Meirihluti íbúðakaupenda fær aðstoð frá fjölskyldu

Þeir sem kaupa sína fyrstu íbúð hafa orðið eldri og eldri síð­ustu ára­tugi. Þetta kemur fram í nýrri könnun Íbúða­lána­sjóðs.

Þeir sem kaupa sína fyrstu íbúð hafa orðið eldri og eldri síð­ustu ára­tugi. Þetta kemur fram í nýrri könnun Íbúða­lána­sjóðs en árið 1970 voru kaup­endur fyrstu fast­eignar að með­al­tali 22 ára og þeir sem keyptu á árunum 1970 til 1970 að með­al­tali um 24 ára. Þessi með­al­aldur fer svo hækk­andi með hverjum ára­tug og voru þeir sem keyptu sína fyrstu fast­eign eftir síð­ustu ald­ar­mót að með­al­tali um 28 ára gamlir.

Þrátt fyrir að með­al­aldur kaup­enda á árunum 2000 til 2018 hafi verið 28 ár var um 41 pró­sent kaup­enda yngri en 25 ára á árunum 2000 til 2009 en aðeins um 28 pró­sent kaup­enda var undir 25 ára aldri eftir árið 2010. Þessar nið­ur­stöður eru sam­kvæmt til­kynn­ingu frá Íbúða­lána­sjóði vís­bend­ing um að ann­að­hvort hafi sífellt orðið erf­ið­ara fyrir ungt fólk að koma inn á mark­að­inn eða fólk kjósi að kaupa sér sína fyrstu fast­eign síðar á lífs­leið­inni.

Meirihluti fyrstu kaupenda í dag fær aðstoð frá fjölskyldu

Af þeim sem keyptu sína fyrstu fast­eign á árunum 1970 til 1979 fengu 38 pró­sent aðstoð við fjár­mögnun frá ætt­ingjum og vinum. Næsta ára­tug þar á eftir eða frá 1980 til 1989 fengu ein­göngu um 35 pró­sent þeirra sem voru að kaupa sína fyrstu fast­eign aðstoð frá ætt­ingjum eða vinum en það er lægsta hlut­fallið sem mæld­ist í könn­un­inni.

Árið 2004 hófu bank­arnir inn­reið sína inn á lána­mark­að­inn með látum og buðu allt að 100 pró­sent lán. Þrátt fyrir það jókst hlut­fall þeirra sem fengu aðstoð við fjár­mögnun fyrstu hús­næð­is­kaupa í 44 pró­sent á árunum 2000 til 2009. Eftir hrun eða á árunum eftir 2010 hefur þetta hlut­fall farið upp í 59 pró­sent og því telur Íbúða­lána­sjóður því ljóst að meiri­hluti kaup­enda fékk aðstoð við sín fyrstu hús­næð­is­kaup eftir hrun.

Leigjendur ólíklegir til þess að ráðast í fasteignakaup

Lang­flestir leigj­endur, eða 89 pró­sent, telja lík­legt eða öruggt að þeir yrðu áfram á leigu­mark­aði eftir hálft ár. Auk þeirra telur 21 pró­sent þeirra sem eru í for­eldra­húsum líkur á að þeir færi sig yfir á leigu­markað á næstu 6 mán­uðum.

Íbúðaskuldir heimilanna halda áfram að vaxa að raunvirði

Í lok maí voru íbúða­skuldir heim­il­anna 5,7 pró­sent meiri að raun­virði en í sama mán­uði árið áður og hefur 12 mán­aða hækkun íbúða­skulda að raun­virði ekki verið meiri frá byrjun árs 2010.

Frá því í byrjun árs 2016 hafa heild­ar­skuldir heim­il­anna með veð í íbúð auk­ist lang­mest hjá líf­eyr­is­sjóð­unum af fjár­mála­stofn­unum lands­ins eða um ríf­lega 100 pró­sent að raun­virði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár