Dóra Björt ráðin deildarstjóri hjá Rauða krossinum

Fyrr­verandi borgar­fulltrúi Pírata hefur verið ráðinn til höfuð­borgar­deildar Rauða krossins.

Dóra Björt Guðjónsdóttir
Dóra Björt Guð­jóns­dóttir Borg­ar­full­trúi til átta ára hefur verið ráð­inn til Rauða kross­ins. Mynd: Bára Huld Beck

Dóra Björt Guðjóns­dóttir hefur verið ráðin deildar­stjóri höfuð­borgar­deildar Rauða krossins og mun hefja störf þann 1. september næst­komandi. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Rauða krossins.

Dóra Björt var borgar­fulltrúi Pírata í 8 ár en skipti yfir í Samfylkinguna undir lok kjör­tímabilsins. Hún náði ekki þeim árangri í prófkjöri Samfylkingarinnar sem hún sóttist eftir og tók ekki sæti á lista flokksins fyrir borgar­stjórnar­kosningar í vor. Hún er 38 ára og með BA-gráður í bæði heimspeki og alþjóða­fræðum frá Óslóar­háskóla og diplómu á meistara­stigi í alþjóða­samskiptum frá Háskóla Íslands.

Höfuð­borgardeild Rauða krossins er stærsta deild félagsins með 35 starfs­menn og um 600 sjálfboða­liða.

„Undir deildina heyra skaða­minnkunar­verkefnin Ylja og Frú Ragn­heiður, verkefni tengd félags­legum stuðningi við flótta­fólk sem og við fólk sem er að afplána fangelsis­dóma eða hefur nýlokið þeim,“ að því segir í tilkynningunni. „Þá heldur deildin úti marg­víslegum félags­legum verkefnum, svokölluðum vina­verkefnum, sem miða að …

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár