lítilsvirðir löggjafar­samkomu þjóðar sinnar.“

Þorsteinn hvetur þjóðina til að svara þessari ákvörðun og standa „einhuga gegn vald­beitingu Gunnars Braga Sveins­sonar utan­ríkis­ráðherra.“ Það skipti öllu máli að þjóðin taki höndum saman um að endur­heimta ályktunar­vald Alþingis.

Þorsteinn leggur til að stjórnar­andstaðan íhugi að flytja vantrausts­tillögu á utan­ríkis­ráðherra. „Tillögur um vantraust á ráðherra hafa yfirleitt litla þýðingu nema að fyrir liggi að þeir hafi misst traust meirihlutans. En þessi atburður er þess eðlis að það ætti að vera umhugsunar­efni fyrir þingmenn stjórnar­andstöðunnar að flytja tillögu um vantraust á utan­ríkis­ráðherrann. Slíkt vantraust ætti að sjálfsögðu ekki að snúast um afstöðu hans til Evrópu­mála. Það hlyti alfarið lúta að gerræði hans gagnvart Alþingi.“

Segir tillöguna samda utan stjórnarráðsins


Val­gerður Sverr­is­dóttir, fyrr­ver­andi ráð­herra og for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, segir í pistli sínum á Hring­braut að for­ystu­menn Fram­sókn­ar­flokks­ins hafi flutt áróður sem hafi á stundum verið ómál­efna­legur. Hún segir að það gefi auga leið að þessi rík­is­stjórn hafi ekki verið lík­leg til árang­urs í Evr­ópu­málum, enda báðir flokk­arnir mót­fallnir aðild. „Þess vegna var aug­ljóst að besti kost­ur­inn var að láta málið liggja fram yfir kosn­ingar en áður en til þeirra kæmi færi fram þjóð­ar­at­kvæða­greiðsla um vilja þjóð­ar­innar. Enda var þessu lofað af for­ystu­mönnum rík­is­stjórn­ar­innar fyrir kosn­ingar.“

Valgerður segir einnig að það sé ljóst að tillaga um að slíta viðræðum hafi ekki verið tekin inni í stjórnar­ráðinu. „Þegar tekið er mið af hvað ráðherrarnir eiga erfitt með að svara fyrir gjörninginn er ljóst að tillagan hefur verið samin utan stjórnar­ráðsins. Ég læt lesendur um að velta fyrir sér hvaðan hún gæti hafa komið.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár