Margir héldu að málið væri í höfn – en svo er ekki

Heil­brigð­is­ráð­herra segir að liggja verði ljóst fyrir hversu miklum pen­ingum verði ráð­stafað í samn­ing við sjálf­stætt starf­andi sál­fræð­inga áður en hann verður gerður til þess að fjár­munum verði varið með sem bestum hætti.

Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra.
Svandís Svav­ars­dóttir, heil­brigð­is­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Alþingi sam­þykkti í lok júní að fella nauð­syn­legar sál­fræði­með­ferðir og aðrar klínískar við­tals­með­ferðir undir greiðslu­þátt­töku­kerfi Sjúkra­trygg­inga Íslands. Frum­varpið var sam­þykkt sam­hljóða með 54 atkvæðum en níu þing­menn voru fjar­staddir.

Margir fögn­uðu frum­varp­inu enda er það ekki á allra færi að fara til sjálf­stæðs starf­andi sál­fræð­ings – en það getur verið mjög kostn­að­ar­samt. Þrátt fyrir sam­þykkt frum­varps­ins er þó ekki gert ráð fyrir eyra­merktu fjár­magni í þessa heil­brigð­is­þjón­ustu í fjár­laga­frum­varpi næsta árs.

Kjarninn spurði Svandísi Svav­ars­dóttur heil­brigð­is­ráð­herra í ítar­legu við­tali í vik­unni hvað stæði í vegi fyrir því að Sjúkra­trygg­ingar Íslands gerðu samn­inga við sjálf­stætt starf­andi sál­fræð­inga.

Svandís sagði að þegar frum­varpið var sam­þykkt og gert að lögum þá hefði henni fund­ist eins og fólk hefði haldið að þarna væri málið í höfn. „En þarna er í raun heim­ild sjúkra­trygg­inga til að semja við sjálf­stætt starf­andi sál­fræð­inga eins og aðrar heil­brigð­is­stéttir.“

Hún telur að næstu skref í mál­inu séu þau að meta hvert umfang samn­ings­ins ætti að vera.

Ríkið sem kaupandi tekur afstöðu til samningsins

Svandís sagði að hún hefði lagt áherslu á það á sínum tíma sem ráð­herra að draga úr greiðslu­þátt­töku sjúk­linga og sett í það fjár­muni.

„Það eru merktar háar fjár­hæðir á fjár­lögum næsta árs í að draga úr greiðslu­þátt­töku sjúk­linga. Við höfðum til dæmis áform um það að draga ennþá úr kostn­aði aldr­aðra og öryrkja við tann­lækn­ingar. Við til dæmis felldum niður komu­gjöld þeirra hópa í heilsu­gæsl­una um síð­ustu ára­mót. Og við höfum verið að skoða ýmsar leiðir til þess hvar við ættum að bera niður varð­andi greiðslu­þátt­töku og þetta er eitt af því sem er á því borði. Ég vænti þess að það skýrist, að minnsta kosti áður en þingið afgreiðir fjár­laga­frum­varpið.“

Samkvæmt ráð­herra mun það skýr­ast hvert umfang samn­ings sjúkra­trygg­inga við sjálf­stætt starf­andi sál­fræð­inga verður. „Það yrði þá eitt­hvað sem ríkið sem kaup­andi slíkrar þjón­ustu myndi taka afstöðu til. Hversu stór slíkur samn­ingur ætti að vera og þá við hverja og svo fram­vegis. Þannig að sú skoðun er í gangi ásamt öðru sem er til skoð­unar varð­andi það að draga úr greiðslu­þátt­töku sjúk­linga.“

Vilji þingsins skýr

Svandís sagði enn fremur að vilji þings­ins hefði verið mjög skýr í þessu máli þegar frum­varpið var sam­þykkt. „Ég hef sjálf verið þeirrar skoð­unar að það sé mik­il­vægt að efla sál­fræði­þjón­ustu almennt, eins og ég hef sýnt með því að stór­auka aðgengi að sál­fræð­ingum á heilsu­gæsl­unni og koma á þessum geð­heilsuteymum. Öll þessi skref lúta að því að efla geð­heil­brigð­is­þjón­ustu og hafa þau verið mjög ofar­lega á dag­skrá hjá mér.“

Hún benti á að Sjúkra­trygg­ingar Íslands gerðu ramma­samn­ing um heil­brigð­is­þjón­ustu við hinar ýmsu stéttir, til að mynda sér­greina­lækna. Varðandi það að gera samn­ing við sjálf­stætt starf­andi sál­fræð­inga þá telur hún að taka verði ákvörðun fyr­ir­fram um hversu margir tímar yrðu keyptir hjá ákveðnum aðilum til þess að fjár­munum yrði varið með sem bestum hætti.

„Við þurfum að vita áður en við förum af stað í raun og veru hversu miklum pen­ingum við ætlum að ráð­stafa í þennan samn­ing.“

Mikilvægt að fólk fái lausn á vanda sínum sem fyrst

Í grein­ar­gerð með frum­varp­inu segir að mark­miðið sé að almenn sál­fræði­þjón­usta falli undir greiðslu­þátt­töku­kerfi Sjúkra­trygg­inga Íslands og verði þannig veitt á sömu for­sendum og önnur heil­brigð­is­þjón­usta. Sál­fræði­þjón­usta er nú und­an­skilin almennri greiðslu­þátt­töku Sjúkra­trygg­inga.

„Vaxandi fjöldi fólks grein­ist með geð­rask­anir eða önnur and­leg veik­indi en aðgengi að úrræðum og þjón­ustu fyrir þennan hóp er tak­markað og kostn­að­ur­inn oft tölu­verður. Mik­il­vægt er að tryggja að þeir sem eru með virk ein­kenni fái lausn á vanda sínum sem fyrst til að koma í veg fyrir víta­hring lyfja, þung­lyndis og óvirkni. Slíkt getur haft alvar­legar afleið­ingar, bæði fyrir þá sem þurfa á hjálp að halda og sam­fé­lagið allt. Frum­varp­inu er því ætlað að tryggja aðgengi ein­stak­linga að sál­fræði­þjón­ustu.

Aðgengi að sál­fræði­þjón­ustu er lyk­il­at­riði þegar kemur að því að greina kvilla snemma og tryggja nauð­syn­lega með­ferð eftir að grein­ing liggur fyrir. Samkvæmt klínískum leið­bein­ingum land­læknis á gagn­reynd sál­fræði­með­ferð (sem er sú með­ferð sem hefur í rann­sóknum sýnt mestan árangur) að vera fyrsti með­ferð­ar­kostur við kvíða, þung­lyndi og öðrum sál­rænum kvillum. Sál­fræði­með­ferð í stað lyfja­gjafar gerir það að verkum að ráð­ist er að rótum vand­ans og getur komið í veg fyrir eða dregið veru­lega úr lyfja­gjöf. Þrátt fyrir það er slík með­ferð oft­ast ekki raun­hæfur kostur nema fyrir hluta almenn­ings þar sem fram­boð er of tak­markað innan heilsu­gæsl­unnar, með til­heyr­andi biðlistum og töfum á nauð­syn­legri með­ferð. Þar spilar einnig inn í að ekki er heim­ild til samn­inga sam­kvæmt gild­andi lögum um að sjúkra­trygg­ingar taki til nauð­syn­legrar sál­fræði­með­ferðar. Ólíkt annarri heil­brigð­is­þjón­ustu er því sál­fræði­þjón­usta fyrst og fremst í boði á starfs­stofum sjálf­stætt starf­andi sál­fræð­inga, án opin­bers stuðn­ings við þá sem þurfa á þjón­ust­unni að halda,“ segir í grein­ar­gerð­inni.

Enginn á að neita sér um þjónustu vegna kostnaðar

Enn fremur er bent á að algengi sjálfs­víga og geð­rænna veik­inda sé alvar­legt vanda­mál. Orsakir séu margar og mis­mun­andi, en ljóst sé að bregð­ast verður við þessum vanda. For­varnir í heil­brigð­is­málum skipti þar miklu máli, og eigi það jafnt við um lík­am­lega sjúk­dóma sem and­lega. Lyk­il­at­riði sé að greiða aðgengi fólks að fyr­ir­byggj­andi úrræðum og auka mögu­leika á því að takast strax á við sjúk­dóma eins og þung­lyndi og kvíða sem virð­ist vera að aukast meðal ungs fólks. Slíkt mundi án efa hafa jákvæð þjóð­hags­leg áhrif til lengri tíma.

„Koma þarf til móts við ósýni­lega sjúk­dóma líkt og komið er til móts við þá sem sýni­legir eru. Þannig má auka lífs­gæði fólks. Enginn á að neita sér um þjón­ustu vegna kostn­aðar eða skorts á aðgengi, en sam­kvæmt upp­lýs­ingum Hagstofu telja um 33% fólks sig ekki hafa efni á geð­heil­brigð­is­þjón­ustu. Þetta á sér­stak­lega við um ungt og tekju­lágt fólk. Algeng­ast þykir að ein­stak­lingur þurfi á bil­inu 10 til 15 með­ferð­ar­tíma hjá sál­fræð­ingi til að ná bata. Bein útgjöld vegna slíkrar með­ferðar eru því talin í hund­ruðum þús­unda króna sem ekki er á færi hvers sem er að reiða af hendi,“ segir í grein­ar­gerð­inni.

Skringilegir tónarnir varðandi forgangsröðun frá ríkisstjórninni

Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, for­maður Við­reisnar, var fyrsti flutn­ings­maður frum­varps­ins en með henni voru þing­menn Pírata, Sam­fylk­ingar, Mið­flokks, Flokks fólks­ins, Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sókn­ar­flokks­ins.

Hún spurði heil­brigð­is­ráð­herra út í málið í óund­ir­búnum fyr­ir­spurna­tíma á Alþingi í vik­unni. „Ég verð að við­ur­kenna að þeir eru svo­lítið skringi­legir tón­arnir varð­andi for­gangs­röðun frá rík­is­stjórn­inni. Í miðjum heims­far­aldri er verið að setja fram nið­ur­skurð­ar­kröfu upp á marga millj­arða á Land­spít­al­ann. Það er ekki hægt að horfa á þetta sem hag­ræð­ing­ar­kröfu, ekki ef hún er rýnd. Það þarf m.a. að fresta upp­bygg­ingu inn­viða, það er ekk­ert annað en nið­ur­skurð­ar­krafa. Og korteri eftir Landa­kots­skýrsl­una er þetta afar furðu­leg for­gangs­röðun.“

Vísaði hún í við­tal Kjarnans við ráð­herra þar sem Svandís sagði að fara þyrfti yfir það hversu miklum fjár­munum ætti að ráð­stafa í þennan samn­ing.

Spurði Þor­gerður Katrín hversu langt sú vinna væri komin. „Verður sviðs­myndin klár strax á nýju ári? Og við skulum hafa það hug­fast að heilsu­gæslan – ég geri mér grein fyrir því að hæst­virtur ráð­herra bendir sífellt þangað – annar ekki því fólki sem er á biðlist­unum. Það má kannski segja að eitt af ein­kenn­is­merkjum þess­arar rík­is­stjórnar séu biðlistar í heil­brigð­is­kerf­inu. Af hverju? Af því að það má ekki leita til sjálf­stætt starf­andi heil­brigð­is­starfs­fólks hér á Íslandi.

Við verðum að horfa á vanda fólks­ins. Verið er að kalla eftir með­ferðum, úrræðum, og þá verðum við ein­fald­lega að kalla alla á dekk til að svo verði. Það þýðir ekki að úti­loka sjálf­stætt starf­andi sál­fræð­inga eða annað heil­brigð­is­starfs­fólk til að taka á þessu. Ég spyr hæst­virtan ráð­herra: Munum við sjá skýra sviðs­mynd strax á nýju ári þannig að hægt verði að upp­fylla þau lög sem sam­þykkt voru sam­hljóða hér á þingi fyrir nokkrum vikum?“ spurði hún.

Fjöldamargir samningar í gangi

Svandís svar­aði og sagði þetta því miður ekki vera í fyrsta skipti sem farið væri rangt með um að engir samn­ingar væru í gildi við sjálf­stætt starf­andi aðila á heil­brigð­is­sviði.

„Það eru nátt­úr­lega fjölda­margir samn­ingar í gangi, ég held að þeir séu á annað hund­rað. Ég hef sjálf staðið fyrir því að gerðir væru samn­ingar, til að mynda við Ljósið sem aldrei höfðu verið gerðir samn­ingar við fyrr en í minni tíð, vegna þess að ég veit að það þarf margar hendur á dekk og ég hef alltaf talað fyrir því.

Varðandi það hvað hátt­virtur þing­maður gerir lítið úr þjón­ustu heilsu­gæsl­unnar vil ég benda honum á að á þessu ári hafa 2.600 manns fengið þjón­ustu geð­heilsuteyma heilsu­gæsl­unnar, 2.600 manns sem hv. þing­maður telur ekki ástæðu til að nefna í fyr­ir­spurn sinni hér á Alþingi. Þetta fólk er að fá stuðn­ing og hjálp, fag­legan stuðn­ing, sál­fræð­i­stuðn­ing, stuðn­ing frá geð­læknum og fleiri stéttum sem það fékk ekki áður. Þetta er breyt­ing,“ sagði Svandís.

Benti heil­brigð­is­ráð­herra á að vil ég segja að hún studdi þetta mál vegna þess að hún taldi rétt að heil­brigð­is­ráð­herra hefði skýra heim­ild til að semja við sál­fræð­inga eins og aðrar heil­brigð­is­stéttir. „Það er það sem frum­varpið gekk út á og það sem laga­breyt­ingin frá Alþingi gekk út á. Það sner­ist ekki um að taka ákvörðun um nákvæm­lega hvaða upp­hæð ætti að ráð­stafa í slíkan samn­ing. Ég vil full­vissa hv. þing­mann um að það er minn vilji að sá rammi liggi fyrir við afgreiðslu fjár­laga nú í des­em­ber.“

Langir biðlistar – „Við þurfum allar hendur á dekk“

Þor­gerður Katrín sagð­ist þegar hún kom aftur í pontu frá­biðja sér það það að ráð­herra skyldi segja að hún væri að tala niður opin­bera heilsu­gæslu. „Það er bara ekki þannig. Hins vegar er stað­reyndin sú að fólk er á biðlistum, meðal ann­ars eftir klínískri sál­fræði­með­ferð og fleira. Því er ekki að leyna að við í Viðreisn höfum ítrekað lagt fram til­lögur til þess að leysa biðlistana með því meðal ann­ars að sam­þætta opin­bera þjón­ustu og sjálf­stætt starf­andi heil­brigð­is­þjón­ustu. Í því er engin ógn svo lengi sem mark­miðið er skýrt og mark­miðið er að losa fólk undan þján­ingum sem hefur verið mán­uðum og árum saman á biðlistum. Þess vegna segi ég: Við þurfum allar hendur á dekk.“

Hún sagði að ítrekað hefði rík­is­stjórn Vinstri grænna, Fram­sóknar og Sjálf­stæð­is­flokks fellt til­lögur þeirra sem stuðl­uðu meðal ann­ars að því að reyna að leysa þennan biðlista­vanda, hvort sem talað væri um lið­skipta­að­gerðir, mjaðma­að­gerðir eða sál­fræði­með­ferð.

„Það liggur alveg ljóst fyrir að ungt fólk er á biðlistum eftir sál­fræði­með­ferð. Verið er að segja að sam­hliða sótt­varna­að­gerðum þurfum við að huga að lýð­heilsu land­ans. Við þurfum að huga að líðan þjóðar. Eins og staðan er núna munu þau fjár­fram­lög sem eru áætluð í fjár­lögum, ekki duga til þess að hjálpa fólki sem er að leita eftir þjón­ustu,“ sagði hún og spurði Svandísi hvað hún ætl­aði að gera til að stuðla að því að allar hendur kæmu raun­veru­lega á dekk til að mæta þörfum fólks­ins.

„Óþarfi að berja á dyr sem eru opnar“

Svandís svar­aði í annað sinn og sagði að ein­hvern tíma hefði verið sagt við hana að það væri óþarfi að berja á dyr sem væru opnar.

„Það er dálítið það sem mig langar til að segja við hátt­virtan þing­mann. Við erum sam­mála um mik­il­vægi sál­fræði­þjón­ustu. Við erum sam­mála um að tryggja aðgengi að fag­legum stuðn­ingi vegna geð­heil­brigð­is­vanda og að hann sé mik­il­vægur. Við erum vænt­an­lega sam­mála um það, ef marka má orð hátt­virts þing­manns hér, að það sé mik­il­vægt að byggja upp sál­fræði­þjón­ustu í opin­bera heil­brigð­is­kerf­inu. Ég skil orð hátt­virts þing­manns þannig þegar hún frá­biður sér það að ég telji hana ekki vera nægi­lega styðj­andi að því er varðar upp­bygg­ingu og fjölgun, tvö­földun, á fjölda sál­fræð­inga í heilsu­gæsl­unni og upp­bygg­ing nýrra geð­heilsuteyma á lands­vísu.“

Taldi Svandís þar með að hún ætti stuðn­ing Þor­gerðar Katrínar vísan í því. Jafn­framt árétt­aði hún að það lægi fyrir við afgreiðslu fjár­laga nú í des­em­ber hversu há upp­hæð gengi til sér­stakra samn­inga við sjálf­stætt starf­andi sál­fræð­inga.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár