Tveir bandarískir fréttamenn skotnir til bana í beinni útsendingu

Bandarísk frétta­kona, Allison Parker, og töku­maðurinn Adam Ward voru í dag skotin til bana á meðan að þau voru í beinni útsendingu á sjónvarps­stöðinni WDBJ7. Parker og Ward voru að taka upp viðtal í bænum Moneta í Bedford-sýslu, sem er í Virginiu-ríki í Banda­ríkjunum. Samkvæmt frétt BBC um málið átti árásin átti sér stað klukkan 06:45 að staðar­tíma í stórri verslunar­miðstöð, Bridgewater Plaza. Vicki Gardner, formaður viðskipta­ráðs svæðisins, sem var viðmælandi Parker lifði af árásina en slasaðist umtals­vert. Samkvæmt frétt Roanoke Times er hún í bráða­aðgerð.

Hér að neðan er hægt að sjá myndband af útsendingunni. Í því heyrast skot­hvellir og öskur frétta­konunnar og viðmælanda hennar áður en að klippt er aftur í myndver. Varað er við innihaldi þess.

https://www.youtube.com/watch?v=cl8okt4BuU4

Lögreglu­yfirvöld í Moneta segja að rannsókn standi yfir og að leitað sé að ódæðis­manninum. Framkvæmda­stjóri sjónvarps­stöðvarinnar, Jeffrey Marks, sagði í útsendingu fyrir skemmstu samkvæmt frásögn á vef BBC, að Parker og Ward hafi látist klukkan 06:45 að staðar­tíma, skömmu eftir að skot­hvellirnir heyrðust. "Við vitum ekki hver ástæða verknaðarins er né hver sá grunaði eða morðinginn er," sagði Marks. "Ég get ekki sagt ykkur hversu mikið þau voru elskuð af WDBJ7-teyminu...hjörtu okkar eru brostin."

Hægt er að horfa á beina útsendingu frá WDBJ7 hér.

WDBJ7 sjónvarps­stöðin setti stöðu­uppfærslu á Twitter fyrr í dag vegna atburð­anna.


We are trying to figure out what just happened -- thank you all for your concern and kind words.


— WDBJ7 (@WDBJ7) August 26, 2015

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár