Ríkisstjórnin vill veita þeim skattaafslátt sem kaupa þrif heima hjá sér

Hluti af aðgerða­pakka ríkis­stjórnarinnar vegna kóróna­veirunnar er að ýta undir að tekju­lágir þrífi heimili annarra. BSRB telur að aðgerðin geti ýtt undir dreifingu veirunnar og að hún sé ekki góð leið til að auka atvinnu­þátttöku tekju­lágra.

Ríkisstjórnin
Rík­is­stjórnin Frumvarp rík­is­stjórn­ar­innar gerir ráð fyrir 230 millj­arða króna aðgerðum í við­bragði við heims­far­aldri kór­óna­veiru. Mynd af kynn­ingu á rík­is­stjórn­ar­sam­starfi. Mynd: Heiða Helgadóttir

Stéttar­félagið BSRB gagnrýnir þá aðgerð ríkis­stjórnarinnar að endur­greiða kaupendum heima­þrifa allan virðis­aukaskatt, sem lið í viðbrögðum við COVID-19 faraldursins, sem sérstak­lega er ætlað að styðja atvinnu­þátttöku tekju­lágra.

Hluti af aðgerða­pakka ríkis­stjórnarinnar vegna faraldursins er breyting á lögum sem heimilar að fólk sem borgar öðrum fyrir heimilis­þrif og aðra heimilis­aðstoð, í stað þess að sinna verk­efnunum sjálft, njóti skattaívilnunar í formi endur­greiðslu 100% virðis­aukaskatts af kaupunum.

Gæti ýtt undir dreifingu veirunnar

Stéttar­félagið BSRB gagnrýnir tillöguna í umsögn við frum­varpið á Alþingi á þeim grunni að ekki séu „færð rök fyrir því að skortur á fjárhags­legum hvata leiði til þess að hreinlæti á heimilum og í húsfé­lögum sé ábótavant“. 

„Þrif á heimilum annarra samræmast því vart tilmælum heilbrigðis­yfirvalda.“

Auk þess telur BSRB að aðgerðin geti flýtt dreifingu veirunnar. „Þar að auki ríkir samkomu­bann um þessar mundir og hvatt er til þess að fólk haldi sig sem mest heima við. Þrif á heimilum annarra samræmast því vart tilmælum heilbrigðis­yfirvalda.“

Meiri vinna fyrir tekjulága

Ríkis­stjórnin rökstyður aðgerðina meðal annars með því að hún styðji við atvinnu­þátttöku tekju­lægri hópa. „Markmið endur­greiðslunnar er að koma enn frekar til móts við heimilin í landinu og verktaka vegna kórónu­veirunnar með sértækum aðgerðum í þágu þeirra. Samkvæmt embætti land­læknis liggur jafnframt fyrir að almennt hreinlæti er ein mikil­vægasta vörnin gegn smiti a f kórónu­veirunni. Stuðningur í form i endur­greiðslu virðis­aukaskatts til einstaklinga og húsfélaga vegna kaupa á þjónustu í formi heimilis­aðstoðar, ræstinga o.fl. getur þannig skipt máli í barátt­unni við faraldurinn. Þá hefur ívilnunin einnig þau hliðar­áhrif að draga svarta atvinnu­starfsemi vegna veitingar þeirrar þjónustu sem um ræðir upp á yfir­borðið og styðja enn frekar við atvinnu­þátttöku, sérstak­lega hjá tekju­lægri hópum.“

BSRB telur aðgerðina vera óæskilega leið að því markmiði að koma tekju­lágum á vinnu­markaðinn. „Þá mótmælir banda­lagið því að þessi leið sé farin til að „styðja enn frekar við atvinnu­þátttöku, sérstak­lega hjá tekju­lægri hópum“.“

Hluti af 230 milljarða króna aðgerðum

Fyrir er í lögum heimild til sömu endur­greiðslu, en hún miðast eingöngu við þá sem þurfa á þjónustunni að halda vegna heilsu­brests, svo sem aldraðir, fatlaðir eða lang­veikir. Nú geta heilsu­hraustir sem vilja borga öðrum fyrir þrif á heimilum sínum einnig fengið endur­greiðslu, verði frum­varpið samþykkt í óbreyttri mynd.

Endur­greiðsla virðis­aukaskatts af kaupum heima­þrifa eru hluti af heildar­aðgerðunum „Viðspyrna fyrir Ísland - efnahags­aðgerðir stjórn­valda vegna COVID-19“. Aðgerðirnar eru taldar kosta um 230 milljarða króna, eða sem nemur 8 prósent af lands­framleiðslu. Frum­varpið er nú á borði efnahags- og viðskipta­nefndar.

Forseti ASÍ átti hugmyndina

Drífa Snædal, forseti Alþýðu­sambands Íslands, greindi frá því á Facebook-síðu sinni í dag að hún hefði lagt til laga­breytinguna.

„Ég ætla að upplýsa um að þessi hugmynd er komin frá mér enda hefur mér lengi verið hugleikið að gera heimilis­störf og þá þjónustu sem konur veita jafn hátt undir höfði og annarri þjónustu. Átakið „allir vinna“ á sínum tíma var aðallega fyrir iðnaðar­manna­störfin, þ.e. þau störf sem karlar vinna inni á heimilum annarra. Þær konur sem vinna í ræstingum inni á heimilum annarra eru fjölmargar en flestar vinna þær svart og kominn tími til, með sömu rökum og iðnaðar­störfin voru niður­greidd, að koma þessum störfum fram í dags­ljósið. Þar með er líka verið að reyna að tryggja það að konur sem vinna við ræstingar séu nær öðru launa­fólki, byggi upp réttindi eins og aðrir í lífeyris­sjóði, til fæðingar­orlofs o.s.frv. Þetta skiptir máli og heimilis­þrif eiga að vera vinna sem er metin til jafns við aðra vinnu sem framkvæmd er, fyrir rík heimili sem önnur. Svo getum við hugsað saman útfærslu sem miðar að því að sem flest heimili hafi tækifæri til að nýta sér þessa þjónustu eins og aðra þjónustu, jafnvel að fólk sem líkamlega á erfiðara með heimilis­störf geti notið þessarar þjónustu. Þrif eru dæmi um störf sem aðallega konur hafa unnið launa­laust eða án réttinda hingað til. Endilega ræðum!“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hópsýking greindist eftir þorrablót í Brúarási – Guðrún Hafsteins­dóttir meðal gesta

Enn ein matar­sýking er komin upp eftir þorrablót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jökulsár­hlíð á Fljótsdals­héraði á laugar­daginn. Guðrún Hafsteins­dóttir, formanns­efni Sjálfstæðis­flokksins sótti blótið. Samkvæmt Austur­frétt eru Heilbrigðis­eftirlit Austurlans (HAUST) og Heilbrigðis­stofnun Austur­lands (HSA) að vinna að því að rekja uppruna matar­sýkingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laugardags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár