40 flóttamenn drukknuðu á leið yfir Miðjarðarhafið

Talið er að fjörtíu flótta­menn hafi drukknað í nótt á leið sinni yfir Miðjarðar­hafið frá Norður-Afríku til Ítalíu. Rúmlega 300 flótta­mönn­um var bjargað af bátnum, sem var yfir­fullur af fólki í leit að betra lífi í Evrópu, einkum frá Líbíu.

Að sögn ít­ölsku land­helg­is­gæsl­unn­ar standa björg­un­araðgerðir enn yfir. „Það er enn verið að finna út ná­kvæm­an fjölda lát­inna,“ seg­ir Ang­el­ino Al­fano inn­an­rík­is­ráðherra Ítal­íu í sam­tali við ítölsku frétta­veituna RaiNews24.

Alls hafa um 2.100 flótta­menn drukknað á ferð sinni yfir Miðjarðar­hafið í ár.

Sam­kvæmt nýj­ustu töl­um hafa 237 þúsund flótta­menn kom­ist frá Norður-Afr­íku til Evr­ópu í ár sam­an­borið við 219 þúsund á síðasta ári. Flest­ir setja stefn­una á Ítal­íu, Grikk­land, Spán og Möltu og dvelja margir þeirra í flóttamanna­búðum fyrst um sinn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár