Erlendur ferðamaður lést í gær á heilbrigðisstofnun Norðurlands á Húsavík, en hann reyndist smitaður af veirunni sem veldur COVID-19 sjúkdómnum. Dánarorsök liggur ekki fyrir og sjúkdómseinkennin voru ekki dæmigerð fyrir COVID-19, að því er fram kemur í fréttatilkynningu. Unnið er að því að skera úr um dánarorsökina.
„Margþætt vinna tekur nú við vegna þessa máls, bæði varðandi andlát mannsinns og stuðning við hans nánustu,“ segir í tilkynningunni sem almannavarnadeild ríkislögreglustjóra, sóttvarnalæknir og embætti landlæknis skrifa undir.
„Þá þarf að styðja við og setja þá heilbrigðisstarfsmenn sem komu að meðferð mannsins í sóttkví“
„Þá þarf að styðja við og setja þá heilbrigðisstarfsmenn sem komu að meðferð mannsins í sóttkví, sótthreinsa heilsugæslustöðina ásamt því að tryggja nauðsynlega heilbrigðisþjónustu fyrir Húsvíkinga. Öll þessi verkefni eru unnin á vegum almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra, í náinni samvinnu við sóttvarnalækni, landlækni, Rauða krossinn og er unnið í samstarfi við aðgerðastjórn almannavarna á Norðurlandi eystra og heilbrigðisstofnun Norðurlands.“
Starfsemi Heilbrigðisstofnunar Norðurlands á Húsavík verður í lágmarki, að því segir í tilkynningunni. „Eins og áður sagði er allt kapp lag á að tryggja að hægt verði að halda uppi mikilvægri þjónustu við íbúa á starfssvæði hennar og aðra sem kunna að þurfa á þjónustu hennar að halda. Tilkynningar er að vænta um hvernig þjónustu verður hagað,“ segir að lokum.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.





















































Athugasemdir