Sex í gæsluvarðhald vegna peningaþvættis og fíkniefna

Sex Íslendingar voru úrskurðaðir í gæslu­varðhald í gær fyrir grun um brot gegn fíkniefna­löggjöfinni og peninga­þvætti.

Lögreglan að störfum
Lög­reglan að störfum Athugið að myndin teng­ist ekki frétt­inni beint. Mynd: Golli

Sex hafa verið úrskurðaðir í gæslu­varðhald í Héraðs­dómi Reykja­víkur eftir að Lögreglan á höfuð­borgar­svæðinu réðist í viða­miklar aðgerðir í umdæminu í þágu rann­sóknar hennar á fíkniefna­misferli og peninga­þvætti. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á höfuð­borgar­svæðinu. Þá hefur fyrir­tækið BL sent frá sér tilkynningu þar sem fram kemur að einn framkvæmda­stjóra fyrir­tækisins hafi verið settur í leyfi eftir að greint var frá því að starfs­maðurinn hafi verið hand­tekinn í tengslum við málið.

Í tilkynningu lögreglu segir að framkvæmdar hafi verið húsleitir og handtökur á nokkrum stöðum og lagt hafi verið hald á bæði fjármuni og fíkniefni. Sex voru síðan úrskurðaðir í gæslu­varðhald í gær og nær það til föstudags, en hinir handteknu eru allir Íslendingar.

Rannsókn málsins er mjög umfangs­mikil samkvæmt upplýsingum lögreglu.

RÚV greinir frá því að einn hinna handteknu í þessu máli sé Atli Freyr Fjölnisson, sem sætir rannsókn vegna umfangs­mikils kókaín­smygls til landsins …

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár